Fálkinn - 27.02.1953, Qupperneq 9
FÁLKINN
9
jafnan hægt og gáfu sér tíma til
að góna á Renato og þegar svo
stóð á fékk hann velgju og fór
að kúgast. Einu sinni fór hann
að gráta, það var þegar hermað-
urinn sem hjá 'honum sat gaf hon-
um vindling.
Sá sem úti í horninu sat vakn-
aði, geispaði og teygði úr sér.
Morgunsólin skaut geislastöfum
yfir þveran salinn gegnum rykið
í loftinu.
Skipunarköll heyrðust úti og
hermennirnir fóru í óða önn að
laga á sér reiðinginn. Dyrnar opn-
uðust og þrír foringjar komu inn,
tveir kornungir, sá þriðji allrosk-
inn og hæruskotinn. Þéir settust
við borðið og sá gráhærði sat
þegjandi um stund og horfði á
Renato.
— Hve gamall ert þú, drengur
minn? sagði hann, röddin var
mild svo að Renato fann tárin
brenna undir augnalokunum.
— Tuttugu ára.
Það var kökkur í hálsinum á
honum. Perlufestin iá á borðinu
og þeir skoðuðu hana hver eftir
annan, allir þrír.
Tárin brutust fram svo að hann
fékk glýju í augun. Útlinurnar á
mönnunum þremur 'hurfu í móðu
og þeir urðu eins og flöktandi
skuggar.
— Eg er kvæntur og á átta
mánaða gamlan dreng, hvíslaði
hann.
— Hvar stalstu perlufestinni?
spurði annar ungi liðsforinginn
og hvessti á hann köldum aug-
unum.
Renato fannst líkast og 'hann
heyrði sína eigin rödd einhvers
staðar utan úr fjarskanum, er
hann var að skýra frá því að þeg-
ar hann var í björgunarstarfinu
við Sandrino, skömmu eftir að
flóðgarðurinn bilaði hefði hann
fundið perlufestina í húsi, sem
fólkið hafði flúið úr. I einföldum,
stuttum setningum gerði hann
grein fyrir hvernig freistingin
kom yfir hann og illur andi hvísl-
aði að honum, að þessa festi gæti
* hann haft með sér heim og gefið
henni Maríu.
— Þetta er dýr festi, sagði sá
hæruskotni þegar Renato þagn-
aði. Eg vil að þú gerir þér Ijóst
að það er ekki verðmæti þýfsins
sem knýr þjóðfélagið til að taka
hart á svona athöfn.
Renato sundlaði. Hann studdi
höfðinu fram á hendurnar.
— Mig langaði til að gleðja
hana Maríu, muldraði hann.
— Ástin afsakar mikið meðan
hún gerir ekki manninn óhæfan
til að þekkja greinarmun góðs
og ills.
Röddin varð allt í einu hörð og
tilfinningalaus.
— Lögin viðurkenna ekki ást-
ina sem fullgilda afsökun. Lögin
þekkja aðeins eina refsingu handa
Vitið þér...?
að mangofræ spara Indverjum
milljónir sterlingspunda á ári?
Indverskir vísindamenn hafa sem
sé sannað að fræ mangotrésins, sem
'hingað til hefir verið fleygt, inniheld-
ur efni sem er,u ágæt til fóðurbætis.
Má blanda möluðu mangófræi saman
við olíukökur eða kornblöndur. Eftir
þvi sem skepnurnar venjast mango-
fræinu má nota meira af þeim í fóður-
blöndurnar, allt að einum fjórða hluta.
Með þessu móti geta Indverjar sparað
sér yfir 40 milljón dollara. Auk þe'ss
má vinna 140.000 smálestir af sterkju
úr kjörnunum.
að USA sem hefir 281 talsíma á
1000 íbúa er mesta talsímaland í
heimi?
Sviþjóð kemur næst með 239 síma
á þúsund manns, þá Kanada, Sviss og
Nýja Sjáland, en Danmörk er í G.
sæti með 109 'síma á þúsund manns.
TALSÍMUNUM fer sifeilt fjölgandi og
í dag eru þeir þrjátiu sinnum fleiri
en fyrir 50 árum. AIls eru 75 milljón
tatsímar í heiminum, segir í skýrslu
frá „The American Teiephone and
Telegrap'h Company", og langflestir
í Bandaríkjunum, eða 43 milljónir, eða
11 milljónum fleiri en annars staðar
i veröldinni til samans. 1 Stóra-Bret-
landi eru 5,4 milljón símar, í Kanada
2,9 milljón. I Bandaríkjunum koma
28,1 simar á hverja 100 manns, en í
Svíþjóð 23,9. Að tiltölu við fólksfjölda
hefir engin borg eins marga síma og
Washington, en næst kemur San
Francisco og þá Stokkhólmur.
