Fálkinn - 15.07.1949, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
U.S.A. sýnir kraftana. — Á
Messerschmidt flugvellimim í
Augsburg í Þýskalandi hafa
Bandaríkjamenn fyrir nokkru
haft sýningu ú skriðdrekum, 20
og kO smálesta, búnum allra nýj,
ustu byssum. Myndin sýnir á-
höfn og útbúnað, sem þarf á
svona skriðdreka.
Hundur fær orðu. •;— Það er
tékkneskur flugmaður sem á
þennan hund, sem nefnist Antis,
og hafa þeir bátðir starfað í
franska og enska flugliðinú í
stríðinu. Nú hefir hundurinn
fengið svonefnda Dickin-orðu í
London, sem er veglegasta orð-
an, sem hundur getur fengið og
svarar til Victoríukrossins hjá
hermönnum. Það er sjálfur Wa-
vell marskálkur, sem sæmir
hundinn orðunni.
Heldur sig verða Messías. — Ung-
ur amerískur trúboði, Krishna
Venta, var nýlega í London
ásamt konu sinni, og vekur
mikla athygli. Hann er í út-
liti líkur því sem menn hafa
hugsað sér spámenn Gyðinga.
Og nú segist hann hafa fengið
þá opinberun, að hann sé Messí-
as endurborinn. — Hér sjást
þau hjónin vera að matast á
gistiherbergi sínu í London.
Vcgna klæðarburðar þeirra fá
þau ekki að borða í matsalnum.
Glaðir tennisiðkendur. — Tenn-
ismót stendur fyrir dyrum í
Wembley í London og lielsta
afreksfólk í þessari íþrótt er
þegar komið á vettvang til að
æfa sig. Hér sýna nokkrir af
stórlöxunum ærslalundina, að
afstaðinni æfingu á tennisbraut-
unum. Til vinstri sést Panco
Segura frá Suður-Ameríku bera
Dinna Pails frá Ástralíu á bak-
inu, en til hægri hefir Amer-
íkumaðurinn Jack Kramer gerst
reiðhestur landa síns, Robby
Riggs.
Til vinstri:
Zúlu-höfðingi á ferðalagi. Albert
L. Luthuli, hreinræktaður Zulu-
höfðingi frá Suður-Afríku hefir
verið í fyrirlestraferð í Banda-
ríkjum, á vegum kirkjufélags
þar. Á myndinni sést hann vera
að kveðja Bandaríkin áður en
hann stígur inn í flugvélina,
sem flytur hann til Johannes-
burg. Luthuli, sem er vestrænn í
háttum, ræður yfir fjölda þegna
og ríki hans er skammt frá
Durban í Natal.
'Til hægri:
St. Patreksmessa. írar halda
hátíðlegan minningardag þj.óð-
ardýrlings sins, heilags Patreks,
sem flutti kristnina til Irlands.
Þennan dag bera írar smára-
lauf á höfðuðfati sínu, því að
Patrekur noiaði smáralaufið
sem tákn heilagrar þrenningar.
A myndinni sést liðsforingi festa
smáralaufið á einkennishúfu
gamals hermanns.
Yfir þökum Parísar. — Elting-
arleikur við þjófa eftir besta
reyfarasniði, fór nýlega fram í
París. Þjófurinn var í lögreglu-
búningi og komst upp á hús-
þak og var eltur hús af húsi.
En hann náðist.
Parísargáski. Meira samsafn
af skeggi hefir aldrei sést en á
skemmtun, sem haldin var á
Moulin de la Galette í París fyr-
ir nokkru. Allir þátttakendur og
qðstoðarfólk, þjónar og hljóð-
færaleikarar voru skyldaðir til
að vera með skegg. Hér sjást
tveir af þátttakendunum —
skeggjaðar ungfrúr.
Blóm meðal ávaxta. í Florida
er svo mikið af grape-fruit að
fólk getur leyft sér að skreyta
heilan grasvöll með þeim við
hátíðleg tækifæri. Unga blóma-
rósin á myndinni þarf ekki að
kvíða því að hún fái ekki nóg
af þessum nærandi og hressandi
ávexti fyrst um sinn.
Síðasti dagur austurmarksins.
Austur-markið rússneska var
afnumið sem gjaldeyrir í vest-
urhverfum Berlínar í mars, og
daginn áður en það gekk úr
gildi þyrptist fólkið í vestur-
hverfunum í búðir til þess að
koma þessum peningum í varn-
ing. Varð þröng og stympingar
við búðirnar og hillurnar tæmd-
ust fljótt. En kaupmennirnir
stóöu eftir með tómar búðir en
fulla skúffuna af austurmörkum