Fálkinn - 12.11.1948, Qupperneq 6
6
FÁLKINN
r——•— ---*-*—'—•—'—— ----------— ---------------------7
NOSTRADAMUS
- SPÁMAÐURINN MIKLI
Alla langar til að vita fyrir óorðna hluti. Spádómsgáf-
an þykir eftirsóknarverð gáfa og þar hafa margir ver-
ið kallaðir en fáir útvaldir. Það er nóg til af fals-
spámönnum. En hitt kemur líka fyrir að menn koma
fram, sem sjá hlutina svo vel fyrir, að þeir vekja heims-
athygli. Frægastur þeirra allra er Nostradamus, sem
hér verður sagt nokkuð frá. Um hann hafa verið rit-
aðar langar bækur. M. a. liefir danskur dulspekingur
skrifað um hann bók, sem fræg hefir orðið um víða
III.
Hjól örlaganna.
(Úr almanaki, útgefnu í Praha 1490).
I bréfi til Henriks konungs II.
kemur Nostradamus fram meS spá-
dóma, sem virðast snerta nútímann
og framtíðina. í bréfinu segir með-
al annars:
„Síðan munu báðar þjóðirnar taka
við liinni ófrjóu konu, sem reynd-
ist liinni yfirsterkari. Hið mikla
riki Antikrists liefst, eins og innrás
Húna eða för Persa til Grikklands,
og nær svo miklu fylgi, að iiinn
heilagi andi, sem kemur frá 48.
breiddargráðu tekur til starfa til að
hrekja hinn viðurstyggilega Antikrist
sem um skeið heldur uppi stríðé
gegn hinum konunglega ríkisstjóra
Krists og gegn kirkju hans og ríki.
Og þá kemur fyrst sólmyrkvi sem
er svartari en nokkur annar, sem
komið hefir síðan Kristur dó á
krossinum. í októbermánuði verða
mikil umskipti, svo gagnger að
menn munu halda að jörðin hafi
breytt sínum eðlilega gangi. Um
vorið verða miklar breytingar á
stjórnarfari, og jörðin mun skjálfa
er þetta verður, og hin nýja Babyl-
on, sem hefir styrkst við viðurstyggð
hinna fyrstu blóðsúthellinga, mun
þenjast út. En það stendur aðefns
73 ár og 9 inánuði. Þá mun koma
af stofni, sem lengi hefir verið ó-
frjór, maður, og liann kemur frá
50. breiddargráðu og mun endur-
nýja alla kristnina. Og mikill friður
mun verða saminn milli sumra þjóð-
anna, sem eru afvegaleiddar og
og hefir verið sundrað af stjórn-
um sínum, slíkur friður, að sá sem
var upphafsmaður og foringi liern-
aðarflokksins og notaði sér mismun-
andi lnigarfar, verður bundinn í
neðstu hyldýpum; og það ríki sem
tilheyrir þeim brjálaða er leikur
vitfirringinn, verður sameinað hin-
um. Og löndin borgirnar og hér-
uðin, sem hafa yfirgefið uppruna-
lega vegu sína til að öðlast frelsið,
munu uppgötva að þau lineppast æ
fastar í þrældóm, og þeim mun fara
að gremjast að hafa misst frelsi
sitt og fullkomna trú og fara að
berjast gegn vinstriflokkunum og
snúa aftur til hægri.“
— —- Með nafninu Antikristur
virðist Nostradamus ekki meina á-
kveðna persónu heldur byltinga-
skeiðin, er baráttan gegn kirkjunni
var sem áköfust. Fyrsta skeiðið var
1789 til 1815. Annað byrjaði með
byltingunni 1848 og stendur vænt-
anlega ennþá. Það sæði sem sáð
var þá mun þroskast og fá næringu
frá liugmyndunum frá 1789 (fyrsta
blóðsúthellingin) og miðbikið fyrir
viðburðina verður París (hin nýja
Babýlon).
