Fálkinn


Fálkinn - 27.02.1942, Side 5

Fálkinn - 27.02.1942, Side 5
F Á L K I N N ó menningur þar nyðra liafi borið liið fylsta traust til rjettsýni valdsmanns sins og óhlutdrægni í dómum hans og úrskurðum. Verður þá ekki held- ur sjeð, að Þórður ætti alla sina em- bæltistíð, nokkurn tíma í útistöðum við nokkurn af sýslubúum og voru þó meðal þeirra ýmsir hjeraðsríkis menn og stórbokkar, sem ógjarnan vildu láta sinn hlut, er því var að skifta. Hitt er þó enn eftirtektar- verðara, að af öllum þeim dómum, sem hann dæmdi á 38 árum, verður ekki sjeð að áfrýjað hafi verið til æðra dóms nema 12 máluni alls. Og af þessum málum hlutu aðeins tvö ómerkingardóm i yfirrjetti, en i öðru þeirra staðfesti hæstirjettur dóm Þórðar! 1 þriðja málinu hefir dómur Þórðar að vísu verið stað- festur af yfirrjetti, en þar er honum þó dæmd 30 dala sekt fyrir, að hann byggi dóm sinn „mest og best á eigin meðkenningu hins brotlega um þýfið, en ekki á gildum vilnum" og yfirgengur sú sakargift leik- mannsvit þess er þetta ritar. Svo sem alkunna er var yfirrjett- ur framan af mjög natinn við að leita uppi alt, sem til áfellis mátti lclja undirdómurum við rannsókn mála og meðferð alla í hjeraði og er slíkt síst að lasta, þótt mann furði á, hve grimmur Magnús konferens- ráð einat't var sem dómstjóri i garð undirdómaranna. Því fremur er á- stæða til að veita því eftirtekt, sem segir í dómsástæðum yfirrjettar i einu máli, sem Þórður Björnsson hafði dæmt, en verið skotið til yfirrjettar. Orðin eru þessi: „Rjetti- lega hefir hjeraðsdómurinn með sínu snjalla og löggrundaða, slcarpvitra forsvarsskjali fyrir dómi sínum, skorið úr því efamáli, hvort kgl. brjef 25. júlí 1808 § 10 hafi hjer innleitt dönsk og norsk laga-ströff fyrir lausaleiksbrot, með neitun þess o. s. frv. Voru þetta meiri „com- pilment" úr penna Magnúsar kon- ferensráðs, en undirdómarar höfðu átt að venjast síðan er yfirrjettur komst á laggirnar og verður ekki skýrara vitnis krafist um hvert á- lit dómstjóri hefir haft á Þórði sem lagamanni. Annar dómurinn, sem yfirrjettur ógilti fyrir Þórði var um eignarrjett Múlakirkju að Þeista- reykjariámum svonefndum, en sig- urinn varð Þórðar alt að einu áður lauk, þvi að hæstrjettur staðfesti hjeraðsdóminn að öllu leyti, og Joótti vegur Þórðar vaxa mjög við þau úrslit. Það, sem Þórði sýslu- manni var til sjerstaks lofs talið i nýnefndum loflegum ummælum sjálfs yfirrjettar-dómstjórans, stóð í beinu sambandi við þann þátt í dómarastörfum Þórðar, sem alla tið einkendi þau, hve óljúff honum var að heimfæra til fslandi nokkur þau dönsk lög, sem að hans áliti ga! vafi leikið á, að hefðu hjer full laga- gildi! En með því vildi hann forð- ast það sker, sem mörgum dómur- um og yfirvöldum hafði hætt til að rekast í og einatt hafði komið til leiðar vandkvæðum og ósamhljóðan í lieimfærslu laga hjer á landi. Þórði Jónassen (síðar dómstjóra landsyfirrjettarins) sem um þriggja ára skeið hafði verið skrifari nafna síns í Garði, farast um húsbónda sinn látinn orð á þessa leið (i eft- irmælum, prentuðum í Viðey 1847): „Hann skrifaðist á við ýmsa laga- menn um rjettan skilning á þeim lagaboðum, sem mikið var i varið og útgengu fyrir Danmörku. en einkum Ijet hann sjer ant um að kynna sjer það, hvernig dómsstól- arnir