Fálkinn


Fálkinn - 15.07.1949, Side 2

Fálkinn - 15.07.1949, Side 2
2 FÁLKINN in nf hugrökhustu mönnum heims- ins EDDIPOIO Hastar sér úr S nKlrn kö ofnn í sidlhar Aðeins 2 menn í heiminum leika þessa list. Fyrsta sinn er EDDI PÓLÓ sýnir þetta fyrir almenning hér á landi. Stálkarið virkar úr 25 metra hæð eins og lítið vaskafat. Reykvíkingar sjó nú í fyrsta sinn ofurhugann Eddi Póló leika sér með lífið, er hann kastar sér úr 25 m. hæS niSur í stálkar. — Allir verSa aS sjá hvernig mögulegt er aS fram- kvæma þetta kraftaverk. — Tivolíbíllinn fer á 15 mín. fresti rá BúnaSarfélagshúsinu. — GarSurinn verSur eftirleiSis op- inn frá kl. 8 e. h. til 11,30 nema laugardaga og sunnudaga frá kl. 2 e. h. til 11,30. Ej'ri myndin: Aftan tit i míðju er silfurbikar Guðbjargar og Sig. Sigurz, sem jiati gáfu til minningar um Skitla, son sinn. Þar næst fánar Norðurlunda og fremst norsku mnnirnir. ■— Neðri myndin: Sýningarhorn Sjálfsbjargar, Vífilsstöðum. s Y N I N G S. I. B. S. S.Í.B.S. hefir að undanförnu haft opna handiða- og listmunasýningu í Listamannaskálanuni. Aðsókn hef- ir verið mjög góð að henni, cnda margt góðra muna og fallegra þar að líta. Ef gengið er um sýningarskálann, þá blasir fyrst við deild útskorinna muna. M. a. vekja þar athygli hillur og kassar eftir Jón Einarsson, upp- lileypt mynd af Þingvöllum og ná- grenni eftir Hjört Björnsson. Feðgar frá Seifossi, þeir Sigurbergur Jó- hannesson og Einar, sonur hans, eiga þar góða muni. Einar er aðeins 14 ára, og útskorinn stjaki eftir liann vekur þeim mun meiri athygli þess vegna. — Á veggnum gegnt útskurð- ardeildinni eru falleg veggteppi o. fl. 1 einu þeirra getur að líta mjög vel unnið og fallegt hreindýr eftir Margréti Jónsdóftur frá Ögurnesi. Saumuð landlagsmynd frá Stapa á Snæfellsnesi eftir Ólaf Ingólfsson vekur sérstaka athygli. Himinn og sjór eru máiaðir en annað saumað. í fljótu bragði verður þar ekki á milli grgint. Veggteppi Guðrúnar Sæmundsdóttur er einnig mjög at- hyglisyert. Næst eru það málverkin, sem draga að sér athygli. Fyrst nokkrar smámyndir eftir Þórð .Benediktsson, þá abstraktmálverk eftir Kristin Pét- ursson og myndir eftir Emil Thor- oddsen. Ein þeirra, konumynd, lief- ir gert nútímamálara hugfangna, því að hún er einn fyrsti vísirinn að „nútímalist“ meðal islenskra mál- ara. Myndir Brynjólfs heitins Þórð- arsonar þykja einkarvel gerðar, og konumyndin eftir hann sannfærir sýningargesti um það, að góður lista maður Iiafi iinigið í valinn, þegar hann lést á unga aidri. Fjöldi mynda er þarna eftir Guðm. Thor- steinsson, og ójjarfi er að fjölyrða um þær. Þær vekja jafnan athygli. Jón Þorleifsson og Höskuldur Björns- son eiga þarna líka góðar myndir. Á .skrautmunaborði i salnum eru askar og fleiri munir úr tré, en einnig hagleg málmsmiði, m. a. silf- urbúnir baukar og svo skrautnælur ýmiss konar, gerðar af Þorsteini Finnbjarnarsyni, Vitastíg 14. Stokka- belti, myllur og nælur, sem prýða islenskan lnining á sýningunni, eru einnig eftir hann. Stólar með ísaumuðu áklæði vekja mikla athygli. Má t. d. nefna stóla Ingileifar Káradóttur, sem eru sér- staklega fallegir. — í einu liorninu eru veitingaborð og stólar, kennara- borð og svo ieikföng ýmiss konar, sem allt er gert að Reykjalundi. Kjólar þaðan eru líka tíl sýnis. Veggteppaveggurinn á annarri hlið skálans er tilkomumikili. Þar eru einnig púðaborð og uppsettir púðar á borðum meðfram veggn- um. Klukkustrengir Unnur Skúla- dóttur þykja mjög fallegir. í ráði er, að bókbandsstofu verði komið á fót að Iteykjalundi, og bók- bandssýnishorn eru á sýningunni. Band Sigurðar Haraldssonar á Bréf til Láru er mjög snoturt og skemmti- legt. — Haglega gerður vefstóll er í sýningarhorni Sjálfsvarnar, Vifils- stöðum. Sveinn Helgason heitir sá er hann gerði. Vinnuheimili norskra berklasjúkl- inga hefir sent nokkra muni, þ. á. m. bókahiliu útskorna í tré, físibelgi, Framhald á bls. 15.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.