Fálkinn - 27.02.1942, Qupperneq 7
F Á L K I N N
7
Á Cyprus er aðalflugstöð Dreta i austanverðu Miðjarðarhafi. Meðal flugvjelanna þar er
Hurricane-sveit, sem tók þátt í orustunni um England og gerði þar út af við 120 þýskar
flugvjelar. Ein þessara Hiirricanevjela sjest hjer í fjörunni á Cyprus.
Fyrsta þýska sprengjuflugvjelin, sem var slcotin niður með
aðstoð enskra ATS-stúlkna fjell í valinn i næturárás á
England 1. nóvember s.l. Við byssurnar á þeim stað voru
það karlmenn sem skutu, en stúlkurnar önnuðust um mæl-
ingar og miðanir. Iljerna eru þrjár ATS-stúlkur að kynna
sjr útbúnaðinn á loftvarnarbyssum.
Sókn Breta í Lybíu, sú sem nú hefir snúist upp í vörn, hófst 18. nóvember, og eru þetta
fyrstu þýsku fangarnir, sem teknir voru í þeirri sókn. Fangar þeir, sem Bretar liafa tek-
ið í Afriku í sríðinu, hafa flestir verið sendir til Indlands og Ástralíu.
Áður en skipalest leggur í haf eru vendilega lögð á ráðin umt att sem förina snertir, og er
þessvegna mdkið undir þessum undirbúningi komið, að ferðin gangi vel. Hjer eru nokkr-
ar myndir þessu viðvíkjandi. 1: skipstjórar kanpskipanna fara i land til þess að sitja nm-
ræðufund um ferðina og fá þar fyrirskipanir um, hvernig þeir eigi að haga ferðinni. —
2: sömu menn að koma í land. — 3: Formaður siglinganefndarinnar talar til skipstjór-
anna, sem eiga að taka þátt í förinni. — ð: Skipin búast til burtfarar.
Þetta er stúlka að taka á móti skipun frá foringja sinum
við eina loftvarnarstöðina í Engtandi. Fjöldi stúlkna í
A.T.S. (Anxiliary Territorial Service) hetdur vörð dag
og nótt og stjórna merkjakerfum og miðunartækjum byss-
anna, en karlmennirnir hleypa af þeim. Eftir þvi sem
loftvarnarvirkjunum fjölgar vex þörfin fyrir þetta lið.