Fálkinn - 10.07.1953, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Undndm ií Þorgeirsstöinm
Norðmannafélagið hér hefir fengið
5 hektara teig í Heiðmerkurlandi til
að rækta þar skóg. Undanfarin ár
hafa félagsmenrí gróðursett þarna
furu og greni, alls um 7.000 plöntur,
og er gert ráð fyrir frairíhaldandi
skógræktarstarfi í þessari stóru skák,
sem liggur á vinstri liönd þegar ekið
er suður hinn nýja veg, sem bæjar-
stjórn Reykjavíkur liefir lagt suður
um Heiðmörk. Plönturnar dafna yfir-
leitt vel, ein-kum iþær, scm gróður-
settar hafa verið i skjóli birkikjarrs-
ins, sem vex á víð og dreif þarna i
Heiðmörkinni, enda er jarðvegur
sæmilega mikill ofan á hrauninu víð-
ast hvar á þessum slóðum.
Norðmannafélagið hafði hug á því
að koma upp norskum bjálkakofa
þarna á spildunni, þar sem fólk gæti
átt alhvarf er það starfar að skóg-
græðslu og skógarhirðingu þarna í
Ileiðmörkinni. Hefir sú hugsjón rnú
komist í framkvæmd og í haust mun
sömuleiðis ruddur vegur frá liinni
nýju Heiðmerkurbraut upp að búsinu.
Fy'rir síðustu helgi var ríieelt fyrir
hússtæðinu. Torgeir Andersen-Rysst
stakk fyrstu skóflustunguna fyrir
undirstöðuna, að viðstðddri stjórn
Norðmannafélagsins og nokkrum öðr-
um, sem flestir voru sjálfboðaliðar og
byrjuðu þegar að taka til starfa við
ruðning á slóða upp að hinu vænt-
anlega húsi.
Norðmannafélagið var ekki i nein-
um vanda með að velja þessu nýja
skógræktarseli nafn. Það skírði stað-
inn Þorgeirsstaði í höfuðið á Anders-
sen-Rysst sendiherra. En honum má
þakka það öllum öðrum fremur, hve
náin samvinna hefir orðið með Aust-
mönnum og íslendingum hin síðari
ár, — samvinna sem vonandi á eftir
að eflast með ihverju ári. Það er al-
kunna hvílik lyftistöng skógræktar-
fólksskiptin íríilli íslands og Noregs
hafa orðið islenskri skógrækt, en sú
Húsið Þorgeirsstaðir, þar sem það stóð í Tromsö í fyrra.
verða risið upp fallegt og rúmgott
bjálkahús á þessari skógarlendu.
Þetta hefir gerst þannig, að skóg-
ræktarfélagið norska hefir fyrir for-
göngu formanns síns, herra Ringset
og mikla aðstoð Henry Bache, aðal-
ritara Norræna félagsins getað afhent
Norðmannafélaginu hér bjálkahús að
gjöf. Skógræktarfólagið lagði fram
fram mikilsverða stoð og það sem á
vantaði fékkst með gjöfum einstakra
manna fyrir milligöngu Bache aðal-
ritara. Fór svo að skönnnu fyrir jól
var Nordmannslaget tilkynnt, að það
fengi húsið sem jólagjöf.
Þetta hús hafði verið reist af norska
skógræktarfélaginu i tilefni af „Riks-
messen“ sem haldin var í Tromsö í
fyrra. Nú stóð það sem eign Norð-
mannafélagsins ])arna í Tromsö fyrir
jólin, en þá var næstur sá vandi að
fá flutning á því til íslands. Úr þvi
réðst þannig, að Klaus Sunnanaa
fiskimálastjóri bauðst til að láta
flytja húsaviðinn ókeypis til íslands
með eftirlitsskipinu „Nordsel", sem
fylgir norska selveiðiflotanum. við
Grænland. Skilaði „Nordsel“ af sér
viðunum hér í Reykjávík fyrir nokkru.
Meðlimir Norðmannafélagsins munu
svo reisa liúsið í Heiðmörk og verður
verkið unnið í sjálfboðavinnu, og
hugmynd komst í framkvæmd er
fyrst og fremst liinum ágæta umboðs-
manni fi-ændþjóðar vorrar að þakka.
Sendiherrann mælti nokkur orð er
markað hafði verið fyrir rótum Þor-
geirsstaðaskála. Kvaðst hann vonast
til að skálinn gæti orðið mörgum at-
hvarf, þeirra er vinna að skógrækt
i Heiðmörk, jafnt meðlimum Norð-
mannafélagsins sem öðrum. Hann
þakkaði um leið stjórn félagsins, eink-
um formanninum, Farestveit, fyrir
dugnað í framkvæmdum á „nýbýl-
inu“, en auk hans eru í stjórn félags-
ins Tliomas Haarde símafræðingur,
Egill Amlie sendiráðsfulltrúi, Leif
Miiller kaupmaður og Jon Gjessing
cand. med. og chir.
