Fálkinn


Fálkinn - 10.12.1948, Side 3

Fálkinn - 10.12.1948, Side 3
FÁLKINN 3 Finnbm/i Helgason, bóndi að Hit- ardal í Mýrasýslu verður sjötugur á aðfangadag jóla. Ný rnynd frá Bikini Hernaðaryfirvöld Bandaríkjanna liafa nú leyft birtingu á fleiri mynd um af atómsprengjutilraununum við Bikini en gert var í fyrstu. Eins og menn muna, þá var tilraunin gerð 25. júlí 1946, og allar þær myndir sem liingað til hafa birst af spreng- ingunni, eru teknar eftir að strók- urinn hefir tekið svepplögun. Myndin sem iiér birtist er tekin áð- ur, alveg í því augnabliki, sem spréngingin varð og „svepphattur- inn“, sem er svo greinilegur á öðr- um myndum, hefir ekki ennþá mynd ast. Örvarnar visa á herskipin, sem höfð voru við tilraunirnar, til þess að geta betur sagt um kraft spreng- ingarinnar. Frú Bodil Begtrup sendi herra Dana á íslandi Frú Bodil Beijtrup og Emile St. Lot frá Haiti á nefndarfundi i UNO. Fyrsta konan, sem Danir skipa í sendiherrastöðu sendiherra Dana í Moskva. Hefir hann gcgnt fleiri ábyrgðarstöðum i utanríkisþjónustunni, en samkvæmt eigin ósk hefir hann nú dregið sig i lilé. Embætti þau og ábyrgðarstöður sem frú Bodil Begtrup hefir liaft á hendi eru margskonar. Árið 1939 var hún skipuð til að hafa eftiriit með kvikmyndum, og vakti liún at- hygli á sér við þau störf. Síðan 1929 liefir hún átt sæti i stjórn Danske Rvinders Nationalraad. Varafor- maður félagsskaparins varð hún 1931 og formaður 1946. Mikil störf liggja eftir hana í þágu mæðrahjátp- ar og barnahjálpar. Á erlendum vettvangi tiefir hún dregið að sér athygli með störfum sínum i þágu Sameinuðu þjóðanna. 1 haust< tiefir liún t. d. unnið mikilvæg nefndar- störf á þinginu í París og verið for- maður nefndar ]>eirrar er fjallar um stöðu konunnar í þjóðfélaginu. Fyrir stríð sat luin einnig 19. þing Þjóðbandalagsins sem fulltrúi Dana. Mörg önnur störf frúarinnar mætti nefna, en liér skal látið staðar numið. ísendingar fagna þvi vissulega, að þessi merkiskona skuli liafa ver- ið valin til þess að gegna sendi- herrastörfum Dana liér á landi. Happdrætti Tónlistarskólans Vegna vaxandi aðsóknar að Tón- listarskólanum, liefir Tónlistarfélagið orðið að afla sér aukins liúsnæðis, og ráðist hefir verið í að kaupa liúsið nr. 7 við Laufásveg. Til þess að skólinn geti verið rekinn á sæmi- legum l'járhagsgrundvelli, þá liefir Tónlistarfélagið efnt til liappdrætt- is fyrir skólann. Hafa flestir kunn- ustu málarar bæjarins selt félaginu stór og falleg málverk, sem verða í happdrættinu. Auk þess verða 125 peningavinningar. Dregið verður viku fyrir jól. Hinn nýi sendiherra Dana á íslandi, frú Bodii Begtrup. Danska stjórnin hefir nú skipað frú Bodil Begtrup sendiherra á ís- landi. Er þetta i fyrsta skipti, sem Danir, skipa konu i slíkt embætti, og telja dönsku blöðin, að frúnni sé með þessu sýndur maklegur sómi fyrir vel unnin störf i þágu danskra mannúðarmáta og annarra þjóðfé- lagsumbóta. 'Bertingske Tidende seg- ir m. a.: „Val frú Bodil Begtrup í embætti sendihcrra Dana í Reykjavík er bæði óvænt og sjálfsagt. Óvænt, þar sem danska utanríkisþjónustan hefir liingað til eingöngu verið í höndum karla og margir hæfir em- bættismenn hafa liaft augastað á sendiherrastöðunni á íslandi. Sjálf- sagt og eðlilegt, þar sem frú Bodil Begtrup hefir unnið störf sín i þágu danskra innanríkismála svo vet og leyst af hcndi svo mikið og gott starf á sviði utanríkismálanna, að engin gagnrýni kemst að.“ Politiken og önnur dönsk blöð liafa svipaða sögu að segja. Frú Bodil Begtrud er 45 ára göm- ut, fædd í Nyborg 12. nóv. 1903. Hún lauk stúdentsprófi í Álaborg og lagði siðan stund á hagfræði. Cand. polit. varð hún 1929. Maður liennar er Bolt Jörgensen, fyrrv.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.