skildu og heimfærðu lögin og hverjar grundvallarreglur, einkum i sakamálum, ættu sjer jDar stð, og hjelt liann þessu áfram meðan haun lifði“. Þess má einnig geta, að sjálfur amtmaðurinn, Slefán Þórarinsson, iileit það ekki undir virðingu sinni, að leita álits þessa undirmanns síns austur i Aðaldal, um skilning á ýmsu í lögum, sem amtmanni sjálf- um þótti tvirætt eða val'asamt. í uppskrift á dánarbúi Þórðar í skiftáprótokolli sýslunnar sjer þess glöggan vott á skránni yfir bækur sýslumanns, hve góðan bókakost han hefir búið við að því er snert- ir þá fræðigrein, sem honum lá næst sem lögfræðilegum embættis- manni og hve honum hefir leikið hugur á að „fylgjast sem best með“, með því fram á síðasta æfiár, að útvega sjer það, er merkast birtist á bókamarkaðinum lögfræðirita. En hitt er ekki síður eftirtektarvert, hversu bókaskráin einnig ber það með! sjer, að hann hefir til dauða- dags varðveitt dálæti sitl á guð- vísindalegum ritum og viðað að sjer ýmsum bókum af því tæi, sem mest orð fór af. —- Hvað eftir annað kom það fyrir, að Þórði sýslumanni voru falin sem setudóniara mál í öðrum hjeruðum, bæði í Eyjafirði (prótokollsmálið) og í Múlasýslum. Þannig átti hann sumarið 1801 lengi við rannsókn máls út af ólöglegri fjárupptekt og kyrsetningu á vörum, tilheyrandi prestunum Skafta Skaftasyni frá Skeggjastöðum og Stefáni Einars- syni á Sauðanesi, sem danskir assistentar og faktor við verslun á Vopnafirði höfðu orðið sekir um. Dæmdi Þórður assistentum og faktor 20 rdl. sekt til hvors prests, 30 rdl. í málskostnað og 5 rdl. til latækra. Tveim árum síðar (1803) dæmir Þórður, staddur að Hólmum i Reyð- arfirði, í „slagsmála-máli“, sem Guðmundur sýslumaður Pjetursson hafði höfðað gegn faktorunum i Eskifirði, Lever og sjerstaklega G. A. Rosing „fyrir illyrði, bit, hráka, löttraðk o. 1'1.“ Kom ýmislegt merki- legt fram í því máli, einkum varð- andi Guðm. sýslumann og bar eitt vitnið þar, „að sýslumaður G. P. snart altíð þegar hann hafi komið til þeirra dönsku kaupmanna (í Vopnafirði, Seyðisfirði og Eskifirði) hafi leitast við að fornerma þá og oftast verið mikið drukkinn." Urðn dómsúrslit þau, að „Rosing dæmd- ist til að sverja, að hann hafi ekki bitið sýslum. G. P. í kinnina, að öðrum kosti greiði hann 30 rdl. Fyrir 2 högg, sem Rosing hafi gefið G. P. samt lyrir jarðvarp greiði hann 3 lóð silfurs eða 27 rdl., en 3. höggið falli niður. Fyrir farar- tálma og sársauka greiði hann 10 rdl., en í málskostnað 20 rdl.“ Árið 1809 braust, sem kunnugt er, Jörgen Júrgensen, hundadaga- konungur, til valda úti hjer. Eins og samgöngum innanlands var hátt- að í þann tíð, voru frjettir einatt lengi að berast af Suðurlandi norð- ur í Þingeyjasýslu, og skotspóna- frjettum var illa treystandi svo hætt sem altaf var við, að þær hefðu aflagast á langri leið. Ræður því að líkum, að mönnum hafi í fyrstu veitl örðugt að leggja trúnað á aðr- ar eins furðufrjettir og þær, að æðstu valdsmenn landsins — sjáll'- ur stiftamtmaðurinn, bæjarfógetinn og einn af dómurum yfirrjettarins — hefðu verið fangelsaðir suður í Rvík, og þá ekki siður aðrar eins uppreisnar-frjettir og þær, að öllun: dönskum yfirráðum og stjórn í landinu væri lokið, allir danskir yfirvaldsmenn reknir úr embættum og allar danskar verslanir gerðar