Fálkinn - 06.07.1945, Blaðsíða 10
10
F Á L K I N N
YHC/tU
LC/&N&URNIR
flvíta dúfan
í gamla daga var virki uppi á
háu fjalli; þar bjó ríkur og voldug-
ur riddari, sem átti mjög fagra dótt-
ur. Hún hét Inga.
Trausti sonur smiðsins og Inga
litla voru alltaf að leika sér saman,
og loks sagði riddarinn við dóttur
sína:
„Þú mátt ekki leika þér við son
siniðsins! Mundu að þú ert tigin
stúlka, og átt einhverntíma að gift-
ast ríkum og tignum riddara, en
sonur smiðsins verður bara smiður
eins og hann.“
Hún varð hrygg af þessu, og eina
liuggunin hennar nú var hvít dúfa,
sem Trausti hafði gefið henni.
Smiðurinn sagði við drenginn
sinn: „Nú verðurðu að vera dug-
legur að vinna og hugsa ekki um
Ingu, hún thæfir ekki þér.“
En þó að Trausti væri að vinna,
gleymdi hann ekki leiksystur sinni,
og í livert skifti, sejn livíta dúfan
kom flögrandi til hans, batt hann
blóm eða band við vænginn á henni,
það átti að vera kveðja til Ingu —
þá kunni fólk nefnilega ekki að
skrifa eins og núna.
En svo skeðu jtau hörmungartíð-
indi að ungfrú Inga livarf!
Einn morguninn vaknaði liún við
flautuspil, og sagði við þernurnar
sínar:
„Hver spilar svona fallega? Eg
vil lieyra þetta flautuspil betur.
Kallið þið á manninn hingað upp!“
En þetta var enginn maður, held-
ur lítill drengur með gula lokka
og skritna, langa flautu; liann spil-
aði fyrir ungfrú Ingu þangað til
henni fannst hún vera hamingju-
samasta stúlka i heimi.
Drengurinn gekk hægt og hægt
út úr kastalanum; enginn stöðvaði
liann, því að allir höfðu sofnað
nema Inga, sem elti liann lengra og
lengra, þangað til þau komu i
dimman helli uppi í fjalli — og
þar hurfu þau bæði!
Sá sem harmaði þetta mest var
Trausti, en loks sagði hann við
föður sinn: „Eg ætla að fara út
í veröldina og reyna að finna liana
Inguj ég get ekki afborið að lifa
hérna, meðan ég veit ekki hvað
orðið hefir af henni.
Smiðurinn svaraði: „Gerðu eins
og þú villt, drengur minn, en
hvernig dettur þér í hug að þér
takist þetta, þegar svo margir aðrir
hafa reynt það árangurslaust?“
„Mér -er sama, ég ætla að reyna,“
svaraði Trausti og daginn eftir reið
hann af stað. Hann hafði fengið
góðan hest, og sjálfur liafði hann
smíðað sér fallega brynju, svo að
hann var líkur riddara þegar hann
reið úr hlaði.
„Ef nokkur getur fundið Ingu
mina, þá er það liann Trausti.“
sagði riddarinn, „og ef honum tekst
það, þá skal hann fá hana fyrir
konu og erfa kastalann og aleigu
mína.“
Trausti reið nú áfram og fór i
gegnum þéttan og dimman skóg.
Hann villtist og vissi ekki livar liann
fór, en loks sá hann eitthvað livítt
flögra fyrir framan sig.
Hann starði forviða á dökku trén
— jú, þarna var dúfan, livíta dúfan,
sem liann liafði gefið Ingu einu
sinni!
„Ert það þú, Mjallhvít litla ?“
sagði liann og rétti höndina til
fuglsins.
Undir eins og hún heyrði hann
nefna nafnið, sem Inga hafði gefið
henni, kom liún fljúgandi og settist
á liöndina á honum.
Nú varð Trausti glaður, því að
liann gat sér þess til, að úr því að
dúfan væri þarna, hlyti Inga að
vera einhversstaðar ekki langt frá.
Hann tók litla bandið, sem Inga
hafði gefið honum einu sinni, og
sem hann hafði geymt svo vel, og
batt það í vænginn á dúfunni og
sagði:
„Fljúgðu nú, og segðu henni Ingu
að ég sé að koma og frelsa liana,
hvar svo sem hún er.“
Dúfan flaug burt og Trausti reið
í sömu átt meðan hann gat séð til
hennar.
