Fálkinn


Fálkinn - 10.12.1948, Page 5

Fálkinn - 10.12.1948, Page 5
FÁLKINN 5 Yngsta móðir í heimi, LINA MEDIMA Hiin eignadist son 5 ára gömul Árið 1939 skeði sá undarlegi atburður í Perú, að 5 ára göm- ul stúlka, I.ina Medina, eign- aðist barn. Um skeið var þetta tíðræddur atburður víða um heim, en féll fljótt í gleymsk- unnar dá, og nafnið Lina Med- ina heyrist ná sjaldan nefnt. Fyrir íu-kkru birtist grein í Life um atburð þennan og undrabarnið. Höfundur hennar er William Krehm. Fer hér á eftir úrdráttur úr greininni. Hálönd Perú byggja liarðgerðir bændur. Bústaðir þeirra eru af- skekktir, samgöngur erfiðar og menning víða frumstæð. Fólkið er kröfuhart við sjálft sig og tekur heldur eklci ætið móðurhöndunum á börnunum, sem alast því mörg hver upp við harðrétti vorkunnar- laust. — Það var vorið 1939 að litil stúlka, Lina að nafni, dóttir fátæks fjallabónda á þessum slóð- um, kvartaði um það við foreldra sína að sér liði illa. Hefði ekki út- lit hennar borið þess ljósan vott, að henni leið illa, mundi slík kvörtun hafa verið tekin óstinnt upp. Það var ekki laust við ugg í foreldrum hennar og systkinum, sem voru átta auk hennar, þegar þau urðu vör við hið sífellda lystarleysi í Linu. Auk þess var henni svimagjarnt og svo gildnaði hún sí og æ. Að áeggjan lögregluþjónsins i héraðinu fór fað- ir hennar með hana til sjúkrahúss- læknisins i Pisco, dr. Gerando Loz- ada. Fljótt á litið liélt dr. Lozada að hér væri um að ræða einhvers- konar bólgu, en við nánari athug- Máðir og sonur með brúður sinar. Myndin er tekin 1939. un komst hann að næsta ótrúlegri niðurstöðu. Lina litla gekk með barn. Dr. Lozada tók nú að afla sér frekari vitneskju um bernsku Linu Medinu. Hún fæddist 23. sept 1933, og samkvæmt upplýsingum móður hennar kom nú i ljós, að hún hafði á ýmsum sviðum náð kvenlegum þroska aðeins átta mánaða gömul. Fregnin um atburðinn barst um gjörvalla Perú eins og eldur í sinu, og hinn 11. mai 1939, þegar ákveð- ið var að gera keisaraskurð á Linu, beið fólkið með öndina í hálsinum. Margir voru þeir, sem töldu að sú staðhæfing dr. Lozada, að Lina væri barnshafandi, mundi nú verða afsönnuð, en þeim varð ekki að von sinni, þvi að innan stundar tilkynnti læknirinn, að Lina hefði fætt dreng. Þó að móðirin væri aðeins 67 ensk pund að þyngd, vóg barnið, sem var skírt Gerardo, um það bil 10 merkur og leit mjög hraustlega út. Skv. ósk dr. Lozada var Lina ekki látin annast barnið á néinn hátt, og hún fékk alls ekki að vita, að liún hefði eignast barn. Það var tal- in affarasælasta leiðin. Á sjúkrahúsinu í Pisco dvaldist Lina lengi. Þar lærði hún að lesa og skrifa og naut góðrar aðhlynn- ingar. Blöðin minntust hennar oft, og háværar kröfur voru uppi um að senda hana til New York til þess að sýna hana sem undrabarn. Dr. Lozada reis öndverður gegn því og hlaut ekki verulegar ákúrur fyrir nema frá föður Linu, sem var fylgj- andi förinni. Síðan lognaðist sag- an um Linu út af, en hún hefir dvalist hjá foreldrum sínum og er nú orðin 15 ára. Öll þessi ár hefir dr. Lozada fáar sem engar fréttir haft af Linu, og veldur reiði föðurins því. Það var ekki einungis að honum þótti mið- ur, að Lina skyldi ekki fá að fara til New York, heldur kom fleira til. Þau hjónin þóttust nefnilega sann- færð um það, að þungun Linu hefði orsakast af æðri máttarvöldúm, og það urðu þeim þvi sár vonbrigð'i, er dr. Lozada fullyrði, að allt væri eðlilegt og mannlegt i þessu sam- bandi. Það sem foreldrarnir töldu kraftaverk varð hneyksli. Juan Barr- era Jiminez, dómari héraðsins skýrði William Krehm, greinarhöfundinum frá því, að glæpalögregla ríkisins hefði rannsakað málið, en árangurs- laust. Lina Medina veit ekki ennþá að Gerardo er sonur hennar, og ólik- legt að hún fái nokkurn tíma að vita það. Hún heldur að hann sé bróðir sinn. SPURNING OG SKÝRING. Don Kelly lögregluþjónn I San Antonio i New Yorkriki fékk ný- lega skannnir hjá lögreglustjóranum, í fyrsta skipti í starfinu. Og hon- um fannst þetta óréttlátt. Yfirboð- ari hans ávitaði hann fyrir að hafa ekki tekið í taumana er hann sá karlmann og kvenmann vera að spóka sig á götunni — bæði alls- nakin. „Eg lét þau fara af þvi. að þau liegðuðu sér prúðmannlega," sagði Kelly. „Þau gerðu engum mein og höfðu engan hávaða.“ Islendingasögur, Bysk upa sögur, Sturlunga saga, Annálar og Nafnaskrá 20 bindi í góðu skinnbandi fyrir aðeins kr. 820.00 ! | 1 Þetta er ódýrasta, besta og þjódlegasta útgáfa landsins íslendingasagnaútgáfan Haukadalsútgáfan Pósthólf 73. Sími 7508. Túngötu 7. Reykjavík.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.