Fálkinn - 23.05.1941, Qupperneq 10
10
F Á L K I N N
YNCSSVV
U/CNMNMIR
TOMMI LEIKUR SJER.
Eftir I. Kr. Mortensen.
Tommi er tœpra þriggja ára. Hann
er einkabarn, en dvelur á barnagarði
á daginn, „smábarnaskóla“ fyrir börn
á aldrinum 1—3 ára.
Tommi leikur sjer mest að „lík-
amsæfingum" og það á hann hægt
með þarna. Þar er svolítil rennibraut
úr timbri; handrið með fram og
trappa með ofurlitlum þrepum, sem
hann gengur eftir upp á pall en
renni rsjer svo gólfdúksklædda braut
niður á gólfið, með höfuðið ýmist á
undan eða eftir.
En honum finst enn meira gaman
að gera sjer rennibraut sjálfur. Hann
nær sjer i kassa og fjöl og leggur
annan fjalarendann upp á kassan, en
hinn á gólfið og rennir sjer svo.
Þverslá er neðan á fjölinni, svo að
liún skriki ekki niður af kassanum.
Þessa braut er hægt að búa til á
hverju 'heimili. Þegar Tommi er orð-
inn þreyttur á að renna sjer, býr
hann til ný áhöld úr kassanum og
fjölinni. Hann nær sjer í annan kassa
og býr til bekk — hann getur jafn-
vel búið til flugvjel úr kassanum.
í dyraumbúnaðinum eru krókar, í
þeim hangir kaðalstigi. Það er ógn
gaman að róla sjer í þessum stiga.
Fyrst í stað komst Tommi ekki einu
sinni upp í lægsta þrepið hjálpar-
laust, en nú hefir hann lært hvernig
hann á að klifra upp allan stigann
sjálfur. Það er hægt að sjá á svipn-
um á honum, hve gaman hann hefir
af að reyna á handleggjavöðvana.
En þegar hann er orðinn þreyttur
á þessu fer hann inn í hina stofuna,
þar sem eldri börnin eru. Þar situr
hópur af stærri börnum.
Tomrni fer til Jóku, bestu vin-
slúlku sinnar. Hún er 2 ára og 3
mánaða og situr á gólfinu með stórt
blað af umbúðapappír og kyrnu með
rauðum lit, sem hægt er að þvo af.
Jóka er að „mála hús“. Tommi horfir
á hana með athygli, svo nær liann
sjer i leir og fer að búa til armbönd
handa sjálfum sjer og Jóku. Þegar
þau eru búin að þessu veitir ekki af
rækilegum þvotti og þau verða sam-
ferða út, að þvottaskálunum. Þar er
bandklæði fest á magann á þeim með
þvottaklemmu og svo þvo þau sjer
um hendurnar og láta freyða vel.
Svo hella þau vatninu varlega i fötu;
það getur jafnvel Jóka gert, án þess
að dropi fari utanhjá.
Af því að börn á þessum aldri
hafa svo gaman af litum, þá dettur
Tomma í hug annað leikfang; litar-
vinsli Montessori. Þetta eru 22 trje-
vinsli, sem upp á er undið silki í
ýmsum litum. Tvö og tvö af vinslun-
um eru eins. Tommi tekur öll vinsl-
in og ruglar þeim saman á borðinu
og fer svo að raða þeim saman,
tveimur og tveimur af sama lit.
Hann hefir lengi haft gaman af
þessu, en nú fer hann að langa að
þekkja nöfnin á litunum, en það er
nú talsvert erfitt mál.
Hann hefir líka gaman af öðru
Montessori-leikfangi, „kommóðunni".
Hann dregur út eina skúffuna og
sest á gólfið. 1 skúffunni eru ýmis-
lconar myndir úr flatarmálsfræði,
hringur, þríhyrningur, ferhyrningur
o. s. frv. Þær falla hver um sig ofan
í krossviðarfjöl, sem þeir voru sag-
aðar úr. Og nú fer hann að glíma
við að koma hverri mynd á rjettau
stað. Það er ekki auðvelt, en það
telcst smámsaman.
