Fálkinn


Fálkinn - 10.01.1941, Blaðsíða 5

Fálkinn - 10.01.1941, Blaðsíða 5
F Á L K I N N 5 ] ur að vináttu Frakka og Englendinga. En hann stóð einn uppi meS þessa skoSun, og því hlaut svo að fara, að ófriður byrjaði á ný við Eng- lendinga. Talleyrand sá rjett. Og fjórtán mánuðum eftir friðargerðina í Amíens hófst ófriðurinn aftur milli Frakka og Englendinga. Madame de Rémusant, sem líka var heilluð af hrifningunni yfir vopnagœfu Napoleons, gat ekki skilið, hve Talleyrand var ósnortinn af sigurfögnuði þjóðarinnar. „Það sló mig undir eins,“ skrifar hún, „hve gjörsamlega hann var ómóttækilegur fyrir hrifninguna, sein allsstaðar var kringum okkur. Jeg skildi ekki þessa ró og sinnuleysi í manninum.“ Starf Talleyrands í stjórnartíð Napoleons er starf hins hyggna þjóns. Hann missir aldrei sjónar á húsbóndanum, sem í sigurvímunni veldur hverjum óskundanum eftir annan. Og Talleyrand reynir eftir bestu getu að bæta fyrir verstu mis- fellurnar, reynir að koma því í lag, sem aflagað hefir verið, svo að á- standið verði eigi bölvaðra en þörf er þá, þegar kemur að skuldadögun- um. Þegar Austurríki hafði gert Frökkum úrslitakosti, skrifaði prúss- neski sendiherrann í París stjórn sinni þetta: „Monsieur de Talleyrand er i örvæntingu. Ef hann gæti liindr- að friðslit eða stöðvað ófriðinn áður en sigurinn lætur ágirndina blossa upp, eða ósigurinn knýr sómatilfinn- inguna til að halda áfram, mundi hann telja þetta verk virðingarverð- asta verkið, sem liann liefði unnið í stjórnmálatíð sinni.“ — En Napoleon tók úrslitakostunum fegins hendi. Stríð við Austurriki var skemtileg tilbreyting frá vonláusu hugmyndinni um, að ráðast á England, — nýtt spennandi æfintýri lianda óseðjandi herkonungi. Austurríki beið ósigur. Keisarinn fór sigrandi orustu úr or- ustu, knúður áfram af valdaþorsta sinum og eldmóði hermanna sinna. Talleyrand reyndi árangurslaust að fá hann til að stilla í hóf og sýndi honum fram á, að auðmýkt Austur- ríki yrði ætíð svarinn óvinur, en með liptlrð og nærgætni mætti gera örugga bandamenn úr Austurríkis- mönnum. En það var eigi farið að ráðum Talleyrands fremur en fyr og honum var skipað, að undirrita friðarsamningana eins og Napoleon vildi hafa þá. Frantz keisari misti þrjár miljónir þegna, sjötta hluta af tekjum sinum og varð auk þess að greiða 40 miljónir franka i skaða- bætur. Napoleon var óánægður og sakaði Talleyrand um, að hafa verið of eftirlátssamur við Austurríki. En samt gaf Napoleon honum fursta- dæmið Beneventuin, hjerað í kon- ungsrikinu Neapel, að launmn fyrir verkið. Það er sagt, að Talleyrand hafi aldrei komið í þetta riki sitt sjálfur, en han'n stjórnaði landsetum sínum vel og viturlega, ljetti á þeim sköttum og bjargaði þeim undan her- skyldu. Þegar fram líða stunair sannfærist Talleyrand um, að það stoðar ekk- ert að reyna að koma vitinu fyrir keisarann með góðu og þessvegna gerist hann nú opinber andstæðingur hans. Samt gegnir hann ráðherra- embættinu áfram. Napoleon getur ekki án hans verið, og Talleyrand er ljóst, að ef hann eigi að geta af- stýrt verstu afglöpum keisarans, þá verði hann að halda embættinu. Og það breytti litlu þó að Napoleon spyrnti honum úr utanrikisráðherra- sesli eftir friðargerðina í Tilsit, því að um leið gerði hann hann að stór- kanslara. Napoleon hafði það til að tala eins og dóni við ráðunauta sína. Einu sinni sagði hann við Talleyrand, í viðurvist margra hirðmanna: „Hvers- vegna sögðuð þjer mjer ekki, að her- toginn af San Carlos væri í þingum við konuna yðar?