Fálkinn


Fálkinn - 02.06.1950, Side 3

Fálkinn - 02.06.1950, Side 3
FÁLKINN 3 Farouk konungur. Brátt fóru þó að kvisast út sögur um Farouk. Hann héldi íburðarmikl- ar drykkjuveislur, sækti miður góða Narriman Sadek. glæst af iþróttaafreluim og háttvísi í liina. Siálfselskan og viljinn til þess að verða sannur lejðtogi þjóðarinnar berjast hatramlega hið innra með honum. Þegar Fuad konungur, faðir Far- ouks, dó árið 1936, þá var Farouk að eins 16 ára. Hann fæddist 11. febr. 1920, 3 árum eftir, að Fuad kom til valda sem „khediv“ á eftir Hussein. Fuad var afkomandi Mohammed Ali, albansks tóbaksekrueiganda, sem Tyrkir gerðu að vísikóngi i Egypta- landi árið 1805 og kom fótum undir konungsættina, sem síðan hefir ríkt i hinu meira og minna sjálfstæða Egyptalandi. Farouk er feitlaginn að eðlisfari eins og systur hans allar, Fawsia, Farouk konungur og Farida drottning. skemmtistaði og legði lag sitt við ýmsar konur, sem lausar væru á kost- unum. Farida varð hvekkt á óstöðug- lyndi og léttúð manns síns og sótti um skilnað árið 1944. Farouk vildi ekki veita hann, því að Farida hefir þrátt fyrir allt verið augasteinn lífs hans. Hinn 17. nóv. 1948 veitti liann skilnaðinn að áeggjun vina. Farida býr nú í liöll nálægt Cairo. Hún læt- ur sjaldan sjá sig á almannafæri, en þá sjaldan það kemur fyrir, keppist fólk um að tjá henni hollustu sína, því að hún hefir haldið vinsældum í jafn rikum mæli og Farouk licfir glatað þeim. Þjóðin segir: „Enginn drottning nema Farida“. Hneigð Farouks til kvenna og slarks kom strax fram á unga aldri. Aðal- hetja síðari tíma í augum Iians var Ismail „khediv“, afi hans. Hann átti kvennabúr með 3000 konum og drapst af þvi að reyna að teyga viðstöðu- laust 2 flöskur of kampavíni árið 1935. EDEN VIÐ MIÐJARÐARHAF. Sir Anthony Eden, fyrrverandi utan rikisráðherra sést hér koma á flug- völlinn í Nizza. Hann lók sér langt frí þar syðra eftir ensku kosning- arnar. Til hægri: DAUÐADÆMDUR 19 ÁRA. Werner Gladow, 19 ára piltur í Berlin, liefir verið dæmdur til dauða af dómstóli í Austur-Berlin fyrir að hafa stjórnað bófaflokki, sem hefir fleiri niðingsverk á saritoiskunni, en nokkur annar glæpamannaflokkur í Berlin. Þessir bófar höfðu framið 127 glæpi, þar á meðal nokkur morð og fjölda margar morðtilraunir. Hinn ungi bófaforingi hefir játað að hann liafi fengið hugmyndirnar að hryðju- verkum sínum við lestur reyfara og að bófinn A1 Capone hafi verið fyrir mynd hans. — Á myndinni sést Gla- dow fyrir rétti, er dauðadómurinn var kveðinn upp. Bakatil sést annar af hættulegustu mönnunum í hópnum, sem einnig var dæmdur til dauða. TRA-TRALLERA-TRA-TRA. Nú er það ekki sjaldgæft lengur að sjá kvenfólk í herdeildarhljóm- sveitum. I Englandi eru margar slíkar hljómsveitir, ekki síst í kvennahjálp- arsveitunum W.R.A.C. Stúlkurnar á myndinni eru úr einni þeirra. Vandrieðakóngurinn Farouk Siðustu mánuðina hefir nafn Far- ouks Egyptalandskonungs verið venju fremur nefnt i fréttum — og síst vin- samlega. Hvers vegna? Jú, það er út af kvennamálum, og það er ekki i fyrsta skiptið, sem hann er bendlaður við konur og hneykslismál. Ævi lians liefir verið sambland vinsælda og hat- urs þegna hans, þrungin sællífi og hneykslismálum i aðra röndina, en Faika og Fathia (Fuad liafði yndi af nöfnum, sem byrjuðu á F). Hann hlaut góða menntun í æsku. Lærði að tala ensku og frönsku auk arabisku, sem var bið opinbera mál Egypta. Leik- bræður hans allir voru úr lieldri manna stétt, m. a. ítalskur drengur. Farouk liefir líka jafnan verið ítölum liollur, og reyndi sérstaklega á það í heimsstyrjöldinni. Hins vegar hefir hann haft horn i síðu Breta, þó að saihbúöin fari batnandi. Hefir jafn- vel komið til mála, að hann fari í opinbera heimsókn til Englands. Árið eftir dauða Fuads, er Farouk hafði numið hermennsku í Englandi, fór hann með móður sinni og systrúm til Svisslands. Þar kynntist hann Sasi Naz Zulficar, 15 ára gamalli stúlku. Hann giftist lienni 6 mánuðum eftir að hann var krýndur sem konungur, fyrsti konungur fullfrjáls Egypta- lands, siðan á dögum „faraóanna". Sambúð konungshjónanna var ágæt í fyrstu. Farouk og „Farida“ hans voru vinsælustu og laglegustu kon- ungshjón í heimi. Þau eiga þrjár dæt- ur, Ferial, Fawsiu og Fadiu, 11, 10 og 6 ára gamlar. Zaki Ilashem, hagfræðingurinn, sem Narriman Sadek var heitin, þegar Farouk lét hana slíta trúlofuninni, sést hér umkringdur af blaðamönnum í Paris. Hann er á leið til Egyptaland s til þess að huga að málum sínum. Æarouk er einþykkur og ráðríkur. í útliti er hann eins og bankastjóra sæmir. Feitur, alvarlegur, gisinhærð- ur og virðulegur. Síðasta afrek Farouks er það, að hann ákvað að ganga að eiga Narri- man Sadek, 16 ára stúlku úr borgara- stétt, þrátt fyrir gífurlegt aðkast í öllum blöðum heims að heita má, þar sem stúlkan var heitin egypska liag- fræðingnum Zaki Hashem, sem unnið liefir sem ráðunautur Egyptalands á þingum Sameinuðu þjóðanna.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.