Fálkinn


Fálkinn - 10.07.1953, Blaðsíða 4

Fálkinn - 10.07.1953, Blaðsíða 4
4 FÁLKINN HIí) prentaða mál er ef til vill mesta stórveldi siðustu fimm alda, og völd þess aukast eftir ]>ví sem al.þýðumenntun þróast og fleiri þjóðir læra að lesa. Þegar öld útvarps- ins hófst spáðu margir ])ví, að ])að mundi gera strandliögg í ríki prent- listarinnar, en það fór á annan veg. Útvarpið varð til þess aðsauka lestr- arfýsning, og bóka og blaðaútgáfa hefir aldrei verið meiri en síðustu áratugina. Þó að framfarirnar séu margvís- legar í prentlistinni og nú sé hægt að framleiða áferðarfallegra prentað mál og myndprent en áður, og marg- falt fljótar, þá cr undirstaðan þó sú, sem Jó’hann Gutenberg Jagði í Mainz fyrir fimm hundruð árum. Hann er og verður ávallt talinn höfundur prentlistarinnar. En ])ó er eigi svo að skilja, að ekki hafi verið prentað fyrir hans daga. Að móta mörg eintök með sömu stöf- Munkar teiknuðu alla hinu skrautlegu upphafsstafi kapítulanna í hinni frægu 42-línu biblíu Gutenbergs. ur af korni og 2000 lítra af víni i heiðursgjöf og hann var gerður hirð- maður ævilangt. Iín þremur árum síðar dó hánn. Svarta listin breiðist út. Þegar Fust hafði unnið málið gegn Gutenberg gerði hann félag við Sdhöffer nokkurn, sem verið hafði lærisveinn Gutenbergs. Guten'berg hafði farið að steypa stafi úr blend- ingi blýs og tins í slað tréstafanna og gat gert þúsundir stafa eftir sarríá mótinu. Schöffer gerði ýmsar umbæt- ur á steypunni. Árið 146*6 gáfu þeir Fust út rit eftir Cicero með þessum nýju stöfum, og er leturgerðin köll- uð „cicero“ enn í dag. Latnesk útgáfa af Daviðs-sálmum, sem kom út 1457 er fyrsta bókin sem útgáfustaður og ár og nafn prentsmiðjunnar stendur prentað á. Á þessari bók er þess einii- ig getið að hún sé prentuð með laus- um stöfum, eða á latínu: „ad inven- tione artificiosa imprimendi ac char- Jóhann Gutenberg - og svarta listin unum eða myndinni er ævagömnl uppfinning. Innsiglið er það „prent- tæki“, sem almennastri útbreiðslu hefir náð og saga þess er gömul. Og mótun peninga cr líka prentun upp á sína vísu. Plinius sagnfræðingur segir frá því í „Náttúrusögu" sinni, að Forn-Egyptar hafi prentað mynd- ir á dúka, og þetta hefir sannast, ])ví að svona dúkar hafa fundist í kon- ungagröfum. Fró 10. öld eru til peningaseðlar, sem Arabar prentuðu með stimpilplötum, sem skornar voru í tré. Kínverjar prentuðu líka með útskornum tréplötum og þeir munu einnig hafa notað lausa stafi til prentunar. í byrjun 15. aldar fór það að verða algengt í Iívrópu að skera letur og myndir í tré- og málm-plötur og nota þær til að preríta með. Elsta tréprent- ið með ártali er frá 1423. Þetta var vinsæl og mikið notuð aðferð til þess að prenta myndir og stutta texta. Textinn var greyptur á plöfuna, hún varð. okki notuð til annars en að prenfá það sem á henni stóð, og það hefir verið seinlegt vandaverk að skera langt mál. Það var Guteríberg sem létsér hugkvœmast að skera lausa stafi, sem raða anætti saman í orð og setningar og nota svo aftur þegar hverri prentun væri lokið. En þessir lausu stafir urðu að þola slit, og þeir urðu að vera nákvæmlega