Fálkinn


Fálkinn - 27.02.1942, Blaðsíða 8

Fálkinn - 27.02.1942, Blaðsíða 8
8 F Á L K I M N TF) JÓÐSÖGUR segja frá göml- um hringum og öðru erfða- góssi, sem ávalt flytji eigendum ógæfu. Ef maður fer að blaða dálítið í þessháttar'sögum, kemst maður oft að þeirri niðurstöðu sem líka má þykja fyrirfram nærtækust — að kynjarnar í sambandi við atburðinn sjeu eig- inlega ekki stórfeldar. Því að það er eðlilegt mál, að dýrmætir hlutir gangi i erfðir, og að arf- ur hljótist í sambandi við dán- ardægur. Þessvegna sameinist tvent: dýrmætið og dauðinn í endurminningu þess, sem arfinn hlýtur. Auðvitað getur skýringin verið sú, að hið dýrmæta veki upp ágirndina, og hún hefir sjer- staka hæfileika til að vera undir- rót alls ills. En stundum nægir þessi skýring ekki — stundum er það í raun og veru eins og vondu ástríðurnar geti dregið einskonar djöfullegt andrúmsloft að ákveðnum hlut, andrúmsloft, sem stafar frá sjer lygi og svik- um, hatri og eitri, svo að þetta verki eins og hluturinn sjálfur geymi í sjer spilta sál, sem hugsi um ]>að eitt að verða öðrum til bölvunar. Manni liggur nær að halda, að þesskonar illvilji hafi búið í háu klukkunni, sem gestgjafinn í Eystra Törslev eignaðist fyrir nærfelt lnindrað árum. Það var síl'lakkandi prangari, sem kom með liana á bakinu, hagsandi og haltrandi, síðla nætur. Þetta var gainla manninum þung hyrði og undir eins og liann kom inn úr dyrunum rjetti hann úr sjer og Ijet klukkuna nema við gólf- ið, svo að dynkur heyrðist í. Það var hlátl áfram óhugnan- legt að heyra, hvernig undir tók i klukkunni. „Get jeg fengið húsaskjól hjerna?“ spurði gamli maðurinn og málhreimur hans var urg- andi og brakandi, eins og það væri klukkan sjálf, -sem talaði. Ivresten Madsen var um og ó að hýsa þesskonar umrenninga. Hann svaraði þessvegna ekki heint, að góðum og göinlum Svend Borberg: SIGURVERKIÐ jóskum sið, heldur úli á þelcju: „Hvaðan kemurðu?“ „Frá Nohiskrog,“ ískraði i gamla manninum og hann kýtli sjer niður undir gólf til þess að ná burðarböndunum af öxlunum á sjer — böndunum, sem hann hafði borið klukkuna í. Kresten Madsen hrökk í keng. Því að vísu er Nobiskrog bær, sem liggur suður við Gyllingás, en það er nú einu sinni svo, að í Jótlandi er það siður, að kalla dauðann sjálfan „manninn frá Nobiskrog“ eða „manninn frá Nobisse“. Og þessi gamli maður gat ómögulega verið þaðan, eftir málfæri hans að dæma, og ekki gat hann liafa komið þaðan síð- ast, nema liann hefði komið fljúgandi. „Fyr má nú vera óravegur- inn,“ sagði gestgjafinn eins og i gamni. En hinn svaraði engu. Kresten Madsen gaut augun- um til hans. Honum fanst gamli maðurinn hanga svo einkenni- lega þarna í böndunum án þess að hreyfa sig. „Gengur nokkuð að yður?“ sagði Kresten Mladsen upphált, ekki beinlínis til að fitja upp á samtali við gestinn, heldur til þess að reyna að kæfa niðri i sjer einhvern kynlegan ótta, sem að honum hafði sótt. En það kom ekkert svar. Þá vatt gest- gjafinn sjer, þótt þungur væri á sjer, fram fyrir afgreiðslu- borðið og að manninum. Hann sá þegar, að liann var dauður. Hann laut niður að líkinu og tók á augnalokunum: Jú, það var ekki að efa það. Kresten fjell á knje og signdi sig. En um leið og hann stóð upp var þvi likast, að mannhæðar- há klukkan rjetti úr sjer bak við gamla manninn. Hún hafði farið að ganga um leið og hún rakst í gólfið og það glampaði á skífuna á henni í bjarmanum frá borðlampanum, sem stóð á afgreiðsludiskinum. — Kresten fanst eins og hann stæði aug- liti til auglitis við lifandi veru. Og þessi vera hafði hart hjarta, sem brakaði í, og hvislaði í rykkjum: „Sjá — sjá! sjá — sjá! Það dró allan mátt úr Kresten gestgjafa. Það var eins og þessi stóra klukka hefði kramið þenn- an litla, gamla mann, sem var bundinn við hana, og væri nú að hrósa sigri. Ósjálfrátt hvísl- aði Kresten orðið, sem vant var að nota sem heiti um svona merkilegar klukkur, á hans gamla sveitamáli: „Sigur-verk! Sigur-verk!