Fálkinn - 12.05.1950, Blaðsíða 15
FÁLKINN
15
EINNIG ÞÉR!
fegurðarstjarna
Hin yndislega stjarna,
Geraldine Fitzgerald,
segir —
Það er dásamlegt hvernig Lux hand-
sápan gerir húðina mýkri, sléttari —
sannarlega fegurri. Fyrst hyl ég and-
lit mitt í hinu ríkulega löðri, nugga
léttilega inn, en þó fullkomlega. Því
næst skola það með volgu vatni og
svo úr köldu. Látið hörund yðar
njóta þessarar einföldu fegurðarað-
gerðar. Það er svo fljótlegt, svo auð-
velt.
Þér munduð einnig elska hinn
mjúka ilm Lux handsápunnar.
LUX HANDSÁPA
\j
A LEVER peodoct
X-LTS 702/1-989-50
HIN ILMANDI HVÍTA SÁPA KVIKMYNDASTJARNANNA.
LjósmpdastofA
mín er flutt í Austurstræti 9 II. hæð.
Myndatökum í heimahúsum verður haldið áfram eftir því sem
við verður komið. Myndatökur á ljósmyndastofunni verða fyrst
um sinn aðeins teknar samkvæmt fyrirfram pöntuðum tíma. —
Ljósmyndastoía Þórarins Sigurðssonar
Austurstræti 9 II. hæð. Sími 1367.
Auglýsing
um áburðarverð
Heildsöluverð tilbúins áburðar er ákveðið þannig:
Ammoníaksaltpétur 33.5% ....... 45 kgr. kr. 66.00
Kalkmmonsaltpétur 20.5% ...... 100 -—- — 87.00
Ammonsulfatsaltpétur 26.0% .... 75 — — 83.00
Þrífosfat 45% ................. 50 — — 64.00
sama 45% .................... 45 — — 59.00
Superfosfat 20% ............... 45 — — 26.00
Kalí 60% 100 — — 90.00
sama 60% .................... 50 — — 46.00
Brennisteinssúrt kalí .... 100 —- — 100.00
Tröllamjöl .................... 50 — — 54.00
Verðið miðast við áburðinn kominn á liafnir, sem
skip Eimskipafélags Islands og Skipaútgerðar rikisins
koma á.
Verslunum og öðrum sem áburðinn selja er beimil
álagning fyrir uppskipun, flutning, afhendingu og öðr-
um ólijákvæmilegum kostnaði.
Reykjavik, 3. maí 1950.
Áburðarsala ríkisins
t
HVORKI EITT EÐA ANNAÐ.
André d’Oipus, seni vakti athygli
fyrir það í fyrra að hann gat stöðv-
að uppboð, sem verið var að halda
á reitum Petains fyrrum marskálks,
var fyrir nokkru dæmdur í 15 daga
fangelsi og 25.000 franka sekt. Hon-
um liafið tekist að hindra uppboð
með því að ljúga til nafns og segj-
ast vera markgreifinn af Belleval.
sem liefði barist sem ofursti í
l'yrri heimsstyrjöldinni, liklega um
]>að leyti sem herinn var að halda
heim. Á uppboðinu mætti hann með
foringjastaf, veifaði honum ógnandi
yfir höfði sér og hrópaði: „Þetta
er blettur á heiðri Frakklands!“ Og
það var nóg lil að uppboðshaldar-
inn liætli og fólk laumaðist út. — í
málinu gegn þessum herskáa ofur-
liuga kom það á daginn að hann
var hvorki markgreifi né ofursti.
Það liafði ekki lieldur kveðið svo
mikið að honum í fyrri styrjöldinni
að þess sæist nokkurs staðar getið.
Og nú hefir uppboðið eftir Petain
haldið áfram, án markgreifa og
ofursta.
LJÓT SKÝRSLA.
Árið sem leið voru þrír svertingj-
ar barðir í hel í Bandaríkjunum, en
17 komust undan sömu örlögum á
siðustu stundu. Það er svertingja-
stofnunin Tuskegee Institute, sem
gefur þessa skýrslu. Fyrsta tilfellið
yarð 29. maí í fyrra, er negri sem
sakaður var um að hafa valdið upp-
þoti og sýnt lögreglunni mótþróa,
var sóttvr í fangelsið af æstum múg
og barinn i hel. Annar var drepinn
2. júií og sök hans var ekki önnur
en sú, að hann var ekki nógu fljótur
til að koma sér út af akbrautinni er
bifreið fór hjá. Sá þriðji var skot-
inn 2. ágúst eftir að hafa lent í ill-
deilum við livíta menn, sem höfðu
verið að veiða í tjörninni hans í
ieyfisleysi.
Síðan Tuskegee Institute fór að
halda skýrslur 1882 hafa alls 4722
menn verið „lynchaðir“ í Bandarikj-
unum, 3429 svartir og 1293 hvítir.
Flestir urðu beir árið 1892, sem
þessum dauðdaga sættu, eða 231, en
fæstir 1 á ári, árin 1945 og 1947.
KöTTUIi VEIÐIR KANÍNUR.
Stór köttur, sem vegur 7 kíló,
liefir lagt það fyrir sig að stunda
kaninuveiðar. Það er bóndinn Ilar-
vey H. Ferguson sem á köttinn, og
hann lieitir Hibiscus. Fyrrum liafði
kötturinn haft stóra kaninu til að
leika sér við, en liún drapst. Hibiscus
saknaði auðsjáanlega vinar síns þegar
í stað, því að síðan hefir liann gert sér
ferðir inn i skóg á hverjum degi til að
veiða kaninur. Hann hefir náð i 18
alls, en ekki skaddað eina einustu
af þeim.
Tilkynning um
lóðahreinsun
Með tilvísun til 10. og 11. gr. heilbrigðissamþykktar
Reykjavikur eru búseigendur hér með áminntir um að
flytja af lóðum sínum allt, er veldur óþrifnaði og ó-
prýði og liafa lokið því fyrir 15. maí n. k. Hreinsunin
verður að öðrum, kosti framkvæmd á kostnað liúseig-
anda. — — Upplýsingar í skrifstofu borgarlæknis,
sími 3210.
Heilbrigðisnefnd