Fálkinn - 13.04.1951, Síða 3
FÁLKINN
3
Leikfélag Hafnarfjarðar:
„Nóttin langa“
Eftir Jóhannes Steinsson.
Lcikfélag Hafnarfjarðar hafði
frumsýningu á leikritinu ,,Nóttin
langa“ eftir Jóhann'es Steinsson síð-
astliðið laugardagskvöld.
Gnnnar Bjarnason í hlutverki
stórkaupmannsins.
„Nóttin langa“ er í senn gaman-
leikur og ádeila. Leikritið fékk mcð-
mæli dómnefndarinnar í leikrita-
samkeppni Þjóðleikhússins í fyrra,
])ó að vcrðlaun hlyti það ekki. Höf-
undurinn, Jóhannes Steinsson, fer
hér vel af stað. Siðasti þáttur leiks-
ins er afburðasnjall, og skemmtileg-
ur, og þar hefir liöfundi fekist sér-
staklega vel að svipta dulunni frá
síngirni mann'eðlisins og lýsa bak-
tjaldamakki og klækjum dægurlífs-
is, en hvort tveggja rífur liann sund-
ur og saman i háði. Hnyttin gaman-
yrði fjúka öðru hvoru og stundum
allþétt i hverjum þætti, en óneitan-
lega er þó leikritið full þunglama-
legt fyrst framan af. En þeim mun
meiri verður stígandinn, og höfundi
tekst að halda áhorfendum í eftir-
væþtingu allan iimann.
Hiutverkin eru flest álíka stór, og
lcikendurnir gera þeim allir sóma-
samleg skil. Gunnar Bjarnafion leik-
ur þarna sem gestur, en aðrir leik-
arar eru Kristjana Breiðfjörð, Haf-
steinn Bajdvinsson, Hulda Runólfs-
dóttir, Sigurður Kristinsson, Auður
Guðmundsdóttir, Jóhanna IJjaltalin,
Ölafur Örn Árnason og Vajgeir Óli
Gislason.
Ymsir leikenda eru svo til ný-
liðar á lciksviðinu, og er þvi ánægju-
legt að vita til þess, að svo vel skuli
vera á spilunum haldið, að hvergi
verði lciksýningin götótt.
Leikstjóri er Einar Pálsson, og lief-
ir lionum farist starf sitt vel úr
hendi, því að uppsetning leiksins er
alls ekki vandalaus, þótt aldrei sé
skipt um leiksvið.
Meira lið til Kóreu. — Þátttaka ldríverskra hermanna í Kóreu-
stríðinu hefir haft frað í för með sér að UNO hefir enn orðið
að senda liðsauka þangað. Ýmsar UNO-Jjjóðir, en Jjó engin
NorðurlandaJjjóð, hafa orðið til þess að senda lið, m. a. Tyrk-
ir. Á myndinni, sem er tekin á Pusan í Suður-Kóreu sést Natik
Poyrazogin ofursti, sem stjórnar fyrstu tyrknesku sveitunum
í Kóreu. Hann er að taka á móti blómum. Á myndinni sjást
tyrkneska- og UNO-flaggið hlið við hlið.
Páskar í Ameríku. — Það er haldið dálítið öðruvísi upp á
páskana i Bandaríkjunum en hjá okkur. Auk hinnar hefð-
bundnu ' Fifth Avenue skrautsýningar í New York voru nú
1000 páskaliljur gróðursettar í Channel Gardens í Rockefeller
Center borgarbúum til augnayndis. Meðal blómanna var kom-
ið fyrir risastórum rauðum krossi til þess að minna á söfnun
Rauða krossins.
Danir hafa búið til mikið af
Churchill-skrítlum síðan gamli mað-
urinn var á ferð i Danmörku. Hér
er ein: Churchill var á dansleik
og dama hans spurði: — Segið þér
mér, mr. Chúrchili, hvers konar
dans er það eiginlega, sem Bevin
utanríkisráðherra dansar? — Það er
alls cnginn dans, svaraði Churchill,
það er verkamannahreyfing.
„Herra ritstjóri: — Eg er ástfang-
inn af óbreyttri stúlku, en rík stúlka
vill endilega giftast mér. Hvað á ég
að gera “
Svar ritstjórans: „Gifstu þeirri
sem þú elskar, fyrir alla lifandi
muni, og sendu mér nafn og lieim-
ilisfang hinnar.“
MlV/V<V/V/W<WlV/
Loftbélgir austur yfir járntjald. Nýlega voru 50.000 heliumfyllt-
ir loftbelgir sendir í loft upp i Wien, og var þeim ætlað að
fara austur fyrir járntjald. Á hverjum belg er ritaður áróð-
ur fyrir frjálsri Evrópu á fjórum tungumálum. Hér sjást
nokkrir belgir leggja í loft upp.