Fálkinn


Fálkinn - 20.02.1948, Page 6

Fálkinn - 20.02.1948, Page 6
6 FÁLKINN Myndaframhaldssaga eftfr Kapteln Marryat: Börnin í Nýjaskógi Á fyrstu kránni, þar sem Edvard fékk sér hressingu og gistingu á leiðinni til Karls konungs, voru þrír ófrýnilegir náungar, sem reyndu að amast við honum á all- an iiátt. Næsta- morgun þegar hann lagði af stað aftur, sá hann, að þeir þeystu burt frá kránni á hest- um sínum. Það var því ekki óeðli- legt, að Edvard skoðaði hyssu sína og púðurbirgðir. Hann kynni að þurfa á því að halda. Er hann liafði riðið spölkorn á veg, kom riddari þeysandi á gæð- ingi sínum, og 3 menn eltu hann. Þekkti hann þar aftur menhina frá kránni. Skiptust þeir á nokkrum skotum við riddarann, og' lauk því svo' að einn féll af þremenning- unum. Edvard greip ])á líka til byssu sinnar og skaut annan lags- bróður hans. Sá þriðji sneri á flótta. Riddarinn þakkaði Edvard lið- veisluna og tók hann tali. Kom þá brátt á daginn, að þeir ætluðu báð- ir á fund Karls konungs og samein- ast iier hans. Að undirlagi Chaloners, hins nýja vinar Edvards, komu þeir við á óðalssetri einu. Var þeim vel tekið þar og veitt rausnarlega. Chaloner hafði nóg af fallegum búningum meðferðis og lét liann Edvard fara i einn. Gaf það honum tigulegri svip, svo að hann féll nú betur í smekk heldra fólksins á óðalssetr- inu. Her Karls konungs var mílu veg- ar frá óðalssetrinu, og snemma næsta morgun gengu þeir Edvard og Chaloner á fund framvarðanna, tilkynntu nöfn sin og báðu þess að verða leiddir fyrir konung. Edvard var nú farinn að kalla sig Beverly- nafninu, aðalsnafni föður síns. Karl konungur var undrandi, en feginn. að sjá elsta son Berverlys öfursta. „Eg hélt að öll hörn Beverlys hefðu farist í eldinum, þegar höllin var brennd“, sagði hann. Strax á næsta degi fékk Edvard eldskírn sína. Iler konungs lagði til orrustu við her Cromwells, en beið ósigur. Kóngurinn varð að fara í útlegð úr landi. Edvard og Calo- ner ákváðu að leita hælis í Nýja- skógi ásamt Grenville liðsforingja. Til þess að leiða frá sér athygli og verða ekki teknir til fanga, klætld ust þeir i einkennisbúning lier- manna Cromwells, og eftir ævin- týralegt ferðalag komust þeir lieim í skógarvarðarkofann í Nýjaskógi. JEWISH AGENCY. Framhald af bls. 5. skyldi sjá J. A. fyrir skrifstofum og skipa stofnuninni framkvæmdanefnd og ráð. Var Jewish Agency nú stofnað op- inberlega, sem ráð Gyðinga undir al- þjóðlegri vernd. Þær 52 þjóðir, sem stóðu að þvi að Brelum var falin stjórn Palestinu, áttu að hafa samvinnu við Jewish Agency. í 4. gr. Palestínu-umboðsins segir: „Zionistahreyfingin skal viðurkennd meðan skipulag hennar er í sama anda sem umbjóðendurnir hafa viðurkennt. í samráði við Bretastjórn skal hún gera ráðstafanir til að tryggja sam- vinnu allra þeirra Gyðinga, sem fúsir eru til að aðstoða við stofnun þjóðar- heimilis fyrir Gyðinga. í dag er Jewish Agency fulltrúi allra þeirra Gyðinga í heimi, sem vinna að stofnun þjóðarheimilis fyrir Gyðinga í Palestinu. Það er að segja fyrir rneiri hluta allra Gyðinga. Það eru ekki að- eins þær nær tvær milljónir Gyðinga er meðiimir eru í World Zionist Org- anization, sem standa að Jewish Agency heldur öll hin stærri Gyðinga- félög önnur, svo sem Board of De- puties of Britisli Jews American Jewish Committee o. fl. o. fl. Gyðingafélögin víðsvegar um heim kjósa meðlimina í J. A., en þeir njóta alþjóðlegrar viðurkenningar, sem full- trúar Gyðinga. Allt það starf, sem unnið liefir ver- ið fyrir Gyðinga i Palestinu hefir ver- ið undirbúið af Jewisli Agency. Á síð- ustu 30 árum hafa stórfelldar fram- farir orðið í landinu: landbúnaður, iðnaður, samgöngumál, menningar- og heilbrigðismál er gerbreytt. — Hefir Jewisli Agency haft hinn mesta sóma af þessari viðreisn. Starf J. A. er tvíþætt, annars vegar fyrir því, að Gyðingum verði leyft að koma til Palestínu, liinsvegar að tryggja lífskjör þeirra, sem i landinu húa. Þjóðsjóður Gyðinga (Keren Kaye- meth Leisraeljkaupir jarðnæði handa landnemum. „Fimm aura á dag i hláu byssuna“ er viðkvæðið, og á þúsundum Gyðingaheimila má sjá hláu sparibyssuna með „merki Davíðs kon- ungs“ hangandi á þilinu. Zionistafé- lögin víðsvegar um heim senda menn sína til að tæma byssurnar við og yið og skila peningunum til Palestinusjóðs ins. Jewish Agency hefir líka annan sjóð, nfl. endurreisanar- og nýbýlasjóðinn (Keren Haysod). Þessir peningar eru notaðir sem rekstursfé og til kaupa á verkfærum, landbúnaðarvélum o. s. frv. Annars eru verkefnin margþætt. — Jafnframt því að vinna að viðreisn- inni og koma fram fyrir höndGyðinga út á við, er Jewish Agency einskonar framkvæmdaráð í Palestinu. Nýlega hefir verið stofnuð fréttastofa fyrir Gyðinga, Palcor Agency, sem hefir samband við erlend blöð viðsvegar um heim. Aðalsetur Jewish Agency er i Jerú- salem. Það starfar þar i eftirfarandi deildum: Stjórnmál fjárhagsmál, land- búnaður, innflytjendadeild, verkamál verslun og iðnaður, liandverk og smá- iðnaður, hagfræðirannsóknir, tækni, hagskýrslur og blaðaútgáfa. Útibú er í Lundúnum og smærri skrifstofur í New York og Genua. Zionistafélögin halda þing annað- livert ár. Fulltrúarnir eru kosnir af Frh. á bls. Í4.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.