Fálkinn - 20.02.1948, Page 7
FÁLKINN
7
Sir Oswald Mosley, hinn enski
fasistaforingi og fyrrverandi
kommúnisti, sagði blöðunum frá
því snemma í vetur, að eftir ný-
árið ætlaði liann að stofna nýf,-
an stjórnmálaflokk ——— ,ensk-
an sameiningárflokk" kallaði
hann hann. Vitanlega er þetta
fasistaflokkurinn endurfæddur,
en ekki virðast Bretar neitt
liræddir við hann, því að þeir
lofa Mosley að lialda fundi og
prédika einræði núna, þó að
vissara þætti að hafa hann inni
á stríðsárunum. Má gera ráð
fyrir að þessi „saméiningar—
flokkur“ nái ekki meira fylgi
en flokkur Quislings forðum,
sem hét „National Samling“.
Undanfarið hafa fylgismenn
Mosleys ekki viljað sýna á sér
réttan lit, en víðsvegar um land
hafa verið starfandi 51 „lestr-
arfélög", fyrir áhangendur hans.
Nú verður myndað úr þeim eitt
samband þegar „sameiningar-
flokkurinn“ fæðist. — Hér er
mynd af hinum enska páfagauk
Hitlers og Mussolinis.
Efni í peninga. — Þetta er ekki
listaverk eftir surrealistiskan
málara og heldur ekki nýtísku
steinsteypubrú. Það er bara
pappír, sem hangir til þurrks í
pappírsgerð Fralcklandsbanka,
en myndin tekin undir óveniu-
legu sjónarhorni. Pappírinn á
að notast í seðla.
Attlee heiðursdoktor. Forsælisráðherra Englands, Clement Attlee,
sést hér á hinni hátíðlegu stund, þegar jarlinn af Athlone út-
nefndi hann heiðursdoktor við háskólann í London.
Frá Jerúsalem. — Á þessu ári
hverfur hin breska stjórn á
burt úr Palestínu með her sinn,
eftir að hafa haft umsjá með
landinu síðan í fyrri heims-
styrjöldinni, sér til mikils ama
og skapraunar. Nú er það nefnd
frá UNO, sem á að sjá um að
skipting landsins fari fram með
friði og spekt en að svo búnu
eiga Gyðingar sjálfir að ráða
sínum hluta og Arabar sínum.
En því fer fjarri að nokkur lík-
indi séu til að sú skipting geti
farið fram vandræðalaust, því
að báðir aðilar steyta hnefann
og hóta öllu illu, einkum Arab-
ar. Hefir það mátt heita dag-
legur viðburður undanfarið, að
Arabar hafi farið ránshendi um
eigur Gyðinga, brennt og rænt
hús þeira og því um líkt. Og
Gyðingar hafa ráðist á arabisk
hús í sínum borgarhluta í Jerú-
salem. — Hér á myndinni sést
kristinn Arabi mála arabisk
merki á hús sitt, sem stendur í
Gyðingahverfinu.
40 ár á konungsstóli. — Hinn 8.
desember síðastliðinn voru kO ár
liðin síðan Gustaf Svíakonung-
ur tók ríki eftir föður sinn.
fíæði Vilhelmína Hollandsdrottn
ing og Hákon Noregskonungur
hafa lengri stjórnmálaferil að
balci sér, en Gustaf konungur
er þeirra langelstur að árum,
fíæði Englendingar og Skotar eru fastheldnir á gamlar venjur
og þykir gaman að skrautsýningum á löngu liðnum merkisat-
hurðum. Mynd þessi er frá hátíðahöldum í Arboath Abbey í
Skotlandi, þar sem stæld er athöfnin, sem fram fór við yfirlýs-
ingu um sjálfstæði Skotlands árið 1320. Barónar Róberts I. kné-
krjúpa fyrir altari. —- Robert I. eða Robert the Bruce, eins og
hann var kallaður, var skoskur aðalsmaður, sem eftir langvar-
andi baráttu við Englendinga vann frelsi lands síns eftir orr-
iistuna við Bannockburn árið 131k.
því að liann var orðinn VJ ára
er hann tólc ríki. En þrátt fyrir
að hann var svo fullorðinn hef-
ir honum auðnast að sitja leng-
ur á konungsstóli en nokkrum
öðrum sænskum konungi. Og
annað met hefir hann: enginn
þjóðhöfðingi í veröldinni hefir
orðið eins gamall og hann. Sá
sem næstur komst var Franz
Jósep Austurríkiskeisari, sem
varð 86 ára. En hann var aðe.ins
18 ára er liann tók ríki og sat
því við völd í 68 ár.