Fálkinn - 29.05.1953, Blaðsíða 11
FÁLKINN
11
Heimilið í sumarbúningi.
Nú um þessar niundir eru vorhrein-
gerningarnar i fullum gangi hjá flest-
um og getur að ldta Iiúsgögn, gardínur,
gólfteppi og því um líkt úti til viðr-
ingar við nálægt hvert hús.
Og alltaf er það einmitt um þetta
leyti sem húsmæðurnar fara að hugsa
um liið stóra „gardínuspursmál“. „Á
ég að hengja aftur upp gömlu gardin-’
urnar eða á ég að fá mér nýjar?“
Það er nú einu sinni svo, að fal-
■legar gardinur og 'gluggaumbúnaður
yfirleitt er ein hin mesta prýði í
liverri stofu. Eg segi fyrir mig, að
eitt það fyrsta sem ég tek eftir á
hverju heimili eru einmitt gardínurn-
ar fyrir gluggunum. Það er einlivern-
veginn eins og gardínurnar séu tákn-
rænar fyrir smekk og hugmyndaflug
húsmóðurinnar.
En gardinuspursmálið er íslenskum
húsmæðrum óþarflega þungt í skauti
á vorin og tel ég að það stafi aðallega
af því hve fáar þær eru, sem eiga
gardínur til skiptanna, einar fyrir
vetrartímann og aðrar fyrir sumarið.
Einhver kann að segja, að gardínur
séu nú nógu dýrar, þó maður sé ekki
að koma sér upp tvennum fyrir livern
glugga. En þetta er auðvitað liinn
mesti misskilningur. Þegar til lengdar
lætur er það alls ekkert kostnaðar-
samara að eiga bæði vetrar og sumar-
gardínur, og liefir það marga kosti
sem nú skal vikið að.
Fyrst og frernst er það nú tilbreyt-
ingin. Þegar sömu gardínurnar eru
húnar að hanga fyrir gluggunum allan
veturinn er maður orðinn hálfleiður
á þeim í bili, og þegar svo lireingern-
ingunum er lokið er það beinlínis upp-
lífgandi að geta hengt upp aðrar
gardínur fyrir sumarið. Eins getur
það einnig verkað á haustin, að manni
finnst notalegt að setja aftur upp
vetrargardínurnar, til þess að útiloka
með þeim haustrigningar og skamm-
degi, og er þá eins og manni finnist
gömlu gardínurnar, sem maður var
orðinn leiður á í vor eftir veturinn
séu aftur orðnar nýjar og uppyngdar.
Og svona getur þetta gengið koll af
kolli.
Það er líka mikill kostur, að það
sparar húsmóðurinni mikið erfiði að
eiga tvennar gardínur. Nóg er að gera
við hreingerningarnar á vorin þótt
ekki bætist það við, að þurfa að standa
með sveittan skallan dag eftir dag við
að þvo og strauja gardínur. Eða þá
að biða eftir þeim úr hreinsuninni
í marga daga og liafa gardínulaust á
meðan.
Eigi maður aftur á móti tvennar
til skiptanna, þá er ekki annað en að
ganga að sumargardínunum hreinum
og straujuðum inni í skáp frá haustinu
áður, tilbúnum til uppliengingar. Þeg-
ar svo allt er komið i stand í ibúðinni,
og sumargardínurnar komnar fyrir
gluggana, þá getur húsmóðirin farið
að hugsa til þess í næði að þvo og
strauja vetrargardinurnar, svo að
þær séu einnig tilbúnar, þegar að því
kemur að liegnja þær upp með haust-
inu.
Þá er cnn sá kosturinn ótalinn, að
hafi maður þykkar silké, damask eða
flauelisgardínur á veturna, þá hlifir
maður þeim að mestu við því að upp-
litast, þegar hafðar eru aðrar léttari
gardinur yfir sumarið.
Til þess að setja upp hjá sér gar-
dinur á smekklegan hátt þarf maður
hvorki að vera gæddur neinum sér-
stökum listasmekk, né heldur er nauð-
synlegt að vera útlærður hýbýlafræð-
ingur. í bókabúðum má nú fá alls
konar bækur og timarit á ýmsum
tungumálum, þar sem úir og grúir af
alls konar hugmyndum og ráðlegging-
um við gluggaskreytingu. Það eina
sem máður þarf að geta er það, að
velja sér smekklega uppsetningu, scm
liæfir vel þeim glugga sem skreyta
skal, og svo auðvitað það, að velja fal-
lega liti, sem fara vel við húsgögn og
gólfábreiður sem í herberginu eiga að
vera. En íslenskar húsmæður hafa
oft verið sagðar smekklegar, og ætti
því engum að verða skotaskuld úr
þessu.