Tomma þykir skelfing gaman að
klippa. Hann fær oddlaus skæri og
allskonar gömul myndablöð. Klippir
úr þeim myndir af hestum og kúm
og fuglum og bifreiðum. Svo ber
hann lím á myndirnar og festir þær
upp á vegg, því að það hefir hann
sjeð önnur börn gera. Verði honum
það á að líma myndina öfuga, þá
nær hann henni burt með því að
væta hana, og limir hana upp aftur.
Og nú er hún rjett.
Þegar Tommi er heima leikur hann
sjer að öðru. Hann á rauðan brúðu-
vagn og þrjár brúður, sem honum
þykir ógn vænt um. Þær eru i hólk-
viðum kjólum, svo að auðvelt er að
hátta þær og láta þær sofa.
Um jólin fjekk Tommi naglabretti.
Það er sterk fjöl á fjórum gúmmi-
löppum og með mörgum smágötum,
en i hverju gati er ofurlítill trje-
nagli. Trjehamar fylgir með. Nú rek-
ur Tommi alla naglana niður með
liamrinum, en þá standa þeir allir
út úr fjölinni að neðanverðu. Þá
snýr Tommi fjölinni við og rekur nú
alla naglana til baka. Og þetta getur
gengið lengi. Fyrst í stað meiðir
hann sig lcanslce á fingrunum með
hamrinum, en hann venst von bráð-
ar af því.
í eldhúsinu er messingslá framan
á- eldavjelinni og Tommi fægir hana
fyrir mömmu sína. Hann smyr fægi-
efninu á og fægir svo með klút þang-
að til stöngin verður skínandi. Og
það er furðanlega margt, sem hann
getur gert í eldhúsinu, þó að ekki
sje hann stór, bara ef móðir hans
vill leyfa honum það.
En mest þykir honum gaman að
fá litakassa eða marga Iitblýanta og
mála á blað. Blaðið má gjarnan vera
prentað, — Tomma finst það ekki
gera neitt til — ennþá.
Úti i garði á Tommi rólu. Hún hang-
ir á fjórum snærum, sinu í hverju
horni sætisfjalarinnar, en sætið er
getið notað róluna siðan hann var
getið notað róluna síðan hann var
skelfing lítill. Svo á hann líka stóra
fjöl, sem fest er skáhöll á planka-
bút. Á þessari fjöl hoppar liann að
gamni sínu og þáð er talsverður
vandi. Þeir fullorðnu kalla þetta
stökkbretti. Skamt frá stendur stór
kassi og er önnur liliðin úr rimlum,
svo að það er auðvelt að klifra upp
í kassann. Tommi notar hann tii
ýmsra leikja. Hann getur verið búr
eða hús eða jafnvel skip, ef svo ber
undir. En svo má líka nota liann til
þess að lioppa niður af honum.
Og þegar Tommi loksins kemur
inn, þreyttur eftir dagsins erfiði, fer
hann til mömmu sinnar og biður
hana um að segja sjer sögu eða skoða
með sjer myndabækurnar. Og þegar
búið er að segja honum sögur dálitla
stund, fer hann kanske að dotta. Þá
háttar mamma hans hann, og að
vörmu spori er hann steinsofnaður
og sefur vært til morguns.
Svona líður dagurinn hans Tomma.
— Allir bestu havannavindltirnir
minirJ
— Já, næsta ár veröur hjerna
stór tóbaksalcur.
— Hann pabbi sagði sjátfur, að
jeg mætti gefa dýrunum!
S k r í 11 u r.
Mcðan glimukappinn svaf mið-
degislúr.
— Æ, lijálpl Þjer voruð rjett bú-
inn að hitta nýja hattinn minn.
— Eruð þjer viss um, að þjer
hafið ekki fleiri tegundir af skóm?
Það eru um 20 minútur þangað tit
jeg get sótt meðalið í lyfjabúðina.
— Vitið þið eldci, að það er hœttu-
legt að standa undir trje t þrumu-
veðri?
— Ha, eru þrumur núna?
I* Allt með íslenskuii) skipmn! _*]
GERIST ÁSKRIFEHDUR FÁL.KANS HRINGIS í 2210