. Siðar á svo að koma mikil bylt-
ing, sem slítur öllum tengslum við
fortíðina og leggur nýjan grund-
völl að þjóðfélagsþróuniiiní. Höfund-
ur hennar verður mikihnenni, sem
Nostradamus kallar „hinn heilaga
anda“. Hann á að rísa upp i Norð-
ur-Frakklandi og vera af gamalli
ætt, sem talin var aldauða. Hann
endurnýjar hina gömlu Evrópu.
Friður og eindrægni kemst á, þjóð-
irnar rjúfa þröskuldana, sem stjórn-
irnar hafa sett á milli þeirra og
sameinast yfir landamærin. Hern-
aðarflokkurinn er yfirbugaður og
jafnvel það land, sem brjálaður
maður stjórnar, sameinast hinúm
löndunum.
Eftir hernaðar- og byltingaskeið-
ið sem nefnist Antikristur annar
kemur langt friðartímabil. Siðan
hefjast enn styrjaldir, hernaðar-
ribbaldar rísa upp, þjóðirnar rísa
upp gegn lögum og reglum og Aust-
urlönd ná valdi yfir Evrópulönd-
um. Þessu skeiði, hinum 3. Antikristi
er lýst þannig:
„Loks munu í síðasta sinn öll riki
kristninnar og lika þeirra vantrú-
uðu skjálfa um 25 ára skeið, og
styrjaldir og onustur verða harðari
en nokkurntima áður, borgir og
hallir og allar aðrar byggingar eyði-
leggjast, blóð renna í lækjum, ung-
börn niarin udir múrunum og svo
margt illt ske, með Satans hjálp, að
öll veröldin virðist úr greinum
gengin og ætla að leggjast í auðn.
En eftir að þetta er umliðið mun
koma ný gullöld og Guð mun heyra
neyðarkall jijóðar sinnar og lilekkja
Satan í iðrum jarðarinnar. Mun
verða almennur friður milli Guðs
Frh. á bls. U.
VITIÐ ÞÉR . . . ?
aS í hernaði eru notaðar eldflaug
ar til að leggja síma?
Á myndinni sést hermaður
albúinn til að skjóta rakettunni.
Við hana er festur 100 metra
lángur símavír. Þetta er fljót-
leg aðferð, ekki síst þegar yfir
vötn og torfærur er að fara.
að hægt er að taka ljósmyndir
af viðburðum, sem gerst hafa
fyrir milljónum ára?
/ Hamilton-stjörnuturninúm
í Kaliforníu var þessi mynd tek-
tekin í sömu andránni og stjarn
an, sem örin bendir á, sprakk.
Fjarlægð stjörnunnar i Ijósárum
var kunn, svo að hægt var að
reikna út að sprengingin hafði
gerst fyrir 4 milljön árum, en
þrátt fyrir hraða tjóssins var
fyrst núna hægt að sjá spreng-
inguna hér <í jörðinni.
að í egypskum pýramída hafa
fundist verksummerki eftir inn-
brot, sem framið hefir verið fyr-
ir þúsundum ára.
Við egypsku pýramídarann-
sóknirnar, sem nú fara fram
eftir tín ára áætlun nppgöt'vað-
ist þessi klefi og sást þar að
múrveggur hafði verið brotinn
niður, ennfremur körfur og
reipi, sem grafræningjar liafa
skilið þarna eftir fyrir þúsund-
um ára. Ræningjunum tóksl
ekki að finna grafhýsið og það
hefir vísindamönnum síðustu
alda ekld tekist heldur. En
gengið cr að því vísu að þar
muni miklir fjársjóðir geymdir.
að maurabúin í hitabeltinu eru
svo sterk, að hægt er að gera
þrep í þau og ganga um þau án
þess að sökkva í?
Þessir maurar byggja sér bú
sem geta orðið margra metra
há, úr leir og tré. Venjulega
eru engar holur á þessum bú-
um, en maurarnir skríða út
um göng, sem koma upp úr
jörðinni marga inetra frá bú-
inu. Myndin er af maurabúi
í Congo,- og hefir verið byggður
sólskáli á toppinum.
að við strendur Ameríku lifir
hornfiskur, sem getur orðið yfir
tveggja metra langur?
Það er svonefndur alligator-
fiskur. Hann er óætur en étur
sjálfur mjög mikið af fiski.