Fálkinn - 04.02.1949, Side 7
FÁLKINN
7
Loftbrúin til Berlín varð liálfs
árs rétt fyrir jólin. Það var í
júní í vor, sem Bretar og Banda-
ríkjamenn fóru að flytja nauð-
synjar loftleiðis til Berlín. Á
þessum sex mánuðum hafa
verið fluttar yfir 700.000 smá-
lestir af varningi og eldsneyti
til Berlín, eða að meðaltali um
4.000 smálestir á dag. Hér sjást
flutningávélar ferðbúnar á
Tempelhof-flugvellinum.
Ungur Ameríkufari. — Meðal
1500 farþega sem nýlega komu
til New York með skipi frá
Lissabon var þessi snáði. Hann
er eins árs og 5 mánaða. Hann
var ekkert „imponeraður“ af
New York og við landganginn
fór hann í feluleik milli ferða-
koffortanna í stað þess að horfa
á skýjakljúfana.
Skjaldbökur. — Það eru alls til
um 200 tegundir af skjaldbök-
um, svo menn viti og lifa þær
ýmist á þurru, í ám eða t sjón-
um. Sumar eru svo stórar að
þær geta hæglega borið mann
á bakinu,, en aðrar svo litlar
að hægl er að stinga þeim í
vestisvasa sinn. Hér sjást nokkr-
ar af minnstu skjaldbökunum.
Það fer ekki mikið fyrir þeim
í lófa manns.
Fósturbörn í eina nótt. — Fimm hundruð foreldralaus börn
komu til London rétt fyrir jólin og 500 f jölskyldur í Bermonds-
ey — þeim hluta Londonar, sem varð verst úti í loftárásunum
— tóku þau í fóstur í eina nótt. Börnin eru frá Póllandi, Jugo-
slavíu og Ukrainu og eru ættingjalaus og hælislaus, en verður
komið fyrir í Englandi. Efst á myndinni sést „Bobby“ —
enskur lögregluþjónn — vera að hjálpa börnunum, en að neðan
sjást þau vera komin í matinn.
Tveir menn frá Aberdeen efndu til
veiðisamkeppni. Sá sem yrði fyrri
til að fá lax, átti að gefa miðdegis-
verð. Þeir höfðu setið fjóra tíma við
ána, þegar þeir uppgötvuðu hvor
um sig, að báðir höfðu beran öng-
ulinn.
Sveinn litli, fimm ára kemur til
móður sinnar: — Mamma, lánaðu
mér 10 aura til að kaupa karamellu,
en þú þarft ekki að borga mér nema
fimmaura. Þá skulda ég þér fimm
aura og þú skuldar mér fimm aura,
og þá erum við kvitt!
Jólabylur í New York. — Rétt
fyrir jólin varð 20 þumlunga
snjókoma í New York, og þurfti
bæjarstjórnin 18.000 manns til
snj.ómoksturs, en verkið kost-
aði 2 milljón dollara. Hér sést
trætisvagn, sem hefir orðið fast
ur í fönninni. Það er verið að
koma honum burt.
Wiilil
1 1111 íilSiiptfllllil
Til vinstri:
París í kastljósabjarma. — Höf-
uðstaður Frakklands gerir allt
sem unni er til þess að sýna
sig í sem fegursta skarti fyrir
skemmtiferðafólki og þá ekki
síður fyrir öllum erlendu full-
trúunum, sem setið hafa þing
UNO í haust. Þess vegna eru
ýmsar frægar byggingar borg-
arinnar upplýstar með kastljós-
um á nóttinni. Hér á myndinni
sést Notre Damekirkjan svona
lýst.
Til hægri:
Tveggja milljón ára. — Enskur
vísindamaður, dr. L. Keaky og
kona hans liafa nýlega fundið
hauskúpu af tveggja milljón
ára gömlum apa á Rusinga-
eyju í Victoriavatni í Afríku.
Þessi hauskúpa er líkari manna-
hauskúpum en núlifandi apa
eru. Hér sést jrú Leaky með
hauskúpuna.