Morguninn eftir kom dúfan fljúg-
andi aftur. .Bandið var horfið, og
Trausti sá að Inga hafði tekið það.
En nú var dúfan með hárlokk af
henni í staðinn.
Trausti elti nú dúfuiia gegnum
skóginn, þangað til hann kom að
stórri liöll; en þar var ekkert fólk
að sjá, og allt lokað og læst.
Þá opnaðist gluggi uppi á lofti
og nú sá Trausti Ingu, sem gægðist
út. Hún veifaði til hans og lagði
fingurinn á vörina; þá skildi hann
að hann átti að hafa hljótt um sig.
Eftir dálitla stund opnaðist hliðið
og glóhærður drengur kom út. Hann
gekk þangað sem Trausti var, og nú
stöðvaði Trausti hann og sagði:
„Hver býr í þessari höll, og
hvernig komst ungfrú Inga hingað?
„Æ, það er mér að kenna“ sagði
drengurinn og fór að gráta. „í höll-
inni býr tröllkarl, sem neyddi mig
til að spila á töfraflautu og ginna
hana burt. Og nú hefir hann rekið
mig, og ég veit ekkert hvert ég á
að fara — liklega rífa villidýrin
mig í sig.“
„Vertu óhræddur!“ sagði Trausti,
„ég skal hjálpa þér ef þú vilt hjálpa
mér. Ilvernig á ég að frelsa Ingu?“
,AlIir í höllinni sofa töfrasvefni
klukkan 12-1, sagði drengurinn,
„vörðurinn sefur meira að segja
líka, sjáðu bara!“
Og nú sá Trausti hvar vörðurinn
svaf við hliðið, en í glugganum uppi
stóð Inga og hvíta dúfan sat á
hendinni á henni.
„Nú veit ég ráð,“ sagði hann og
greip línuna, sem hann liafði liaft
með sér og slöngvaði henni upp í
gluggann. Inga greip í spottann og
innan skamms voru þau öll komin
burt frá höllinni og enginn hafði
orðið var við flóttann.
„Þetta eigum við dúfunni að
þakka, því að hún kenndi mér að
rata,“ sagði Trausti „Annars hefð-
um við aldrei fundið höllina, þvi
að hún var svo vel falin.“
„Góði fugl!“ sagði drengurinn
ineð gljóbjarta hárið og kyssti dúf-
una á nefnið — í sama bili heyrð-
ist yndislegur söngur og í stað dúf-
unnar stóð álfadís hjá þeim.
„Tröllkarlinn breytti mér í dúfu,
og í þeim álögum átti ég a vera
þangað til hann sonur minn kyssti
mig,“ sagði dísin. „En tröllkarlinn
licfði tekið liann til fanga og látið
liann gleyma liver hann var.“
„Nei, nú man ég l>að,“ sagði dreng
urinn. „Eg er prins í Dísalandi og
nú skal ég hefna okkar á tröllkarlin-
um.“
Það var eins og þétt þoka kæmi
úr öllum áttum og legðist að liöll
tröllkarlsins. Og þegar þokunni létti
þá var liöllin horfin.
k r í 11 u r.
ADAMSON slekkur smábruiw.
Noiuii: „Hvernig er best að kenna
stelpu að synda?“
tímnmi: „Best er að hjálpa lienni
varlega niður i valnið, leggja svo
liægri handiegg utan um mittið á
henni og.........
Nonni: „Nei hættu nú alveg. Það
er hún systir mín.“
Gummi: „Fleygðu lienni þá bara
fram af brettinu.“
= § =
Hvernig maffur fer aff því aff láta
lítinn bút af spegipylsu þekja stórt
brauff.
= § =
Frœnka: „Þegar ég var lítil sagði
mamma min, að ég mætti aldrei
gretta mig, þvi að þá mundi ég
verða svo ljót.‘
Sigga litla: „Þú getur þá ekki
kvartað yfir að liafa enga aðvörun
fengið.“
= § =
— Pubbi, má ég lána hestinn þeg-
ar maffurinn er búinn aff negla á
hann löppina?