Fálkinn - 13.03.1953, Blaðsíða 10
10
FÁLKINN
Haldið hörundinu heilbrigðu
það skapar eðlilega fegurð
CADYL, — Rexona er eina sápan sem
inniheldur undraeínið Cadyl. 1 því eru
sótthreinsandi og græðandi olíur, —
það eyðir lykt.
Til þess að lu'iðin fái hið dáða útilit þá verðið þér að viðhalda
lieilbrigði hennar. Heilbrigt hörund vekur ávallt eftirtekt, það
ljómar af 'hreinleika. Einföld en skemmtileg aðferð til viðhalds
beilbrigði ihörundsins er að nota ávallt Rexona-sápu. Inni-
heldur Cadyl — Rexotla hjálpar náttúrunni til að 'halda
húðinni mjúkri og hreinni. Hinn hressandi ilmur og hið
mjúka sápulöður gerir það dásamlegt að nota Rexona.
Fegurð yðar og yndisþokki ....................................................................................................................................................................................................................................................................................... Rexona!
(K&xjorna
Inniheidur Cadyr'
Sápan
Þú ræður hvort þú trúir þessu
Fyrirbrigðín í gamla shélannm
Ilreppsnefndargjaldkerinn Þórður
Lindblom hefir sagt „Dagens Nyhet-
er“ eftirfarandi sögu:
Það var einn fagran sólskinsdag
fyrir nokkru, að við Eiríkur Björk-
strand bókári hreppsnefndarinnar
vorum að rýna i eyðublöð sem liann
hafði útfyllt og skjöl sem hann hafði
verið að ganga frá. Allt í einu 'heyr-
um við að danglað var tvisvar í af-
greiðsluborðið, sem stóð svo sein þrjá
metra frá oklcur á hreppsnefndar-
skrifstofunni. Við litum upp og báðir
kölluðum samtímis: „Sástu hönd-
ina?“ Og nú var danglað aftur í borð-
ið með krepptum hnefa en ekki fast.
Svo hvarf allt.
Bæði Lindblom og kona hans hafa
áður heyrt hljóð, sem þau gátu ekki
fundið iskýringu á. Og sama er að
segja um manninn, sem var féhirðir
hreppsnefndarinnar næst á undan
honum. Og ungfrú Anna Gauffin, sem
bjó þarna í skólahúsinu 11 ár, meðan
hún var kennari, hefir hæði heyrt og
séð ýmislegt, sem hún getur ekki
skýrt. Ilúsið er áfast við kapelluna,
sem er gamalt hús og hrörlegt. Og
kirkjugarðurinn með fagurri kirkju
frá 12. öld liggur upp að húsinu.
Lindblomshjónin hafa íbúð á efri
hæð, yfir skrifstofunni. Þau eru ung
og hafa aldrei verið hjátrúarfull.
— Við fluttumst hingað 1. janúar i
fyrra, segir Þórður Lind'blom. — Hús-
ið er byggt skömmu fyrir aldamótin
og var áður notað sem skólahús. Við
höfðum 'heyrt að reimt væri hérna,
og hvorugt okkar tók mark á því. En
svo var það eina nóttina i vetur að
við vöknuðum við umgang í fundar-
salnum hérna niðri. Dyrum var lokið
upp og skellt aftur. Eg hélt að þarna
væru innbrotsþjófar á ferli og flýtti
mér ofan með trjábút í ha gri hend-
inni. En þarna var engan að sjá. Eg
\ ,
S'törmufi'
ku£c£í
qq
gera hana hrjúfa og stökka. pessve9na skyldi
ma&ur óvalt nudda Nivea-kremi rækilega á hu&ina
ó&ur en fari& er út í slæmt vebur. Nivea-krem
veitir örugga vernd, eykur motstö&uafl hú&arinnar,
og gerir hana mjúka og stælta. Hrjuf og rau& hú&
lagast næturlangt og ver&ur aftur slétt og falleg.
HIYEA inniheldur E u c e r i t,
frá því stafa hin dásamlegu áhrif.
athugaði dyr og glugga, — þeir voru
aftur og dyrnar læstar. Eg fann enga
skýringu á þessu. Næsta skipti sem
nokkuð gerðist var bjartan sunnudag
í mars, um miðjan dag. — Maðurinn
minn var ekki heima þá, segir frú
Gun Lindblom, — en við sátum liérna
uppi og vorum að drekka kaffi, tvær
vinkonur mínar og ég. Við röbbuðum
og 'hlógum og vorum kátar. Þá lieyrð-
um við að einhvcr skellti hurðum
niðri. Við vissum að skrifstofurnar
voru ekki opnar. Loks fór sú hugað-
asta okkar niður og við eltum. Við
leituðum í stofunum en fundum eng-
an. Þriðja skiptið sem við höfum orð-
ið einhvers vör, var líka um miðjan
dag — það var höndin sem barði i
borðið í skrifstofunni.
Fyrrverandi reikningshaldari sveit-
arinnar, Erik Norström og Aina kona
hans heyrðu líka hurðarskelli og um-
gang á nóttinni, en ekki fannst nein
ástæða til þess.
Framhaldssaga í myndum,
eftir Charles Dickens.
19. í kirkjunni voru vinir og ætt-
ingjar prinsins og prinsessunnar og
prinsanna og prinsessanna sautján og
allra minnsta prinsins. Hertogafrúin
var brúðarmær, liún stóð upp við púlt-
ið á prédikunarstólnuin.
Á eftir hélt Grandmarina gríðar
stóra veislu. Þau fengu að borða og
drekka eins og þau gátu í sig látið,
og brúðkaupskakan var fimmtiu áln-
ir rúmmáls.
Þegar Grandmarina hafði drukkið
skál ungu brúðhjónanna og Visspilt-
ur prins haldið ræðu og allir höfðu
hrópað húrra! — sagði Grandmarina
við kónginn og drottninguna: „Fram-
vegis verða kaupgreiðsludagarnir 24
á ári, nema 30 þegar hlaupár er.“
20. Svo sneri hún sér að Vissum-
pilti og Aliciu og sagði: „Kæru ungu
vinir, þið eignist 35 börn og þau
verða falleg og þæg. 17 verða drengir
og 18 stúlkur. Þau verða öll með
hrokkið hár og þau fá aldrei mislinga
og eru búin með kighóstann áður en
þau fæðastt" — Þegar þessar góðu
fréttir heyrðust hrópuðu allir húrra.
„Nú er aðeins eitt eftir,“ sagði Grand-
marina að lokum, „við verðum að
koma fiskbeininu fyrir kattarnef.“ Og
um leið tók hún beinið af Aliciu og
henti því í grimma hundinn nábúans
og hann gleypti það í einum bita.
E n d i r .
Ungfrú Anna Gauffin, sem nú er
71 árs, átti heirna í húsinu i 11 ár,
og er sannfærð um að þar gerist yfir-
náttúrulegir hlutir. Hún hefir heyrt
umgang í stiganum á nóttinni og tvisv-
ar hefir hún vaknað við að einhver
var inni í 'herberginu hjá lienni og
kveikti Ijósið.
Annað skiptið sat brúnklædd kona
við rúmstokkinn hjá henni en í hitt
skiplið gekk sama konan frarn og aft-
ur um herbergið og hafði ekki augun
af henni. Þá kallaði ungfrú Gauffin:
— í guðs bænum — hvað viljið þér
hingað? Eg kem yður ekkert við. Eg
hefi ekki gert neitt sem ég þarf að
skammast min fyrir.“
Þá hvarf sú brúnklædda og helir
aldrei sést siðan.