Fálkinn - 04.11.1949, Blaðsíða 10
10
FÁLKINN
J
iéE
YNG/ftf
U/SNbtfKHIK
Hundar í kvikmyndum.
í 25 ár hefir Henry East verið
einn færasti hundaþjálfari í Holly-
wood. Erfiðasta viðfangsefnið fékk
liann er hann æfði hundinn „Ástu“
i kvikmyndinni „Granni maðurinn."
Hundur þessi var orðinn svo las-
burða að kvikmyndafélagið hélt að
Heilabrot.
Frænka Péturs á fallegt rósabeð,
me^ rauðum, hvítum og gulum rós-
um. „Hvað eru rauðu rósirnar marg-
ar í dag, frænka?" spyr Pétur. „Það
skaltu reikna út sjálfur,“ svaraði
hún. „Eg var að telja þær og það
eru alls 55 rósir í beðinu og rauðu
rósirnar eru tvöfallt fleiri en þær
hvítu og þrefallt fleiri en þær gulu.“
Hve margar voru rósirnar með
hverjum lit?
Ráðning á bls. 74.
Stór hella-björn.
Henry Eastman launar einum nem-
anda sinna með bita.
hann mundi drepast áður en lokið
yrði við myndina. Þess vegna var
East beðinn að þjálfa nýjan hund,
sem var alveg eins og Ásta. Þetta
tókst en tók tvö ár. Ásta II. var
alveg eins og fyrirrennarinn, og
fólk tók aldrei eftir að það voru
tveir hundar, sem léku hlutverkið.
East hefir líka þjálfað Corky, sem
sést i mörgum kvikmyndum. Corky
er kynblendingur úr þremur ættum
og East segir að það sé duglegasti
hundurinn, sem hann hafi fengist
við um æfina. Hann hefir fleiri lilut-
verk að baki en nokkur kvikmynda-
hundur annar.
East hefir að jafnaði yfir 50
hunda i hundaskóla sínum. Hann
segir að það sé enginn vandi að
kenna „hundakúnstir" ef maður sé
nógu þolinmóður.
í Ítalíu hafa jarðfræðingar fundið
fljót og stöðuvatn i geysistórum
lielli og á vatnsbakkanum er mikið
af steingerfingum af allskonar bein-
og hnútum. Sumt af þessu dóti
hefir verið flutt til London og þaf
liafa vísindamenn gengið úr skugga
um, að beinin eru úr hella-björn-
um, sem lifðu fyrir 150.000 árum.
Af beinunum má ráða að þessi
bjarnartegund hefir verið 61 metra
löng.
Flaug hraðar en hljóðið
Enskur maður liefir nýlega flogið
frá Paris til Cannes, sem er 800 km.
leið, á 47 mínútum. Hann er fyrsti
enski flugmaðurinn sem hefir flog-
ið hraðar en hljóðið, því þó að
meðalhraðinn sé eilítið undir hljóð-
hraðanum þá komst hann stund-
um fram úr lionum á leiðinni. Fyrir
þetta afrek fékk hann ýms verðlaun,
m. a. hálfsmánaðar dvöl á gistihúsi
við Rivierann.
Fuglahræða í eggjavarpi.
Skrftlur
— Jœja, afsakaðu — nú fer ég.
KetsnúÖarnir eru í moðsuðukass-
anum.
— Já, þetta er nú allt gott og
blessað. En kanntu að búa tit drullii-
köku?
hegar börnin eru látin fara of
snemma að hátta.
— Já, það getur vel verið að yður
þyki ekki góð lyktin af tóbakinu
mínu, en ég fullvissa yður um að
óþefurinn af ilmvatninu yðar er
miklu verri.
TÍKIN SEM GRÍSLINGAFÓSTRA.
Bóndi átti veiðitík og gyltu, sem
eignuðust afkvæmi um sama leyti.
Hvolparnir voru drepnir, eins og
venja er til, en gyltan varð sjálf-
dauð, svo að bóndanum hugkvæmd-
ist að venja grísina undir tikina.
Þetta gekk ágætlega og grisirnir
döfnuðu vel.
Tveir peningalausir menn komu
til Ameríku. Annar græddi milljón
dollara. Hann fann vél, sem maður
stakk í 10 centum og þá kom ný
kona út úr vélinni. Hinn græddi
10 milljón dollara. Hann bjó til vél
sem maður stakk konunni sinni inn
i og fékk tíu cent í staðinn.