Fálkinn


Fálkinn - 20.02.1948, Page 2

Fálkinn - 20.02.1948, Page 2
2 FÁLKINN Gleypir í sig blöðin. — Það er kallað að gleypa í sig blöðin, þegar maður les þau í flug- hasti með morgunkaffinu. En þó gera menn það ekki jafn bókstaflega og geitin hár á myndinni. Geitur éta margt skrítið, og hafa til dæmis mikl- ar mætur á munntóbaki. ★ * ★ * * — Ekki veit ég' hvað gengur að manninum mínum, María, sagði frú- in við vinnukonuna. — Hann tísti eins og fugl þegar hann fór að lieiman i morgun. —• Æ, það er allt mér að kenna. Eg tók hænsnabygg í misgripum þegar ég sauð hafragrautinn í morg- un. Leopold konungur fer í ferðalag. — Leopold fyrrverandi Belgíukonungur hefir farið í ferðalag lil Havanna á Kúbn. Mynd þessi var tekin á flugvellinum í Geneve við brottförina. Frá vinstri: Mme Ferrier, forseti golfklúbbs Geneve, Chav- lotte prinsessa. Baudoin prins, de Rethy prinsessa og Leo- pold konungur. — Charlotte prinsessa varð eftir í Lissabon, en Leopold, de Rethy og Baudoin fóru til Havanna. Charlotte ætlar að ferðast til Mexíkó. PENICILLIN VIÐ KYNSJÚKDÓMUM Herlæknar, sem höfðu undir hönd um 75 sjúklinga með syfilis, liafa komist að þeirri niðurstöðu, að með þvi að sprauta sjúklingana með pencillíni einu sinn á dag í átta daga samfleytt, verður árangurinn betri en með því að sprauta sjúkl- inginn átta sinnum sama daginn. Og það er hentugra, því að með fyrri aðferðinni getur sjúklingurinn gengið að vinnu. I ráðuneyti Schumans, sem myndað var í nóvemberlok, er ein kona ráðherra. Það er heil- brigðismálaráðuneytið sem hún stendur fyrir, og gengur hún að starfi sínu með oddi og egg. Hér sést frúin vera í skoðunar- ferð á barngheimili í París og er með hvítvoðung á handleggn um. Frúin heitir Poinsol-Cha- pyus. Egils ávaxtadrykkir H raðf rysti hús Útvegum og smíðum öll nauð- synleg tæki fyrir hraðfrystihús. 2-þrepa frystivélar 1-þreps — — — hraðfrystitæki ísframleiðslutæki flutningsbönd þvottavéiar. Umboðsmenn fyrir hinar lands- kunnu ATLAS-vélar. H.F. HAMAR REYKJAVlK Símn.: Hamar. Sími: 1695 (4 lín.) Barnið yðar getur líka fengið fallega hrokkið hár, með því ein- ungis að nota Nestol Yfir 30 ár liefir þetta undursam- lega efni verið notað víðsvegar um heim af þúsundum mæðra sem með hjálp NESTOL liafa fengið barnshárið hrokkið, þykkt og áferðarfallegt.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.