“ Talleyrand svar- aði, án þess að bregða svip, að því minna sem hann talaði mn það, því hollara mundi það vera mannorði hans sjálfs og keisar- ans. Keisarinn reiddist, en þó graindist honum enn meir, er Tall- eyrand líkti af- skiftum Napole- ons af Spáni við að hafa rangt í spilum.Talleyrand var ekki orðmarg- ur, en það sveið ol't undan þvi, sem liann sagði. Talleyrand vildi bjarga friðnum í Evrópu, en sá, að það var ómögu- legt nema með því || að steypa Napole- on. Napoleon vissi um þetta, en of- metnaðist svo og trúði svo á gæi'u sina, að liann taldi sjer ekki neina hættu stafa iif Talleyrand. Við friðar- samningana i Erfurt sagði Talleyrand berum orðum við Alexander Rússa- keisara, að hann yrði að bjarga Evrópu og það væri aðeins hægt með því að dasa Napoleon. Og þeir ræddu í einlægni um, hvernig ætti að fara að þvi. Eftir samningana í Erfurt fór Napoleon í herferð til Spánar. Þar misti hann nokkur liundruð þúsund inanns. En á meðan rjeðu óvinir bans ráðum sínum heima fyri.r. Þeg- ar Napoleon frjetti, að Talleyrand hefði haft Fouché, hinn alræmda lög- reglustjóra Parísar i boði sínu, brá hann við skjótt og hjelt til Parísar. Honum hefði ekki orðið meira um að heyra, að allar þjóðir Evrópu hefðu sagt honum stríð á hendur. Kvaddi hann virðingamenn ríkisins 'til sín í Tuileriehöllina og jós þar fúkyrðum yfir Talleyrand, kallaði hann þjóf, svikara og landráðamann. Talleyrand stóð þegjandi og glotti, en við það espaðist Napoleon enn meir, og svaraði honmn um, að hann væri tialtur og kallaði hann „drít í silki- sokkum“. Talleyrand þagði, en um leið og hann gekk út sagði hann loks: „Það er leitt, að jafn mikill maður skuli ekki hafa fengið betra uppéldi en þetta.“ Þegar Napoleon hafði sigrað Aust- urriki á ný fór hann í herferðina til Rússlands, sem Talleyrand hafði sagt um, að verða mundi byrjun niður- lægingar lians. Eftir ósigurinn þurfti Napoleon góðra ráða og vildi nú gera Talleyrand að utanrikisráðherra á ný, en stórkanslarinn þvertók fyrir. Veturinn 1813—’14 átti Napoleon land sitt að verja gegn Rússum, Aust- urríkismönnum og Prússum og þó að Napoleon hafi aldrei sýnt meiri lierkænsku en þá, gat hann ekki stað- ist ofureflið. En áður en hann flýði til Elbu eftir ósigurinn, höfðu and- stæðingar hans afráðið, að setja Lúðvik 18. í hásætið. Þrotabúi Napoleons var skift á Wienarþinginu, sem stóð liálft ár. Þar komu flestir þjóðhöfðingjar Ev- rópu, og þó mikið væri dansað þar þá var alvarlegu störfunum sint nokk- uð líka. Þangað fór Talleyrand sem uinboðsmaður Lúðviks 18. og hafði með sjer liertogafrúna Edmond de Perigord, konu frænda síns, sem sið- ar varð hertogafrú de Dino, forkunn- arfagra konu, en átti að hafa áhrif á hina fjandsamlegu stjórnmálamenn. En aðallega mun Talleyrand hafa haft hana með sjer sjálfs sin vegna. Að ofan: Farstafj'ú Tall- eyrand. Að ofon t. h.: Liíðvik fS. Frakkakon,- ungur. Hertogafrúin af Dino. Hann hafði verið i vin- fengi við móður hennar og hún var gift bróður- syni lians. En samt tók- ust ástir milli hennar og Talleyrands — hún var 21 árs, en liann 60. Talleyrand hefir orðið frægari af Wienarfundin- um en nokkru öðru, alls- staðar