Fálkinn


Fálkinn - 20.02.1948, Page 3

Fálkinn - 20.02.1948, Page 3
FÁLKINN 3 Menn, sem talað er nm: Rúgbrauðsgerðin h.f. byrjar framleiðslu rúgbrauða í iðnaðarhverfinu inn við Borg- artún er nú risið geysimikið stór- liýsi, þar sem framleidd munu verða rúgbrauð og hrökkbrauð i svo stór- um stíl, að það fullnægi eftirspurn- inni i Reykjavík og Hafnarfirði og öllum nærsveitum og þorpum. Það er Rúgbrauðgerðin li/f, sem þar er til húsa. Er hrökkbrauðsgerð ])egar hafin, en rúgbrauðsgerð getur ekki hafist undir eins, þar sem eitthvað vantar af stykkjum í vélarnar. Hrökkhrauðsgerð er alger nýjung í iðnaði hér á landi. Framleiðslunni er þannig hagað i stórum dráttum: Rúgmjölið fer beint frá mylnu á efstu hæð hússin's í „silo“, sem opnast niður i vinnslusalinn fyrir neðan. Er það látið í kör, sem deig- ið er búið til í. Með sjálfvirkum vél- um er deigið svo sogað inn í vél, sem fiytur deigið út og mótar það. Þar tekur stúlka við brauðinu og setur það í hefskáp, þar sein jiað er um 20 mínútur. Flyst það á bandi, sem flytur það inn í hök- unarofninn. Þaðan flyst það með sjálfvirkri vél í þurrkofn. Það tek- ur 3 klst. frá því brauðið er sett í hefskápinn, uns jiurrkofninn skilar þvi fullunnu til pökkunar. Pökkun- arvélarnar sjálfar eru ekki enn komnar, og til bráðabirgða vinna jiví nokkrar stúlkur að innpökkun. Framleiðslumagnið kemur til með að verða 3500 pk. á dag. í hverjum pakka verða 16—17 hrökkbrauðs- sneiðar og jiyngd pakkans minnst 230 grömm. Eru brauðin mjög Ijúf- feng og holl, og þess má geta, að hrökkbrauð er fyrirtak án smjörs, ef síld er liöfð ofan á. — Allar vélarnar eru fengnar frá Svíjijóð, nema innpökkunarvélarnar. Þær koma frá Danmörku. Bakarameist- ari verður Kristinn Kristinsson. Hefir hann unnið við líkan iðnað í 11 ár og kynnt sér sérstaklega hrökkbrauðsgerð í Svíþjóð. En bæði Danir og Svíar liafa framleitt hrökk- brauð til útflutnings. Umbúðirnar, sem hrökkbrauðið er selt í, eru mjög fallegar öskjur, búnar til hér á landi, og einnig eru loftþéttar pappírsumbúðir um hvern pakka. Einnig er liægt að fá keypta stóra kassa með mörgum litlum pökkum í. Er jiað lientugt fyrir skip t. d. Og til jiess að gera l>að tiltölulega ódýrara eru einungis loftþéttu umbúðirnar um hvern pakkann en skrautöskjunum sleppt. Þær hrökkbrauðsneiðar, sem ó- Iánlqgar verða í laginu eftir þurrk- unina eru malaðar í rasp i sérstakri vél. Raspurinn er síðan settur í glæra, litla poka. Verða þeir seldir i búðum, og mun sú nýjung liús- mæðrum kærkomin. J. Harold Wilson heitir verslun- armúlaráðherra Breta, sá er tók við því embætti þegar Attlee gerði sir Stafford Cripps að fjármálastjóra fíreta. Wilson er talinn mikill dugnaðarmað- ur. Hann er aðeins 31 árs og yngsti maðurinn í stjórninni. Áður var hann vararáðherra utanríkisverslunarinnar. Nýr lögreglustjóri í Reykjavík A ríkisráðsfundi 13. febrúar var Sigurjón Sigurðsson skipaður i em- bætti lögreglustjóra. Hefir Sigurjón gegnt þvi embætti, frá þvi er fyrrv. lögreglustjóri lét af embætti í ágúst í fyrrasumar. Sigurjón er sonur Sigurðar Björns- sonar brunamálastjóra, 33 ára gam- all. Embættisprófi í lögfræði lauk liann 1941. 1. jan. 1944 varð hann fulltrúi lögreglustjóra. Joseph Cyrankiewicz. Þetta er forsætisráðherra Pól- lands, sem í vetur snemma hvatti jafnaðarmenn og kom- múnista til þess að ganga sam- an í einingarflokk til þess að berjast gegn „ameríkönskum auðkýfingum og striðsæsinga- mönnum". Þetta var um líkt leyti og bændaflokksforingjarn- ir voru að flýja frá Póllandi til þess að bjarga lífi sínu, og geta menn farið nær um, hvort það voru, kommúnistar eða hæg- fara sósíalistar, sem áttu að ráða í þessum „sameiningar- flokki alþýðu“ þar í Póllandi. Douglas Fairbanks jr. lcvik- myndaleikarinn alkunni liefir nú gengist fyrir fjársöfnun til bágstöddu landanna í Evrópu og fengið fjölda kvikmyndaleik ara í lið með sér. MATVÆLI LOFTLEIÐIS. Á surnura dönsku eyjunum og í fjörðum Noregs er svo mikill ís, að staðir hafa algerlega útilokast frá umhciminum, jiví að skipagöng- ur urðu óldeifar. Matarleysi varð á sumum þcssum stöðum og liafa flug- vélar verið sendar þángað og látn- ar varpa niður pósti og ýmsum lífsnauðsynjum. Ymsir innfirðirnir í Sogni eru í hafnbanni sökum íss. Konrad greifi af Praysing róm- versk-kaþólski biskupinn í Ber- lín hefir verið boðinn i heim- sókn til Englands af erkibisk- upnum af Westminster, Griffin kardínála. SKRIFFINNSKAN. Það er flókið að vera Svíi. Á- kvæðin, reglugerðirnar og eyðu- blöðin cru orðin svo mörg að firn- um sætir. Ef hjólreiðamaður er tek- inn fyrir að hafa enga bjöllu á hjól- inu, liá lendir þetta meir á lög- regluþjóninum en hjólamanninum. Hann sleppur nfl. með 5 króna sekt, en lögrcglumaðurinn verður að út- fylla fimmtán eyðublöð viðvíkjandi málinu!

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.