Fálkinn


Fálkinn - 12.10.1945, Side 10

Fálkinn - 12.10.1945, Side 10
10 FÁLRINN VHGSVtf U/GNbURHIft ,--------------------- S k r í 11 u r i j Notaðu Það getur verið nijög gaman að læra náttúrusögu í skólanum, en j)að er margfalt skemmtilegra að gefa sjálfur gaum að dýralífinu í ríki náttúrunnar. Margir drengir og stúlkur geta farið í skógarför án jjess að verða nokkurs annars vís- ari en þess, að það eru lifandi ósköp og skelfing inörg tré í skóg- inum — og þann vísdórn liafa margir meðtekið á undan þeim! En það eru líka til drengir og stúlkur, sem uppgötva eittiivað nýtt, við nærri hvert fótmál. Það eru þau, sem kunna að nota augun. Við skulum nú einu sinni bregða okkur saman út í skóg. Þú notar augun vei, og allt í einu stendurðu grafkyrr! íkorna-angi kemur hlaup- andi með greniköngul, og ef liú bærir vitund á þér, þá þýtur greyið upp í næsta tré. Þetta er svo æsandi, að þú þorir tæplega að draga and- ann! Ikorninn tyllir sér nú alveg ófeiminn á trébút, tekur greniköng- ulinn á milli framfótanna og nagar skurnina til þess að komast að kjarnanum innan i henni. Það geng- ur fljótt. Nú fleygir greyið frá sér skurninni og þýtur upp í grenitréð, og þú getur haldið áfram. (1. mynd). Þú heyrir lágt skrjáf í visnuðu laufinu. Það er skógarmús, sem hef- ir yfirgefið holuna sína. Hún finnur líka greniköngul og vinnur að hon- um á sama hátt og íkorninn — en ef þú svo berð saman hina tvo af- nöguðu köngla, þá kemst þú að raun um, að músin hefir nagað jcfnar en ikorninn. Kröftugar barsmíðar gefa þér til kynna að spæta er að afla sér ætis — og sjáum til! Þarna er liún þá! Það er gamalt beykitré, sem hún er að rannsaka i von um lirfur og pöddur — og ef þú hefir nú sjónina i verulega góðu lagi, þá sérðu, að í djúpar rifur á berkinum á gömlu eikinni hefir verið stungið aragrúa af hnetum. Þar hefir spætan verið augun i að verki. Hún treður linetunum þéttingsfast í rifurnar á eikarberkin- um og heggur síðan á hontuskurn- ina með nefinu, þangað til hún nær kjarnanum. Sá, sem vill teljast verulega slung- inn skógarmaður, verður að kunna allgóð skil á flestu því, er þar ber fyrir augu. Til dæmis dýrasporum, skordýrum, fuglum og mörgu, mögru fleira. Geturðu treyst þínum eigin augum? Það getur komið fyrir að augun í þér gabbi þig. Það er ekki þér að kenna. Það stafar af því, sem kallað er sjónvilla, og hana er ekki hægt að varast. Hér hefirðu nokkur dæmi uin sjónvillu. Klipptu þau út úr hlaðinu og geymdu, þangað til það kemur rigningardagur. Þá get- urðu kanske skemmt þér og nokkr- um leiksystkinum þínum við þau. Copyright P. L B. Bo* 6 Copenhogen Adamson kemur með þvottinn. A. Hvort er stærra, drengurinn Olsen fulltrúi sagði við ungfrú Rannveigu: „Mig dreymdi yður i nótt.“ ,,Svo-o-o?“ sagði hún með tiu stiga kuldarödd. „Já, og svo vaknaði ég og lét aftur gluggann og breiddi auka- sæng ofan á mig.“ Maren í Ofanleyti fór til prests- ins til þess að kvarta undan svall- inu í manninum sinum. Hún vildi fá skilnað. „En hann er yður víst trúr, þrátt fyrir allt?“ sagði presturinn. „Eg veit ekki hvað ég á að segja um það. Eg er til dæmis alls ekki viss um hvort hann er faðir að síðasta barninu mínu.“ „Heyrðu Ilansi: — Hvernig geng- ur býflugnaræktin hjá þér?“ „Prýðilegá. Hún tengdamóðir mín var stungin Jirisvar í gær.“ B. Lóðréttu línurnar eru samsið- ungar. Eigum við að veðja? C. .Bilið a-b er jafn langt hilinu h-c. Mældu og sannprófaðu. — Segðu mér nú alveg eins og er. Finnst þér ekki vera tími til kom inn, að ég l'ái göngudragt að vera í? — Olga, það er einhver að hrópa á hjálp. Eigum við ekki að atlniga, hvað er að? Því J)á það? Við fáum áreiðan- lega að vita J)að í blöðunum á morg- un. Líkaminn og sálin. Framhald af bls. .9. um. „Hún fékk hægt andlát?“ Ég kinkaði kolli. — „Og dó ánægð. Hún liafði lokið hlutverki sinu. Nú cr ])að aðeins likami hennar, sem livilir hér, en sál Evu fer J)angað, sem eðeins hreinustu sálir fara. Og hún skal fá útför sem englum sæm- ir — því að liún lifði eins og dýrl- ingur — tæplega hefir hvítari og hreinni sál yfirgefið þetta sjúkra- hús.“ Hjúkrunarkonan starði forviða á mig. Það var móða á gullkrossinum á hrjósti liennar. Svo spurði hún lágt: „Hvað vitið þér um það?“ Ég hrosti. „Ég veit l)að vegna J)ess að ég hefi lykilinn að hjarta hennar, — og svo er annar, sem’veit það líka.“ Ég benti á gullkrossinn.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.