Fálkinn - 01.02.1946, Blaðsíða 1
FRÁ ÍNAFIRÐI
Fjöllin á Vestfjarðakjálkanum eru ekki einasta fögur og tignaileg heldur hafa þau og sína haglwæmu þgðingu, þar sem þau
rísa snarbrött upp af ströndum hinna þröngu fjarða og mynda þannig skjólveyg gegn stormum og fárviðrum, sem annars
eru svo algeng liér við land. Þetta veldur svo því að hafnirnar fyrir vestan eru flestar hin öruggustu skipalægi frá náttúr-
nnnar hendi. Mynd þessi frá ísafirði var tekin á einum þeirra blíðviðrisdaga, sem fjarðabúarnir íslenzku fá miklu oftar að
njóta en aðrir landar þeirra. Hrafnarnir spóka sig í mestu makindum á fjörusteinunum, en fyrir miðri myndinni sjást
bryggjur og önnur mannvirlci, sem bera vott um dugnað og framtak þeirra, er þennan stað byggja. Ljósm. Har. Ólafsson,