Fálkinn - 20.02.1948, Qupperneq 14
14
FÁLKINN
Samsöngur Tónlistarfélagskórsins
Tónlistarfélagskórinn hefði söng-
skemmtun í Austurbæjarbíó í síð-
ustu viku. Söngstjóri var Victor
Urbantschitsch. Húsfyllir var áheyr-
enda og góðar undirtektir. Þessi lög
voru á söngskránni: Anton Bruckn-
er: Huggun í tónum; W. A. Mozart:
Fagra land; Edvard Grieg: Hvad
est du dog skjön; Sigfús Einarsson:
Fjallkonan; Ólafur Þorgrimsson: Eg
elska yður þér íslands fjöll; Hall-
grímur Helgason: Kvöldljóð: Sig-
fús Einarsson: Ofan gefur snjó á
snjó; Sigursveinn Kristinsson:
Amma raular í rökkrinu; Baldur
Andrésson: Hart er lirafnabrjóstið;
Jónas Tómasson: Kvöld; Björgvin
Guðmundsson: Syng, frjálsa land;
George .Bizet: Fjögur lög úr óper-
unni „Carmen“.
Baldur Páhnason, Svava Þorbjarn-
ardóttir og Ólafur Magnússon sungu
einsöngva við mikla hrifningu á-
heyrenda.
Maðurinn með tískuhattinn. —
George Brackman heimtar fullt
jafnrétti karla við kvenfúlk og
þar á meðal að karlmenn megi
skregta hatta sín á frumlegan
hátt. Hér á myndinni er sýnis-
horn af hatti, sem Brackman
hefir skregtt handa sjálfum sér,
og til þess að undirstrgka að
karlmaður eigi að nota hattinn
hefir hann sett á hann járn-
brautarlest í stað blóma og
annars kvenhattaskrauts.
Heim af veiðum. Þó að ókgrrt
sé í Indlandi og talsverðar við-
sjár, síðan landinu var skipt
milli Indverja og Múhameðs-
sinna, láta hinir sjálfstæðu ind-
versku furstar það ekki aftra
sér frá að stunda uppáhalds-
íþrótt sína, veiðarnar. Itér sést
indverskur maharajah vera að
koma heim af tígrisdgraveið-
um, sem hann hefir verið í á
bökkum Chambal-ár. Veiðin
sést í skutnum á bátnum.
Framhald af bls. 6.
JEWISH AGENCY.
öllum félögunum í heimi. A næst síð-
asta þingi, sem lialdið var i Genua
1939 voru 573 fulltrúar. Siðasta þing-
ið var haldið í Basel í vor.
Á striðsárunum átti Jewish Agency
samvinnu við bresku stjórnina, og
liermenn af Gyðingakyni unnu mörg
afrek i Afríkustyrjöldinni og við
Dieppe. Hópur kvenna lét kasta sér
út í fallhlífum i Mið-Evrópu og vann
þrekvirki þar. Allar voru þær hand-
teknar síðar og skotnar. Þetta voru
allt ungar stúlkur. í breska hernum
voru 25.000 Gyðingar frá Palestínu.
Vitið þér . . . ?
að 1400 milljón tonnum af kol-
um er brennt á ári?
Eti samt þarf ekki að kvíða
kolaskorti, ef mennirnir fáist til
að vinna þau. Því að áætlað er
að kolaforði jarðarinnar sé 5—
7 billjón (5- 7.000.000.000.000)
tonn og ætti hann því með líkri
egðslu að geta enst í kOOO ár.
En sennilegt er að innan þess
tíma verði fyrir löngu hætt að
nota kol. — Hér er mynd úr
kolanámu.
Það var borið upp á þingmanns-
efnið, að liann beitti skoðanakúgun
i stjórnmálum, við konuna sína.
Þessu svaraði liann svo: .........
— í fyrsta lagi liefi ég aldrei
reynt að hafa áhrif á skoðanir kon-
unnar minnar; í öðru iagi hefi ég
aldrei deilt um stjórnmál við hana;
í þriðja lagi hefir hún enga skoðun
á stjórnmálum og hefir aldrei á þau
minnst; og í fjórða lagi hefi ég al-
drei átt neina konu.
GÓÐU EFNIN YÐAR!
Þér sparið peninga með
þvi að þvo hinn viðkvæma
fatnað yðar með Lux. —
Silkifatnaður, bómullarsloppar,
ullartau, allt þetta endist lengur
Sé þvotturinn öruggur i vatni, er
honum óhætt i freyðandi Lux.
X-LX 634-814
Tilkynning
frá Húsaleigunefnd Reykjavíkur
Með tilvísun til bréfs félagsmála-
ráðuneytisins, dags. 30. f. m., um
niðurfærslu húsaleigu, sem birt hef-
ur verið almenningi, skal húsaleiga
í þeim húsum, sem reist hafa verið
eftir árslok 1941, svo og húsaleiga í
eldri húsum, þar sem nýr leigu-
samningur hefur verið gerður eftir
árslok 1941, færð niður um 10%.
Gildir þetta jafnt, hvort sem húsa-
leigusamningar hafa verið staðfestir
af húsaleigunefnd eða ekki, og einn-
ig um munnlega samninga.
Niðurfærslan gildir frá 1. janúar
1948, og er frá þeim tíma óheim-
ilt, að viðlagðri refsiábyrgð sam-
kvæmt húsaleigulögum, að innheimta
hærri húsaleigu en að ofan greinir,
og er afturkræft það, sem umfram
kann að vera greitt.
Jafnframt vill húsaleigunefndin
vekja athygli á, að skv. 11. gr.
húsaleigulaganna er skylt að leggja
fyrir húsaleigunefnd, til samþykkt-
ar, alla leigumála, sem gerðir eru
eða gerðir hafa verið eftir 14. maí
1940.
Reykjavík, 2. janúar 1948.
Húsaleigunefnd