Fálkinn - 02.09.1949, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
MINNING FALLINNA.
Hinn 31. maí ár hvert lialda Banda-
ríkjamenn svonefndan Memorial Day
og minnast þá þeirra, sem féllu í ýms-
um styrjöldum, sem Bandaríkin liafa
háð. Er þessi hátíð og haldin í öðrum
löndum, þar sem fallnir hermenn frá
U. S. A. hvíla í moldinni. Þessi mynd
er frá Italíu og sést þar Mark Wayne
Clark, sem í styrjöldinni hafði yfir-
stjórn ameríska landgönguhersins í
Itáliu (5. hersins) á minningarhátið í
Anzio, þar sem svo margir féllu. Með
hershöfðingjanum er kona hans, en
ítölsk heiðurshersveit er viðstödd til
að heiðra minningu Bandaríkjamann-
anna.
i$>i« '■ > i! iJ> ii,i<iiitLfci ilíi ■’ 1
• ■
I
.•«88?
/'y. //. /
Mm
A-mmi
■mi
SÉéIÉÉ
777 vinstri:
MIKIÐ SKAL til MIKILS VINNA
Ennþá einu sinni ætlar stúlka að
synda yfir Ermasund, guð má vita
til hvers. Hún er 16 ára og heitir
May France, frá Massachussets í
Bandaríkjunum. Hérna sjáið þið
stúlkukindma.
Til hægri:
FULLVAXTA MÆR. Oka heitir
ungur gorillaapi, kvenkyns vél að
merkja, — og hefir verið í Bronx
dýragarðinum i New York síðan
hann var 10 kg. að þyngd. Nú er
hann 135 kg. Þetta er allra prúð-
asta apamær og þykir gaman að
skemmta sér. Aðalskemmtunin er
sú að fara í reiðtúr á baki gæslu-
mannsins.
Thomas Mann, frægasta núlif-
andi skáld Þjóðverja, sem flýði
land á veldisdögum Hitlers oy
nú er búsettur í Bandaríkjun-
um, hefir nýlega verið á ferð í
Evrópu í fyrsta skipti síðan
fyrir stríð. Hélt hann fyrirlestra
i ýmsum frægustu stofnunum
Norðurlanda og var m. a. kjör-
inn heiðursdoktor háskólans í
Lundi.
Franklin D. Roosevelt jr. sem
í mai vann glæsilegan kosninga-
sigur þó að hann byði sig fram
utanflokka. Hann kvað vera
likastur föður sínum af öllum
þeim bræðrum, bæði að upplagi
og útliti, og spá menn honum
glæsilegrar framtíðar og jafn-
vel forsetatignar er fram líða
stundir.
Generallautinant C. R. Huebner,
nánasti samverkamaður Clay
hershöfðingja, sem tók við em-
mætti hans um stundarsakir,
er Clay sagði því af sér fyrir
nokkru.
Antonin Zapotocky stjórnarfor-
maður Tékkóslóvakíu, sem
stj.órnar sókninni gegn æðstu
mönnum kirkjunnar í landinu
og sakar þá nm undirróður gegn
hinu austræna ríkisvaldi.