Nú er hægt að fá allt til alls í bæn-
um. Gardinutegundir hvers konar og
allt l>ví um líkt. Tilbúna ,.stóresa“ má
fá og munstruð „stóresefni“, en einnig
hin fisléttu og endingargóðu orlon- og
nælonefni, sem einmitt eru tilvalin
i sumargardínur. Satín og önnur fín
gluggatjaldaefni eru einnig i mjög
miklu úrvali og sérlega falleg. En sé
verið að velja sér sumargardínur er
rétt að beina athyglinni að „cretonné“-
efnunum og þeim sem munstruð eru
eða rósótt.
Hafi maður liaft þungar gardínur
yfir veturinn með skreyttum kappa
eða „draperuðum“, þá er það bein-
línis livíld og kemur manni í gott
sumarskap, að hengja upp hjá sér
léttar, einfaldar og rósóttar eða
munstraðar gardínur með vorinu.
Stofan klæðist beinlínis í sumarbún-
ing. Eins gætu þunnar, rykktar nylon
ytri-gardínur komið i staðinn fyrir
þunga, munstraða stóresinn sem hékk
fyrir glugganum yfir veturinn.
Loks langar mig til að minnast á
eitt, sem mér einnig finnst of lítið
gert af á heimilunum. Og það er, að
sauma „yfir-áklæði“ (slipcovers) yfir
húsgögnin. Það er enganveginn eins
mikill vandi og margur hyggur, en
hefir alla sömu kostina og taldir voru
upp að ofan fyrir því að eiga sumar-
gardínur, þar eð það bæði hlífir á-
klæði húsgagnanna fyrir sliti og upp-
litun og setur að auk sumarlegan og
og upplífgandi blæ á heimilið.
I Ameríku gera húsmæður t. d. mik-
ið af því að sauma þessi „yfir-áklæði“
sjálfar, og má i mörgum bókum og
timaritum sjá nákvæmar leiðbeining-
ar um það livernig fara á að því. ís-
lenskum húsmæðrum ætti því heldur
ekki að verða skotaskuld úr þvi að
sauma sér slík áklæði fyrir sumarið
því að þær liafg löngum haft orð fyrir
að vera lagnar með nálina, spottann
og saumavélina.
Sannið til, að ef þið látið verða af
því að koma ykkur upp fallegum
ÆfmrelisspÁ
Það hlýtur að vera mikið þarfaþing
öllum þeim, sem ferðalög stunda, að
eiga í fórum sínum tæki líkt þessu
hérna á myndinni. Er þetta suðuket-
ill, sem á örfáum mínútum getur
látið í té heilmikið af sjóðandi vatni,
alveg án tillits til þess hvort það er
hellirigning og blæs á útsunnan eða
er blæjalogn.
GÓÐ HUGMYND.
Pottablóm eru yndi margra hús-
mæðra, og óneitanlcga eru fagurgræn
ræktarleg blóm jafnan til prýði. Þessi
mynd sýnir, hvernig koma má blóm-
um fyrir á skemmtilegan og einfaldan
hátt, og jafnframt er þetta góð hug-
mynd fyrir ung nýgift hjón, sem ekki
eiga mikið af húsgögnum, því að á
þennan hátt er hægt að fylla tómlegt
horn svo að prýði sé að. Laghentur
eiginmaður ætti að geta smíðað þessar
hillur sjálfur, og þær mega vera ann-
að hvort lakkaðar i viðarlitnum eða
málaðar í veggjalit stofunnar.
H Ú S R Á Ð .
Hvítir blettir, sem myndast undan
heitum ílátum á póleruð borð, nást
af með blöndu af salti og oliu (t. d.
saumavélaroliu). Látið fyrst blönduna
liggja um stund á blettunum og nudd-
ið síðan varlega með klút. Saltið
hreinsar blettina en olían kemur í
veg fyrir að borðplatan rispist.
