Fálkinn - 24.04.1953, Side 10
10
FÁLKINN
Hróar og Helgi
Framhaldsmyndasaga
fyrir unglinga.
1. Einu sinni var kóngur í Dan-
mörku sem Hálfdan liét. Drottningin
hans var dáin og einkadóttir hans
gift Sævari jarli. Sævar var voldug-
asti maður í ríkinu, næst kónginum.
Hálfdan'var góður konungur. Hann
stjórnaði landinu með hyggindum og
mildi, fólkið elskaði hann og allir
voru vinir hans.
Reginn, einn af hans tryggu þegn-
um, átti heima skammt frá höllinni
ásamt konu sinni og börnum. Reginn
fóstraði tvo unga syni konungs_ Hró-
ar og Helga. Reginn kenndi drengj-
unum allt, sem ungir menn þurftu
að kunná í þá daga.
2. Hróar og Helgi áttu skemmtileg-
asta daga á sumrum. Þá kiifruðu þeir
í trjánum, stukku yfir lækina og syntu
i sjónum. Stundum sigldi Reginn með
þá langt til liafs, og Helgi var fljótur
að læra að haga seglum. — En Hróar
hafði mest gaman af að vera á hest-
baki. Drengirnir áttu örvar og boga
og skildi og sverð, hæfilegt við vöxt
þeiíra. Þeir æfðu sig i vopnfimi að
hætti fullvaxinna manna.
Þegar vetraði voru kynntir lang-
eldar í konungshöllinni. Og þeir Hró-
ar og Helgi lærðu að rista rúnir í tré.
Rúnirnar voru notaðar á sama hátt
og bókstafirnir núna.
3. Hálfdan kóngur átti bróður þann
er Fróði hét. Var hann kóngur í næsta
ríki og öfundaði Hálfdan, því að ríki
Fróða var minna en Iians. Þeir voru
litlir vinir, þvi að Fróði var jafn illur
og slægur sem Hálfdan var góður og
hreinskilinn.
Eina nótt, er Helgí var tíu vetra en
Hróar tólf, réðst Fróði kóngur á bróð-
ur sinn í Hleiðru. Hálfdan kóngur var
í svefni og allir lians menn. Fróði
setti vörð við allar útgöngudyr og bar
svo eld að húsum og vildi brenna
bróður sinn inni. Hálfdan kóngur
freistaði útgöngu, en féll. Bauð Fróði
hirðinni þá grið, ef lnin vildi sverja
sér lvollustueiða.
4. Meðan á orustunni stóð tókst
Regin að bjarga sveinunum Hróari og
Helga út um leynigöng. Héldu þeir
niður að víkinni og fóru hljóðlega,
því að Reginn vissi að Fróði mundi
drepa sveinana ef hann næði þeim.
— Þeir fundu bát í vikinni. „Hvert
skal nú halda, fóstri?“ hvíslaði Helgi.
„Út í eyjar til Vífils," svaraði Reginn.
— Eg er mikið svartsýnn þessa
dagana. í hvert skipti sem vinkonur
konunnar minnar fá sér eitthvað nýtt,
vill hún endilega eignast það sama.
— Eins og þú hafir ekki efni á að
veita henni það?
— Það er nú svo. í gær fékk besta
vinkona hennar sér nýjan mann!
*
Hún iét ljósmynda sig á rústum
forngrisks musteris.
— Þér megið ekki láta bílinn minn
sjást á myndinni, segir hún, -— þvi
að þá heldur hann pabbi vafalaust að
ég hafi ekið á húsið!
*
Nærsýnn maður var boðinn í mið-
degisverð. Klukkutíma eftir að hann
hafði kvatt kom húsbóndinn fram í
ganginn og þar stóð gesturinn enn,
með hatt og í frakka. Hann virtist
mjög viðutan.
— Hvað er þetta? spurði húsbónd-
inn, — stendurðu hér enn?
— Já, svaraði sá nærsýni, — ég
missti gleraugun mín og gat ekki séð
sjálfan mig i speglinum, svo að ég
hélt að ég væri farinn.
*
— Þið piparsveinarnir eruð alltaf
óánægðir með lífið. Giftu þig — þá
ertu minnsta kosti ánægður þegar þú
ert ekki heima.
Vitið þér...?
vas-x
að venjulegt samtal hljómar
helmingi sterkar en þytur í
skógi.
Hljóðstyrkurinn er mældur í ein-
ingum, sem eru kallaðar „fón“, og er
þá miðað við það hljóð, sem er svo
veikt, að eyra mannsins getur aðeins
skynjað það. Það er vitanlega mis-
jafnt hvað fólk talar hátt þegar það
talar saman, en meðalstyrkur raddar
fólks sem talar saman er 40 fón.
Hins vegar er styrkur þytsins í skóg-
artré ekki nema 20 fón. Liðsforingi
sem skipar brýnir röddina svo að hún
verður tvöfalt sterkari en venjuleg
samtalsrödd, eða 80 fón.
að gerðar hafa verið í Ameríku
sérstakir rafmagnslampar (per-
ur), sem cyða ólykt í eldhúsum
eða stofurn?
Þetta cr ekki gert með efnum sem
drekka í sig vonda loftið eða fram-
leiða aðra lykt til að eyða því, heldur
valda geislarnir frá perunni því að
súrefnið í loftinu breytist í ozon, en
þessi lofttegund eyðir slærnu lofti.
Þessar lofthreinsunarperur geta
brunnið samfleytt í hálft ár.
NÚ MÁ SÓLIN KOMA! — Ennþá er
snjór og kuldi á Norðurlöndum, en
þessi unga stúlka er farin að búa sig
undir vorið og hefir keypt sér bæði
sólgleraugu og sólhlíf.
LEIKKONA í HÁLOFTSFLUGI.
Franska filmudísin Simöne Renan er
að kynna hér þrýstiloftsflug um þess-
ar mundir, í tilefni af því að hún á
að leika í mynd sem gerist að nokkru
leyti í jetflugvél. — Hér sést hún með
útbúnað sinn áður en hún fer í fyrstu
háloftsferðina.
Vegna krýningar Elísabetar Breta-
drottningar hafa alls konar minja-
gripir komið á markaðinn. Þessi
stúlka, sem við sjáum hérna, hefir
valið sér höfuðklút með mynd
drottningarinnar.
FÁLKINN - VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM - Afgreiðsla: Bankastræti 3, Reykjavík.
Opin kl. 10-12 og 1-6. Blaðið kemur út á föstudögum. Áskriftir greiðist fyrirfram.
Ritstjóri: Skúli Skúlason. Framkv.stjóri: Svavar Hjaitested. - IIERBERTSprent.
(^RBEITSAMT 1
i. ' ----— L
„Það er ekki bráðnauð-
synlegt að það sé vinna
— það er fyrst og fremst
staða sem mig vantar.“