Norðmannafélagið eða Nordmanns-
laget í Reykjavik telur nú 115 með-
limi og á innan vébanda sinna mikla
dugnaðar og álmgamenn, sem munu
vinna kappsamlega að því að fylla
Þorgeirsstaðaland skógi fljótt og vel.
Megum við íslendingar vera þeim
þakklátir fyrir framkvæmdir þeirra
í skógræktarmálum Islands.
Myndin sem hér fylgir er af hús-
inu á Þorgeirsstöðum. Hún er tekin
af húsinu þar sem það stóð í Tromsö
í fyrra.
Skri Ram tekur við forsetahringnum af fyrirrennara sínum, C. Jinar-
ajadasa.
Forsetaskipti í Guðspekifélaginu
Hinn 17. febrúar síðastliðinn tók
N. Shri Ram við starfi forseta í al-
heimsfélagsskap Guðspekisinna. Var
hann kosinn í stað C. Jinarajadasa, er
lét af embætti eftir 7 ára starf og gaf
ekki kost á sér á ný. Kjörtiímabilið er
7 ár og verður Iþví Shri Ram forseti
Guðspekifélagsins næstu 7 árin, ef
honum endist líf og heilsa.
C. Jinarajadasa var fæddur 1875 á
Ceylon. Síðustu árin var hann heilsu-
bilaður, en starfaði þó sem heill væri,
uns yfir lauk. Ilann andaðist 18. f.
m. Var hann þá á fyrirlestraferða-
lagi í Ameríku. Er nú hér mikið skarð
fyrir skildi í Guðspekifélaginu, því
að liinn látni forseti var andlegur
höfðingi, mörgum og miklum kostum
búinn og óþreytandi starfsmaður.
Rithöfundur var hann ágætur og reit
margar bækur um guðspeki og and-
leg mál. Hann var listrænn að eðlis-
fari og skáldhneigður. Einu sinni
kom hann til íslands (1927) á vegum
íslandsdeildar Guðspekifélagsins og
flutti þá fyrirlestra í Reykjavík, á
ísafirði og Akureyri.
Shri Ram, hinn nýi forseti,' er 02
ára að aldri. Hann gekk í Guðspeki-
félagið 1908 og hefir starfað þar mjög
síðan, gegnt ýmsum þýðingarmiklum
embættum og er vel þekktur fyrir-
lesari. Bækur hefir hann einnig rit-
að. Hann er djúphugull maður og
heimspekingur að eðlisfari. Fyrir-
rennari hans í embættiríu, C. Jinar-
ajadasa, fór um hann svofelldum
orðum 17. febrúar síðast liðinn í
Adgar:
Of þungur.
Knapi mr. Plumberthums reyndist
of þungur og Plumb. varð fokvondur:
— Þctta cr í annað skipti sem þú veg-
ur meira en þú mátt, öskraði hann.
— Af hverju borðaðir þú áður en þú
varst veginn?
— Eg át ekki og drakk ekkert
heldur.
— Tókstu út úr þér gervitennurnar?
— Já, herra Plumberthum.
— Klipptir þú neglurnar?
— Já, — það gerði ég ldka.
— Nú veit ég af hverju þetta stafar.
Þú hefir ekki rakað þig-síðan snemma
í morgun.
„Skri Ram er einn af gimsteinum
félagsskapar vors“. Eg veit ekki betur
en að hann sé vitrastur vor allra,*
ekki svo mjög að því er snertir þekk-
ingu á smáatriðum, hcldur hið öfga-
lausa mat, er hann leggur á alla
hluti
Er hér um að ræða mikið hrós af
vörum jafn prðvars manns og Jin-
arajadasa var, og er jiess þvi að vænta,
að Guðspekifélaginu farnist vel und-
ir forustu þessa vitra manns, sem nú
hefir tekið við stjórnartaumunum.
* Leturbreyting þýðanda.
Gretar Fells.
VERÐLAUNAÞRAUT:
»Kínvcrsha dœgradvölin«
Verölaun kr. 500.00
og kr. 200.00
27. 28.
Hér komum við með áframhaldandi
númer af ' Kínversku dægradvölinni
sem eru ekki af lakari endanum.
Takið nú til óspilltra málanna við
ráðninguna. Það er alveg óhætt fyrir
þá eldri, að reyna lika. Þið skuluð,
svona rétt til gamans, líta á klukkuna,
þegar þið byrjið og skrifa niður hvað
þið eruð lengi með hvora mynd. Hver
veit nema kunningi þinn, eða kunn-
ingjakona komi í heimsókn, svo þú get-
ir sagt: „Þetta réði ég á 5 mínútum,
getur þú gert betur?“ Og svo er ég
viss um að kunninginn fer beint út í
búð og kaupir sér eina dægradvöl, það
er að segja ef hann hefir ekki þegar
verið búinn að ná sér i eina. Og svo
að lokum, rnunið að taka með ykkur
einn kassa af dægradvölinni í sumar-
fríið eða útileguna, það fer ekki mikið
fyrir honum í vasanum eða bakpokan-
um og ánægjan er örugg.