upptækar! Þó urðu menn að ganga úr skugga um, hver alvara væri hjer á ferðum, er sjálfur valdræn- inginn, Júrgensen kom norður i júli- mánuði. þótt síst yrði sagt, að hann kæmi þar með fríðu föruneyti, þar sem af 5 er með honum fóru í ferðina aðeins einn níaður var eftir af fylgdarliði hans, er hann eftir þetta tíu daga ferðalag hjelt aftur innför sína í höfuðstaðinn! í Jör- undar sögu dr. Jóns Þorkelssonar (bls. 87) segir, að Þórður sýslumað- ur „liafi ætlað að taka á móti Júrgensen með mannafla, ef liann kæmi norður yfir Vaðlaheiði“. En Jörundur komst aldrei svo langt, svo að þeim gat ekki lent saman þótf Jörundur flæktist norður i land. Á hverju dr. .1. Þ. annars byggir þetta, hefir þeim, er þetta ritar, ekki tekist að grafa upp og er næst geði að ætla að þetta sje ekki annað en tilbúningur til orð- inn löngu eftir að þessir viðburðir gjörðust. Hvenær Þórður í Garði hefir feng- ið fyrstu fregnir af því, er hjer var að gerast, verður ekki sagt með neinni vissu. Þó eru allar líkur til. að fregnin um norðurkomu Júrgen- sens hafi hafi fljótt borist austur í Aðaldalinn og þá um leið sú fregn, að ,Stefán amtmaður hafði færst pndan að gegna embætti undir hinni nýju stjórn. En stjórnarvaldatilkynn- inguna um hið nýja fyrirkomulag á stjórn landsins hefir Þórður ekki fengið fyr en 28. eða 29. júlí, og þvi liefir ekki komið til lians kasta að lýsa afstöðu sinni til hinnar nýju landsstjórnar fyrri. En eftir mót- töku auglýsingarinnar hefir hann ekki látið löngum togum skifta að taka þessa afstöðu, því að 2—3 dögum síðar (1. ág.) hefir hann beðist lausnar frá embætti sínu og embættisstörfum. Með því nú að ekki er til neitt uppkast að lausnar- beiðni Þórðar, er ókunnugt, hvaða ástæður hann hefir borið fram fyrir lausnarbeiðninni, en af upp- kasti Júrgensens að svari hans við henni, er auðráðið, að hún hefir verið dagsett 1. ág.; en lausnarveit ingin er aftur dagsett 10. ág. Sama dag hafa þeir báðir Stefán amtm. og Gunnlögur Briem sýslumaður verið leystir frá embættum og hef- ir hinn setti nýi amtmaður Guðin. sýslumaður Scheving flutt öll þrjú lausnarveitingarbrjefin með sjer norður, er hann kom þangað ný- dubbaður, til þess að taka við virðu- legu amtmannsembættinu. Þegar Þórður sýslum. þreni vikum eftir að hann hafði afsalað sjer embætti sínu, gefur í brjefi til liins setta amtmanns, kost á sjer til að halda áfram embættisstörfum til næsta vors, þá er þetta síst að skoða sem vott þess, að hann hafi „sjeð sjer þann kost vænstan að friðmælast við þá Jörund og G. Scheving“, eða að honum „hafi verið alveg hætt að títast á blikuna“, eins og Helgi Briem að orði kemst í hinni fróð- legu doktorsritgjörð sinni. Sýslu- maður tekur það sem sje fram i brjefi sínu, að hann geri þetta „eft- ir beiðni umtnumnsins (þ. e. Schev- ings) sjálfs“. Hefði sýslumaður gert þetta til þess að friðmælasl við Guðm. Scheving og Jörund, hefði hann naumast farið að setja nokkur skilyrði. En skilyrðin eru þau, að hann þurfi engan nýjan embættis- eið að vinna, er skuldbindi liann til að hylla stjórn erlends ríkis, en megi fylgja þeim lögum, sem hingað til hafa gilt, að stjórnin veiti hon- um lost laun fyrir yfirstandandi ár (til 1. júlí 1810), er nenri 200 rdl. og að hann hafi fult frelsi til að leggja niður embætti frá 1. júlí 1810, ef honum bjóði svo við að horfa, þykkjulaust af halfu stjórnarinnar. En fyrsta skilyrðið er hins vegar þess eðlis að Jörundi hefði verið ómögulegt að sinna þvi, ef fram- hald hefði orðið á hinu nýja stjórn- arfyrirkomulagi: Hitt má jafnvíst telja, að Guðm. Schevinc/ hafi verið hætt að lítast á blikuna, er hann beiddi Þórð að halda áfram til vors. Hvort sem það nú er að skoða sem i vilmælaskyni mælt af Boga í sýslum.