Fálkinn - 09.09.1949, Síða 6
6
FÁLKINN
- LITLA SAGAN -
Aö sima
upp á skosku
Við sátum saman á kaffihúsinu
og voruni að tala um hve marfít
væri hæ.gt að gera við símann.
— Nei, þetta hefi ég aldrei gert,
sagði Eiríktir. — En ég geri dálítið
aniiað. Eg síma — upp á skosku.
Við hristum höfuðið og' litum
spyrjandi iivert á annað.
-— Já, upp á skosku. Vitið ])ið
ekki hvernig maður fer að því?
Jæja, þá skal ég segja ykkur það.
Þið vitið að ég á heima fyrir utan
bæ. Oft verð ég að sitja lengur á
skrifstofunni en mig eiginlega iang-
ar til, svo að það er aldrei á vísan
að róa hvenær ég kem heim að borða.
Einn daginn getur það verið klukk-
an hálffimm, annan klukkan 5 og
þann þriðja klukkan 5%. En ég
hefi gert mér að reglu að ganga
við i simaturninum þegar ég fer
af skrifstofunni til að láta vita,
að ég kém eftir tíu minútur. Og
það kostar mig ekki eyri. Eg sima
upp á skosku.
— Ilvernig þá? Hvernig ferðu að
því? Segðu okkur það, hrópuðu all-
ir harmafullir af forvitni.
— Það er ofur einfalt, sagði Ei-
ríkur og brosti spekingslega. Eg tek
tíeyringinn upp úr vasa minum og
sting honum i sjálfsalann. Svo vel
ég númer mitt, 46-35-82, og bið
þangað til hringing hefir heyrst
þrisvar — og svo hengi ég taltækið
á aftur i snatri. Úr því að ég hefi
ekki fengið samband dettur tieyr-
ingurinn niður i skálina og ég Iiirði
hann. En hringingarnar þrjár hafa
sagt konunni minni, að nú sé mál
að setja hvalketið á pönnuna.
— Þetta er nú gott og blessað,
Rúki minn, sagði Páll. — En hvað
verður ef konan þin svarar í simann?
— Það er allt nákvæmlega hugsað
og afgert. Konan min svarar aldrei
undir eins. Hún veit að ég er vanur
að hringja um sama leyti um mið-
degisleytið. Ef einliver annar kann
að hringja um sama leyti verður
viðkomandi að bíða dálítið við, því
að konan min svarar ekki fyrr en
eftir fimm hringingar. Jæja, hvað
finnst ykkur? Er það ekki sniðugt?
Eiríkur leit kringum sig, stoltur
eins og rómverskur sigurvegari.
Við gátum ekkert sagt. Við vorum
mállaus. Já, þessi Eirikur! Svona
séður og útsmoginn. Sparaði með
þessu — mörg hundruð tíeyringa!
Maður sem sat við næsta borð og
sem líka hafði lieyrt sögu Eiriks
var hrifinn og fullur af aðdáun. Hann
sneri sér að Skotanum okkar.
— Þetta var fyrirtak. Aldrei hefði
mér getað dottið þclta í liug.
Eiríkur kinkaði kolli, honum leið
eins og söngvara sem verið er að
æra í klappi: — Já, maður verður
að reyna að spara á þessum síðustu
og verstu drápskattatímum ..........
i— Alveg rétt, sagði' maðurinn. •—
En viljið þér ekki útskýra þetta
betur fyrir mér. Þér stingið tieyr-
ingi i sjálfsalann og svo veljið þér
númer 46-35-82?
— Nei, sagði Eirikur. — 46-35-92.
-— Nú, já. 463592. Það er ágætt.
Eg skal setja það á mig. Þakka yð-
ur kærlega fyrir herra minn, hjart-
ans þakkir. Og hve lengi hafið þér
símað svona?
Eiríkur reigði sig, státinn eins og
páfugl.