“ Svo hristi hann sig. Hann fann, að eitthvað varð hann að gera, svo að á skyldi sjá, að hann væri liúshóndi í sínu heim- ili — liann yrði að koma klukk- unni á sinn stað. Fyrst leysti liann höndin til þess að losa klukkuna við það, sem henni lylgdi, og svo færði hann hana út að þilinu inn í krók. Svo fór hann að athuga líkið. Engin skjöl voru á manninum, en talsvert af peningum. Iíresten var lieið- arlegur maður og ljet pening- ana vera. Svo lyfti liann likinu upp og setti það við borðið og tók pinklana, sem gesturinn hafði verið með og raðaði þeim á borðið. í þeim var auðsjáan- lega ekki annað en klútarusl og pjötlur, eins og pjötluprangarar eru vanir að hafa með sjer á flakki sínu. En úti i horninu stóð klukkan og hvíslaði sitt eilífa: „Sjá — sjá! sjá — sjá! Og Kresten gat omögulega stilt sig um að horfa þangað. Þetta var ljómandi fal- leg klukka. Hann gekk að lienni og grannskoðaði hana í krók og kring. Kassinn var vandaður og sterkur, efst á honum voru út- skornar blómamyndir. Á gul- bleikri skífunni voru myndir af öllu himinhvolfinu með sól, tungli, stjörnum og plánetum og dýramerkjunum — Birninum, Hrútnum og Fiskamerkinu. — Gangurinn var skýr og regluleg- ur. Hann rjetti varlega upp hend- ina og flutti vísirinn nærri því klukkutíma fram með fingrin- um, svo að klukkan sló. Hann hörfaði ósjálfrátt eitt skref aft- ur á bak. Þetla var svo liátíð- legt. Þetta var hljómur! Og nú laukst upp hleri og þar kom út kona, — riddarakona, og hún virtist vera hrædd við eitt- hvað. Og svo kom maður með brugðið sverð, sem var að elta hana. En þá hvarf hún inn í myrkrið um aðra lúku og ridd- arinn á eftir henni og svo skullu báðir hlerarnir aftur. Kresten Madsen sá ganginn í þessu út og inn. Ef flökkuprangarinn hefði lifað gat það hugsast, að hann hefði getað gert verslun við hann. Annað eins liafði nú skeð! Svona mönnum var að vísu nauðugt að láta úti beinharða peninga og Kresten var einn af þeim, sem átti hágt með að sjá af þeim kringlóttu. En það var oft hægt að hafa kgup á hinu og þessu. Það var stund- um hægt að láta gesti jeta ým- islegt út, og það var ekki altaf sem það vissi hvers virði það var, sem það hafði handa á milli. Og Kresten sjálfur var svo einkennilega ómóttækilegur fyr- ir tilhoð prangaranna. Hvað hefi jeg að gera við ruslið ykk- ar? sagði hann oft. ,Hann safn- aði ekki þessháttar það var satt. En óðalsherran á Hanbjerg, liann Kilericli, var sólginn i ýmislegt þesskonar og kom oft á krána, til að vita livort liann gæti ekki komist yfir eitthvað gamalt dót. Kresten klóraði sjer bak við eyrað. Bölvunin var sú, að eig- andinn skyldi vera dauður. Það var of seint að versla við liann. Hann yrði þá að ákveða verðið sjálfur! — Það var þungt að drasla með heila klukku á bak- inu og eigandinn hefði auðvitað orðið guðs lifandi feginn að losna við hana. Hann hafði of- gert sjer á þvi að burðast með hana og eflaust hefði honum fundist það gott og kristilegt mannkærleikaverk af Kresten hefði tekið liana upp í nætur- greiða og mat. En nú hafði hann hrokkið upp af áður en hann hafði neitt nokkurs, en vitanlega gat Kresten eklcert gert að því. Og ekki komst hann hjá að liýsa liann um nóttina, það var auðvitað mál. Rjett svona fyrir siðasakir tók Kresten fjórir ölkrúsir, sem hann liafði verið að þvo þegar flakkarinn kom inn, og setti þær á borðið hjá dauða mann- inum. Svo kallaði hann á son sinn og vinnumanninn og sagði þeim frá hvernig maðurinn hefði komið inn fyrir klukku- tíma. Hann henti á klukkuna — það var komið fram yfir háttu- mál. Þeir liöfðu kaupslagað um klukkuna og komið sjer sarnan gesturinn hafði fengið það sem hann setti upp og þeir höfðu drukkið kaupskálina. En svo hafði gesturinn hnigið fram á horðið og var dauður. — Þeir báru líkið út í hlöðu. Fólkið í sveitinni gaf þessum athurði lítinn gaiim. Það lá við að það hrærðist yfir því, að Kresten skyldi ekki semja stóran reikning á dauða mann- inn. Nú var liægt að koma hon- um í gröfina fyrir þessa pen- inga, sem hann hafði haft á sjer. Kresten þóttist viss um, að enginn mundi draga i efa, að hann væri vel að klukkunni kominn. En fyrsta kvöldið var honum þó eitthvað einkenni- legt innanbrjósts þegar hann gekk að klukkunni. Hann stóð gleitt fyrir framan hana þegar liún byrjaði að slá, og konan

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.