Eitt ráð til að ná ryðbleltum úr
hvítum þvotti er, að leggja sítrónu-
sneiðar á blettinn, aðra á réttu og
hina á röngu, og láta stykkið liggja
úti í sólskini um stund. Ef nauðsyn
krefur, má endúrtaka tilraunina með
nýjum sneiðum. Þetta húsráð kemur
auðvitað ekki að neinu gagni fyrr en
naér dregur sumrinu.
sumargardínum og „yfir-áklæðum“
fyrir sumarið, þá verðið ])ið harð-
ánægðar með sjálfar ykkur og heim-
ilið í sumarbúningi sínum, og allt
lieimilisfólkið og aðkomandi gestir
komast einnig i gott skap af breyt-
ingunni. L.
fyrir vikuna 25. apríl til 1. maí
Laugardagurinn 25. apríl. — Fram-
tíðarihorfur hins komandi árs erii góð-
ar, ekki hvað síst í fjárhagslegu til-
liti. Kringumstæðurnar munu gera
þér fært að auka öryggi þitt. Jafnvel
nú næstu vikurnar munt þú fá tæki-
færi til framsóknar og með dugnaði
munt þú vinna þig áfram. Þú munt
eignast nýja vini og góð vináttusam-
bönd munu biða þín.
Sunnudagurinn 26. apríl. — Þú
munt ná betri tökum á áhugamáluin
þinum á koinandi ári. Hæfileiki þinn
til þess að ná stuðningi annarra og
samvinnu munu aukast eftir þvi sem
mánuðirnir líða. Þú munt verða að
taka ákvörðun um þýðingarmikil
innkaup, og þú ættir að ráðfæra þig
við sérfræðinga. Fjölskyldan og heim-
ilið mun vera það þýðingarmesta i
lífi þínu á næstu mánuðum. Farðu
varlega í það að taka nýja vini inn
í kunningfahóp þinn.
Mánudagurinn 27. apríl. — Starf
þitt mun gera miklar kröfur til þin,
og þú munt þurfa á allri þeirri þekk-
ingu og reynslu að halda, sem þú
ræður yfir. Djörf og framtakssöm
ákvörðun í sambandi við þá mögu-
leika, sem verða munu á vegi þinum
í viðskiptalífinu, geta orðið þér til
mikils gagns. Þú munt ná lengst, ef
þú einbeitir þér að aðalatriðunum,
en eyðir ekki tíma í minniháttar verk-
efni, sem munu vara stuttan tíma.
Þriðjudagurinn 28. apríl. — Næstu
mánuðir munu verða sá hluti ársins,
sem mest reynir á hæfileika þina.
Bæði manndómur þinn og dugnaður
niunu verða að þola reynslu, en jafn-
framt nmnu skapast fyrir þig mögu-
leikar til góðrar framtíðar sem munu
koina að notum um langa framtið.
Mikið mun undir þvi komið að þú
látir ekki skap þitt hlaupa með þig i
gönur. Þolinmæði og velviljuð fram-
koma mun oft fleyta þér áfram.
Miðvikudagurinn 29. apríl. — Það
nmnu verða margar breytingar kring-
um þig, og þú munt af og til verða
fyrir skaða í fjárhagslegu tilliti. En
líka nmnt þú ná góðum árangri vegna
óvenjulegra hæfileika þinna. Starf
þitt mun krefjast liugkvæmi og ár-
vekni. Þú ættir að reyna að styrkja
aðstöðu þína ekki hvað síst livað við-
vikur ást og vináttu.
Fimmtudagur 30. apríl. — Þetta ár
mun gefa þér tækifæri til þess að
koma fram með nýjar hugmyndir og
áætlanir. Þú munt ekki komast hjá
erfiðleikum, sem á stundum niunu
reynast all erfiðir. Það er að þakka
dugnaði þínum og þroska að þrátt
fyrir allt munt þú oft ganga með
sigur af hólmi. Óvænt munu biða
þin ánægjustundir i sambandi við
ást og vináttu.
Föstudagurinn 1. maí. — Þú stend-
ur andspænis mjög erfiðum mánuð-
um, þar sem starf þitt nmn leggja
mikla ábyrgð á þig. Aðstaðan milli
þín og vinar þíns nmn verða innilegri
og mun veita þér mikla gleði. Þú munt
verða fyrir erfiðleikum af og til i
fjárliagslegu tilliti, ef þú gætir ekki
fyllstu varúðar og reynir að halda
efnaliag þínum i jafnvægi.