þeim sem verður brotlegur við
þjóðfélagið þegar svona er ástatt.
Herrar mínir!
Það urgaði í stólfótunum við
gólfið þegar þeir stóðu upp. Eitt
augnablik var dauðaþögn í saln-
um. I fjarska var klukkum hringt
til morgunbænar.
— Samkvæmt lögum um und-
antekningarástand ....
Renato þrýsti höndunum að
eyrunum og hneig máttlaus nið-
ur í stólinn.
KROSSGATA NR. 894
Lárétt skýring:
1. iðka, 4. ljótar, 10. úrgangur, 11.
stórt verslunarfyrirtæki í Reykjavík,
14. sukksamt liferni, 16. umdæmis-
bókstafir, 17. tveir samhljóðar, 18.
köttur, 19. kvenmannsnafn, 21. bruðla,
22. föðurfaðir, 23. skepna, 24. fram-
hleypin, 26. 52 vikur, 27. yfirsjón, 28.
hengslast, 30. gamalt matarilát, 32.
likamshluti, 33. málfræðiskammstöf-
un, 34. samtíningur matar, 36. & 51.
krossgátustjarnan, 38. siða, 40. agn,
41. gagnstætt: úti, 43. keyrir, 44.
gangflöt, 46. 'hæð, 47. á undan, 48.
hægindi, 50. krota, 51. sjá 36 lárétt,
52. karhnannsnafn.
Lóðrétt skýring:
2. slagorð, 3. bjálfi, 4. fæddi, 5. sáð-
blettur, 6. þyngdareining (skst), 7.
fiskhúð, 8. flan, 9. ungdómur, 11.
skst., 12. gefur eftir, 15. blævængur,
16. vann eið, 17. hálfsvefn, 19. leigu-
tól, 20. bera af, 21. hvarf i kaf, 23.
mjólkurúrgangur, 25. dugleg, 26.
mjólkurafurð, 28. heimsækjendur, 29.
auðugt námasvæði i ráðstjórnar-
ríkjunum, 31. ekki gamall, 35.
saumaáhald, 36. svar, 37. sex, 38.
ræktarlönd, 39. eldstæði (þf), 42.
skild, 43. líkamshluti, 45. ástsæl, 47.
ekki mörg, 48. veðurátt (skst.), 49.
mjög algeng skammstöfun, 50. tveir
samhljóðar.
* Allt með íslenskum skipuni! *
— Halló, frú Blindskers — hérna
er bréf til yðar!
LAUSN A KR0SS0. NR. 893
Lárétt ráðning:
1. Cato, 3. Þorri, 7. ball, 9. flug, 11.
ólga, 13. snar, 15. mara, 17. tæp, 19.
kreppan, 22. Una, 24. fim, 26. tveir,
27. ýsa, 28. bilar, 30. aka, 31. slark,
33. er, 34. nam, 36. óku, 37. R. E., 38.
angar, 39. brask, 40. A. G., (Alfreð
Gislason), 42. tak, 44. att, 45. an, 46.
ratar, 48. til, 50. Arita, 52. tól, 53.
basar, 55. Ari, 56. haf, 57. hrukkur,
59. aða, 61.- aula, 63. narr, 65. sóun,
67. ansa, 68. lýsa, 69. trúði, 70. kæti.
Lóðrétt ráðning:
1. cent, 2. ofn, 3. þurrt, 4. og, 5. ró,
6. ilmar, 7. 'bar, 8. læ'sa, 10. lak, 12.
gan, 13. spil, 14. speki, 16. ausa, 18.
æfir, 20. Eva, 21. Pía, 23. narr, 25.
manntal, 27. ýlustrá, 28. berar, 29.
ragar, 31. skata, 32. kenna, 35. mak,
36. óra, 41. gata, 43. viska, 45. atið,
47. tófa, 48. tau, 49. lak, 51. írar, 53.
braut, 54. runni, 56. höll, 57. kló, 58.
ras, 60. andi, 62. U.S.A., 64. rak, 66.
nr., 67. að.
FÁLKINN - VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM - Afgreiðsla: Bankastræti 3, Reykjavík.
Opin kl. 10-12 og 1-6. Blaðið kemur út á föstudögum. Áskriftir greiðist fyrirfram.
Ritstjóri: Skúli Skúlason. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested. - HERBERTSprent.