Fálkinn - 19.08.1949, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
Botnlangaskurður í fjarsýn.
Til þess að gefa læknanemam
kosl á því að fylgjast með botn-
langaskurðum hefir fjarsýnis-
tækjum ve.rið komið fyrir á
fíuy’s hospital í London. —
Minni myndin er tekin við botn-
langaskurð, en sá stærri er tek-
in á öðrum stað á sjúkrahúsinu,
þar sern stúdentarnir fylgjast
með af áihuga í fjarsýnistæki.
Æskan og ellin sameinast.
/ Chelsea í London er á hverju
ári haldin hátíð, þar sem blóma
sýningar, tónlistarhátíðir og í-
þróttakeppnir fléttast saman. 1
Chelsea er Royal hospital, dval-
arheimili örkumlamanna og
gamalmenna. Á hátíðinni, sem
haldin var í ár var gamla fólk-
ið og öryrkjarnir klætt í gamla,
skrautlega einkennisbúninga og
séð um, að það gæti tekið þátt
í hátíðahöldunum að einhverju
leyti. Eins og myndin ber með
sér, eru gömlu mennirnir á-
nægðir með ungu og fallegu
stúlkurnar, sem þeir hafa náð
sér í.
Heil borg í kafi.
Þetta er loftmynd af borginni
Maitland, sem er um 150 kilá-
metra fyrir norðan Sydney í
Ástralíu. Áin Hunter, sem hún
stendur við, flæddi nýlega yfir
bakka sína á löngu svæði og
gerði hinn mesta usla í mörgum
borgum og þorpum, þ. á m. i
Maitland. Langvarandi stórrign-
ingar voru flóðsvaldurinn.
Myndin ber það greinilega með
sér, að feiknaleg spjöll liljóta að
hafa valdist af áirvextinum.