nema í Frakklandi. Hann stóð aleinn uppi gegn sigurvegurunum, og þeir vildu ekki við hann tala. En honum tókst að ná eyra smáþjóðafulltrúanna á fundinum og fleyga sundur samdi’ægni sigurveg- aranna og brátt varð hann leiðandi maður í samningunum. Hann undir- skrifaði fyrst leynisamning við Eng- land og Austurríki, og var sá samn- ingur meistaraverk, sem bjargaði hag Frakklands. Það var ekki ný hug- mynd, sem bar þann samning uppi, heldur sami hugurinn á sátt milli þjóðanna, sem ávalt hafði mótað stjórnmálaskoðanir Talleyrands, löngu áður en Napoleon koin til sögunnar. Frakkar urðu að skila þvi, sem þeir höfðu tekið, en mistu ekkert af sínu eigin landi. En samt vakti þetta gremju og halur til Talleyrands í Frakklandi, og mönnum þótti Tall- eyrand hafa staðið illa i ístaðinu. Konungurinn sjálfur hafði ekki traust á honum og sendi njósnara til Wien til að hafa gát á honum. Um sama leyti sem Talleyrand hafði bjargð landi sínu í Wien með hófseind og lipurð flýði Napoleon frá Elba í þeim tilgangi að ónýta verk hans. En Talleyrand fjekk fundinn til að lýsa yfir því, að það sem þjóð- höfðingjarnir gerðu lijer eftir, skyldi ekki beint gegn Frakklandi heldur keisaranum einum. Lúðvík 18. launaði Talleyrand frammistöðuna í Wien með því að setja hann af, og næstu árin kom liann ekki nærri opinberum málum en hafði fulla fyrirlitningu flestra og var talinn landráðamaður. En 1830 var hann loks gerður sendiherra i London, nær áttræður, „af því að enginn var til skárri.“ Síðustu æfiár sin dvaldi hann ým- ist i húsi sinu i París eða höll, sem hann átti í Valency. Þar liafði hann fyrrum . gert ýmislegt til kjarabóta fyrir landseta sína, stofnað elliheim- ili, telpnaskóla og sett upp lyfjabúð, þar sem fátækir fengu lyf ókeypis. Og dyr hans stóðu öllum opnar. Her- togafrú de Dino og dóttir liennar dvöldu lengstum hjú honum í ell- inni og hjúkruðu honum. Síðasta daginn sem hann lifði var fult af gestum að spyrja eftir líðan hans. Honum var sagt, að erkibisk- upinn liefði sagt, að hann vildi fús- lega gefa sitt líf til þess að lengja lif Talleyrands, en hann svaraðiiró- lega: „Segið þið honum, að liann hafi miklu ineira við það að gera en jeg.“ Þetta voru siðustu orðin sem hann sagði. -----Þegar arfleiðsluskrá hans var opnuð kom það á daginn, að hann Ijet eftir sig 18 miljónir franka, og skyldi liertogafrú Dino erfa alla þá upphæð. Ýmislegt var um það skraf- að, að þetta l'je mundi ekki alt vel fengið. Talleyrand mótmælti því al- drei, að liann hefði þegið stórfje al' ýmsum furstum fyrir ráðleggingar. Hann hafði sömu regluna og læknar hafa >— hann setti upp þóknun eftir efnum og ástæðum. En hann seldi al- drei sannfæringu sína og ágjarn var hann ekki. Hann lánaði of't kunn- ingjum sinum fje, og ef þeir borguðu ekki þá ljet liann það gott heita. Meðan Napoleon var ungur herfor- ingi fjekk liann einu sinni 100.000 franka að láni hjá Talleyrand. Hann fjekk það vitanlega tífalt aftur, og Talleyrand sagði1 berum orðum, að hahn ætti keisaranum mest af fjár- niunum sínum að þakka. Á næstu árum ágerðist ljóminn um nafn Napoleons si og æ, en dust gleymskunnar fjell á nafn Talleyr- ands. Almenningur man altaf hern- aðarafrekin best. Þvi að það er ekki mannvitið heldur vitfirringin, sem skapar veraldarsöguna,

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.