æfnm (II. 143), að Jör- undur hafi „neytt“ Guðm. til að taka að sjer amtmannsembættið, eða þar er um sögulegt rjettliermi að ræða, þá var Guðm. nógu mikill vitmaður til þess, að það gæti dulist honum, hve erfitt mundi reynast að reka amtmannsstarfið með tvo bónda- menn í sýslumannssætum í Eyja- fjarðarsýslu og Þingey.jarsýslu, þar sem voru jieir Páll Benediktsson á Munkaþverá og Gísli Jónsson um- boðsmaður á Breiðumýri. En setn- ingarbrjef hins siðarnefnda hafði þó verið sent Þórði sýslumanni, og var enn ekki komið í hendur Gísla. Hins vegar kynni það að hafa rek- ið á eftir Þórði sýslumanni, að hon- um sjálfum hafi fundist hans kæru Þingeyingar verða hart úti, ef þeim yrði settur ekki meiri maður en Gísli var, til að vinna þar sýslu- mannsverk, og þetta meðfram orðið þess valdandi, að hann gaf kost á sjer, með ákveðnum skilyrðum þó, til að þjóna embættinu lil næsta vors, samkv. beiðni Guðmundar. Umrætt brjef Þórðar sýslumanns var ritað 23. ág„ en hefir aúðsjáan- léga ekki verið komið lil amtmanns- ins 25. s.m„ þvi að þann dag rit- ar Scheving Þórði sýslumanni og „ítrekar skipun sína (og Júrgen- sens) um að sýslumaður bjrt’i aug- lýsingar Jörgensens og skrásetji og geri upptækar. altar verslanir (þar í sýslu) án undantekningar, ásamt húsum þeirra, verslunaráhöldum og lausafje öllu, og sendi amtinu jafn- skjótt skýrslu um, að ]jað hafi fram- lcvæmt verið. Að amtið hefir þerin- an dag ekki verið búið að fá brjef Þórðar frá 23. ág„ er ennfremur auðsætt af því, að i þessu brjefi amtmannsins er Þórður beðinn um að tilnefna einhvern dugandi mann til að gegna sýslumannsstörfum tii bráðabirgða, „ef svo fari, að hann vilji ekki gegna embættinu áfram (sem amtið óski, að hann geri)“ — en sú klausa staðfestir bersýni- lega það, sem áður segir, að það hafi verið eftir beiðni amtmanns, að Þórður gaf kost á áframhahlandi þjónustu með nefndum skilyrðum. Af þessu brjefi hins setta amt- mánns má loks einnig ráða, að Þórður sýslumaður hefir látið sjer hægt um að birta auglýsingu Júr- gensens um valdatöku hans og þá eins um að gera upptæka verslun- ina á Húsavík (þvi að um aðrar verslanir var ekki að ræða, þótt amtmaður segi „allar versláriir"). Þvi að öðrum kosti hefði Scheving ekki farið að ítreka skipun sína þar að lútandi. Og sennilega hefir Þórður aldrei framkvæmt þær skip- anir, því að þar sem hann fjekk áldrei svar við brjefi sínu til Schev- ings 23. ág„ hefir hann skoðað sig lausan allra mála við sýsluna sam- lcvæmt lausnarveitingunni, þótt ekki hefði hann afhent embættið; en þetla kemur aftur heim við brjef Þórðar til Stefáns amtni. 9. sept., þar sem hann tjáir sig fúsan lil að taka aftnr við embættinu. Niðurlag þessa þáttar um Þórð Björnsson sýslu - mann verður birt f næsta tölublaði.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.