Fálkinn - 20.02.1953, Page 3
FÁLKINN
3
ÍSLENSKIR SJÓMENN HEIMSÆKJA AÐALBÆKISTÖÐVAR SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA. — Skipshöfnin á Tröllafossi heimsótti aðalbækistöðv-
ar Sameinuðu þjóðanna í New York 16. desember síðastliðinn. Mynd þessi var tekin við það tækifæri í einu hinna litlu fundaherbergja. í miðju
eru þcir Thor Thors fulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og sendiherra í Bandaríkjunum, og Eymundur skipsstjóri á Tröllafossi. Við þetta
tækifæri voru teknar upp til flutnings heima á íslandi jólakveðjur skipsmanna til vina og vandamanna heima. — Ljósm.: UNATIONS.
HANN SPILAR LÍKA TENNIS.
Þessi tennisleikari sem hefir slegið
boltann, hefir orðið frægur á sínu
sviði, þótt ekki sé hann tennismeist-
ari. Það er nefnilega enginn annar
cn fiðlusnillingurinn Jascha Heifetz,
sem er að liðka sig þarna, á tennis-
velli í Kaliforníu.
LÍKA í BURMA. — Það er leiðinlegt
þegar frumþjóðir stæla flónskupör
hvítra manna, en vitanlega er það
eðlilegt. í Burma hafa þeir t. d. haft
fegurðarsamkeppni og kusu „miss
Universe" og „mr. Ditto“ líka. Hérna
sjáið þið framan í þau.
Nýtt vandamál.
Starfsmaður hjá borgarstjórninni
í Stokfchólmi er kominn í klípu út af
tengdamóður sinni. Hún dó nefnilega
eins og tengdamæður gcra alltaf á
endanum, og hann bað skrifstofu-
stjórann sinn um þriggja daga leyfi
til að fara við jarðarförina. En nú
vandaðist málið. Skrifstofustjórinn
vissi, að þessi maður var búinn að
missa konuna, og nú var spurningin:
hafði tengdamóðirin ekki iiætt að
vera tengdamóðir mannsins um leið
og konan hans dó. Það munaði nfl.
því, að ef hún taldist tengdamóðir
hans þá átti hann kröfu á að fá fríið
með fullu kaupi, en annars skyldi
það dregið frá vinnudögunum. Nú
sitja fróðustu menn á ýmsum skrif-
stofum borgarinnar með sveitta skalla
og reyna að komast að því rétta i
málinu, en vitanlega er rannsóknin
búin að kosta miklu meira en þriggja
daga vinnu.
SNARRÆÐI. — Albert Gunter, 46 ára
bílstjóri frá London bjargaði nýlega
bílnum sínum og farþegunum frá slysi
með því að herða á honum á Tower
Bridge, þegar brúarhlerarnir voru að
fara upp. Hér fær hann verðlaun
fyrir snarræðið.
KNATTSPYRNA Á HESTBAKI.
Lögreglan í Vestur-Berlín getur fleira
en stjórnað umferðinni og elt uppi
glæpamenn. Einu sinni á ári heldur
hún íþróttasýningu og þar fær al-
menningur að sjá lögreglumennina
sem íþróttamenn. — Myndin er frá
síðustu sýningunni á Ólympíuleik-
vanginum, þar sem lögreglan keppti
í knattspyrnu á hestbaki.
ÞRÍR HINIR BESTU. Heimsmeistarakeppni í listhlaupi á skautum var
nýlega háð í Davos í Sviss. Hér sjást þrír liinna bestu. Talið frá vinstri
eru það James D. Grogan frá Bandaríkjunum (annar), hinn 19 ára gamli
Bandaríkjamaður Hayes A. Jenkins (sigurvegari) og ítalinn Carlo Fassi.