Fálkinn - 28.06.1946, Side 15
FÁLKINN
15
Vélaverkstæði Sigurðar Sveinbjörnssonar
Skúlatúni 6. Sími 5753.
FRAMKVÆMER:
SMlÐUM:
Hverskonar viðgerðir á Dieselmótorum
og Benzínmóto-rum.
Bobbinga úr járni fyrir mótorbáta.
Elnnftremur gróðurhús úr járni, mjög
hentug við samsetningu.
Rafkatla til upphitunar á íbúðarhúsum.
Rafgufukatla.
SOdarflökunarvélar o. m. fl.
Vjelaverkstæði
Sig. Sveinbjörnssonar
Sími 5753.
Framhald af bls. 3.
annari stúlkunni að ná hendi hans,
en hin stúlkan greip í axlir hans
um leið. Frú Ásdís gœtti þess að
báturinn héldi jafnvægi meðan
stúlkurnar drógu manninn inn. —
Stefán Þorvarðarson var alveg með-
vitundarlaus er liann bjargaðist.
Litla stund var beðið á staðnum til
að svipast um eftir hinum mann-
inum, en ekkert sást af lionum.
Óttuðust þær líka að Stefán myndi
deyja ef hann fengi ekki strax að-
hiynningu og var því róið lifróður
í land. Féklc Stefán meðvitund á
leiðinni. Mun Stefán hafa verið
búinn að gera tilraun til að kafa
eftir Skafta rétt áður en hann náð-
ist.
Um leið og komið var í land
komu menn frá Valhöll þangað, réru
þeir strax út á slysstaðinn og voru
þar um stund, en árangurslaust.
Farið var með Stefán heim í sumar-
bústaðinn og var hann háttaður
niður í rúm og gefið heitt að
drekka. Iíom læknir síðan mjög
fljótt og mun liann hafa verið rúma
hálfa klukkustund frá Reykjavik,
var það Árni Pétursson. Hresstist
Stefán mjög fljótlega.
Ólafur Thors, forsætisráðherra,
sem var í sumarbústað sínum er
þetta gcrðist, brá strax við, er
honum barst fregnin um slysfar-
irnar, réri út að slysstaðnum, en
er þangað kom höfðu stúlkurnar
bjargað Stefáni.
Allar konurnar, sem nefndar hafa
verið, sýndu frábært snarræði við
NINON
Samkuæmis-
□ g kuöldkjólar.
Eítirmiðdagskjólar
Peysur og pils
UaítEPaði'p
silkisloppap
□g suefnjakkap
Mikið Iitaúrual
5ent gegn póstkpöfu
um alit iand. —
Bankastræti 7
þessa björgun og má fullyrða að
engu hefði mátt muna svo að Stefán
færist ekki einnig. — Frú Ásdís
hefir alltaf verið hálf hrædd við
vatnið, en að þessu sinni fann hún
ekki til hræðslu. „Það var enginn
tími til að hugsa um það“, segir
hún.
Þrjár nýjar bækur
1. Lokuð sund.
Ferðasögur nokkurra íslendinga frá Þýskalandi. Dr. Matthías
Jónasson safnaði og bjó til prentunar. í bókinni eru átta sagn-
ir, og þar lýsl liinum ótrúlegu örðugleikum, er landar okkar
áttu við að stríða, er þeir reyndu að brjótast heim að loknum
ófriði. Fyrirsagnir kaflanna eru þessar: Straumrót, eftir Matthí-
as Jónasson. — Flugsandur (Næturstaðir, Þrir dagar i Rostock
Veikindi, Sveitasæla, Flóttafólk, Brottförin, Á leiðarenda), eftir
Gabriele Jónasson. — Brotnar eru borgirnar, eftir M. J. — Hver
er náungi minn? (Kjallarasamkvæmi, Einkennilegt næturlíf,
Öngþveiti, Grænir samferðamenn, í hringiðu flóltans), eftir
Matth. Jónasson. —Á flótta, M. J. ritaði eftir frásögn R. W. —
Þegar Hamborg brann, eftir Máriu Henekeil. — Kynleg brúð-
kaupsferð, eftir J. F. -—■ Ferðasaga Ingimundar Steinssonar (Rúss-
arnir koma, Á pramma yfir Eystrasalt, Landtakan, Ingimundur
l'er aftur til Þýskalands, Frá Flensborg til Kaupmannahafnar).
Frásögu þessa ritaði dr. Matth. Jónasson eftir Ingimundi sjálfum.
Dr. Mattli. Jónasson segir svo frá því, hvernig bók þessi varð
til: „Sólheiða daga og sumarbjartar nætur var margt skrafað á
Esju, á leiðinni frá Kaupmannahöfn til Reykjavíkur, 1.—8. júli.
Vinir hittust þar og frændur, sem ekki liöfðu sést mörg ár, og
liver liafði sína sögu að segja. Með látlausum orðum sögðu menn
frá ferðalögum og örlagaríkum viðburðum, hættum og ótta,
djörfung, þrautseigju og hamingjusömum endalyktum. Og við vor-
um á leið lieim, i ríki hinna hjörtu nátta — heim til íslands.
Var okkur ekki best að breiða blæju þagnarinnar yfir allt það,
sem við höfðum orðið sjónarvottar að á hinum skuggalegu nótt-
um Mið-Evrópu? Var ekki skynsamlegast að grafa það í gröf reg-
iudjúprar gleymsku? En björt sumarnóttin lýsti inn í hugskot
okkar, og jökulsvöl tign heimskauta himinsins seiddi fram hina
trylltu og blóðheitu andstöðu sína frá suðrinu. Við gátum ekki
þurrkað burt þær myndir, sem höfðu grópað sig inn í vitund
okkar. Þess vegna varð okkur skrafdrjúgt .... Það var við að
hlusta á þessar frásagnir, að fyrst vaknaði hjá mér sú hugmynd,
að þær' ættu crindi til fleiri manna en þarna heyrðu þær“.
Þessi bók mun verða mikið lesin. Hún er spennandi eins og
skáldsaga og lýsir þó einum ömurlegasta kaflanum í æfi þjóða
og einstaklinga.
2. Lilli í sumarlsyfi, eftir Þórunni Magnúsdóttur.
Lilli er tveggja ára snáði, sem á heima í Reykjavik. Hann er
liár eftir aldri, grannur og fagurlimaður með slétt, glóbjart hár,
blá augu og bústnar kinnar. Hann bjástrar allan daginn, starfar
og leikur sér, af því að liann er heilbrigður og vinnuþráin er
vöknuð í sál lians ... Mamma strýkur upp ljósa ennislokk-
inn, kyssir bjarta, breiða ennið og býður Lilla sínum góta nótt.
„Sofðu ljúfa sólskinsbarnið mitt, svifðu inn í draumalandið þitt“
Mörg konan mun lesa þessa bók fyrir börnin sín, og bæði móð-
ir og barn liafa af því mikla ánægju.
3. Ljóðheimar, eftir Einar Marlcan.
Flesir íslendingar þekkja söngvarann Einar Markan. Hér gefst
mönnum tækifæri til að sjá hann i nýju ljósi. Þetta er önnur
ljóðabók Markans, röskar 100 blaðsiður að stærð. Þeir sem
safna Ijóðabókum, mega ekki gleyma þessari. Fyrri bók hans
er uppseld.
Bókaverzlun ísafoldar
*♦♦♦♦<
Rafvélaverkstæði
Hafldórs Ólafssonar
Njálsgötu 112 — Sími ;4775
Framkvæmir:
Allar viðgerðir á rafmagns-
vélum og tækjum.
Rafmagnslagnir í verksm.
og hús.