Fálkinn - 08.05.1942, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
Petla er canadiskur flagmaður úr svonefndri „alþjóðu-
flugsveit“ enska flughersins. í jiessari deild eru menn frá
fjöldamörgum þjóðum, víðsvegar úr heiminum.
Aðfaranótt 28. febr. eyðilögðu enskir strandhöggsmenn
þýska loftskegtamiðunarstöð i Bruneval, skamt frú Le
Ilavre. Komu strandhöggsmennirnir i fallhlífum yfir
stöðina, en að loknu verki þeirra voru þeir sóttir á
prömmum. Hjer sjásl landgönguœfingar af prömmunum.
Hjer eru tveir Suðnr-Afrikumenn á verði gegn óvinunum
í útjaðri Sollum, skamt frá egyptsku landamœrunum.
Myndin er frá vetrarhernaðinum í Rússlandi. Skíðasveitir frá Rússum elta Þjóðverja, sem
cru á undanhaldi fyrir sunnan Staraya Rúss a. Það var í þessari sókn, sem Rússar um-
kringdu 16. her Þjóðverja við Staraya Rússa. En Þjóðverjar hafa hatdið velli þar enn.
Dráttarbátar Breta hafa bjargað miklum verðmætum frá gini hafsins, með því að draga
biluð skip í höfn. Hjer sjest dráttarbátur með laskað skip,
Ameríkanska flugvjelaskipið Lexington, sem er 34.000 smálestir og systurskip Saratoga,
var fullgert 1927. Getur það borið 90 flugvjelar og er 830 feta langt, vopnað 8 fallbyssum
8 þumlunga, 12 5 þumlunga og 12 smærri fallbyssum. Kjölur var lagður að tólf nýjum flug-
vjelskipum árið 1940, og nú hefir fleiri verið bætt við.
Vegna loftárásarhættu hafa Bretar tekið upp á því, að gera flugvjelaverksmiðjur sínar
neðanjarðar, þar sem engin hætta er á að óvinirnir geti fundið þær og því síður eyði-
iagt þær. Myndin er úr gamalli grjótnámu, sem verið er að breyta í verksmiðju.