— Hve lengi? Nákvæmlega þrjú
ár og fimm mánuði.
— Hjálpi mér! Þrjú ár og firnrn
mánuði. Og á hverjum degi?
— Já, nema á sunnudögum og
helgidögum.
Ókunni maðurinn stóð upp.
•— Má ég þakka yður fyrir einu
sinni enn. Við sjáumst aftur — i
réttinum. Leyfið mér að kynnna mig.
Eg heiti Arvik. Fulltrúi. Eg er starfs-
aður lijá bæjarsimanum og Iiefi með
höndum að hindra misbrúkun sjálf-
virkra talsímatækja.
bEIKAItAMYNOIK
VITIB ÞÉR . ... ?
að engin Ieikkona fær eins mörg
bréf og Truman forseti?
Á síðastliðnu ári fékk forset-
inn i Hvíta húsinu 562.000 bréf
o(f 770.000 bréfspjöld, auk 225-
000 annarra póstsendinga. Og
ennfremur fékk forsetinn 18-
!(65 símskeyti á árinu. Ef hann
ætti að lesa allt þetta sjálfur
hefði hann nóg að hugsa, því að
þetta verða um 1880 bréf, 2570
bréfspjöld og 60 skeyti hvern
virkan dag.
að frá kafbátum, sem hlekkist
á í kafi, er hægt að senda björg-
unarbaujur upp á yfirborðið?
/ bauiunni er sími, svo að
hæyl er að hafa talsamband við
kafbátinn eftir að baujan er
komin upp. Og henni fylgja
iæki, sem hægt er að nota sem
eins konar björgunarbáda til að
ná mönnunum úr kafbátnum.
- - Sést bauja af nýjustu amer-
ískri gerð hér á myndinni.
Sara Churchill, dóttir Winstons
gamla Churchill, flaug mjlega
til New York, til þess að vera
viðstödd frumsýningu á síðustu
ensku myndinni er hún lék í.
Falleg stúlka — ferlegur hund-
ur. Myndin er tekin af frönsku
leikkonunni Mörlu Mitchell og
hundi hennar á Flórídaströnd.
D. U. Stikker, utanríkisráðherra
Hollands og fulltrúi þess í Ev-
rópuráðinu.
TÓBAKSNOTKUN BARNA.
Fræðslumálastjórnin í Stokkhólmi
hefir nýlega látið fara fram skýrslu-
gerð um ýmislegt viðvíkjandi börn-
iHuun í skóla einum, sem í eru 700
börn. Þar á meðal tóbaksnotkun
barnanna. Kom á daginn, að eigi
færri en 32% af börnum voru far-
in að reykja er þau voru 15 ára.
Af 11 ára börnum fundust 4% af
drengjunum, sem voru farnir að
reykja í laumi, og af 12 ára drengj-
um reyktu 15%. Af 12 ára telpum
voru líka 6 af hverjum 100 telpum
byrjaðar að reykja. Laumureykingar
sænskra barna hafa ágerst mjög síð-
Tckst með naumindum. — Að-
alleiðtogi kommúnista í Vestur-
hýskalandi, Max Reimann, féll
fyrir sósíaldemókrata í Dort-
mund við hinar nýafstöðnu þing
kosningar. Reimann komst samt
á þing sem uppbótarþingmaður.
ustu árin og eru blátt áfram orðinn
alvarlegur löstur hjá mörgum börn-
um í 7. bekk, segir einn kennarinn,
sem athugað hefir þetta mál.
BLEKBLÝANTAR VARASAMIR.
í Sösdala i Svíþjóð bar það við ný-
lega að tveggja ára telpa náði í
blekblýant (kopiublýant) og nagaði
hún talsvert mikið af blýinu úr
honum. Hún varð meðvitundarlaus
von bráðar, en af því að hún var
send á spítala að vörmu spori og
dælt upp úr henni tókst að bjarga
henni frá dauða. Þessir blýantar eru
eitraðir.