jafn háir. Gutenberg kallaði sig aldrei upp- hafsmann prentlistarinnar og ýmsir urðu til þess að gera kröfu til þess heitis, þar á meðal lærlingar hans og ýmsir ítalir. En það er ómótmæl- anlegt að hann stofnaði prentsmiðju sína í Mainz árið 1450 og samtíðar- menn hans töldu hann eiga heiðurinn af að hafa fyrstur prentað með laus- um stöfum, sem hægt var að „leggja af“ og nota aftur. GUTENBERG. Hann hét fullu nafni Johannes Gensfleisch von Sorgenloch zum Gutenberg og fæddist í Mainz 1397, og í sama bæ dó hann árið 1468. For- ehlrar hans voru efnafólk og með þeim fluttist hann til Strasburgh og fékkst þar við steinslípun og spegla- gerð. PJn árið 1430 var hann farinn að fást við prentlistarmálið. En þó acterisandi“. Næsta bókin sem ]>eir gáfu út var prentuð með skrifletri — mismunandi stóru, eftir því hve efnið þótti mikilsvert. Næsta bókin sem þeir Fust og Schöffer gáfu út hét „Catholicon“ (1460). Þar var notuð ný leturgerð 'og í bókinni er löng lofgerð uni hina nýju uppfinningu — prentlistina. Það var vitanlega ómögulegt að halda svona uppgötvun leyndri þó að prentararnir væru bundnir ströngum þagnareiði um leyndardóma listar- innar. Það var ekki hægt að girða fyrir að prentari segði upp vinnunni og byrjaði upp á eigin spýtur. Það er sannanlegt að árið 1460 var Mentel nokkur farinn að prenta í Strass- 'burg og Pfister í Bamberg ári síðar. Að Adolf kjörfursti af Nassau lagði undir sig Mainz — prentsmiðja Fusts brann við það tækifæri — varð til þess að prentlistin breiddist út til annarra bæja í Þýskalandi. í Köln var stofnuð prentsmiðja 1466. En auðvitað mætti prentlistin lika mót- blæstri og var kölluð djöfulsins verk. Samt urðu prentsmiðjurnar í Þýskalandi yfir 200 áður en 15. öldin yar á enda. „Þýska listin" var liún kölluð í öðrum löndum og þjóðverjar voru fyrst í stað fengnir til að setja á stofn prentsmiðjur í öðrum löndum. Til Ítalíu barst prentlistin 1465, fyrsta prentsmiðjan á Sþáni var stofnuð 1474, í Portúgal 1484, Hollandi 1473 og Englandi 1477 og til Praha 1478. Árið 1490 settist þýskur prentari að í Kaupmannahöfn og tæpum 40 órum siðar var fyrsta prentsmiðjan stofnuð hér á landi, en á elstu bók prentaðri hér, sem menn vita um, stendur ár- talið 1534. Það er Breviarium Nid- arosiense. í Tyrklandi var bann við prentun bóka, en þær voru prentaðar þar á laun og voru það Gyðingar, sem að því stóðu. í Noregi var fyrsta prentsmiðjan sett á stofn árið 1643, og árið 1809 var aðeins ein prent- smiðja til i Kristianíu. Allt fram á vora daga var hand- setningin einráð. í prentsmiðjunum. Það mun ’hafa verið kringum 1911, sem fyrsta setjaravélin kom hingað til lands, en fyrsta hraðpressan (sem mundi þó þykja fara aneð seinagangi var það ekki fyrr en 1448, cftir að liann var fluttur til Mainz aftur, að hann bjó til stafina, sem hin svo nefnda 36-lína biblia er prentuð mcð og lika voru notaðir í la'tínukvér Donats árið 1451. En prentsmiðjan tók til starfa árið áður. Og fyrir þremur árum hélt Mainz, fæðingarstaður prentlistar- innar 500 ára afmælið hátiðlegt, með fundum og sýningum, og á Guten- bergssafninu i bænum voru hin reva- gömlu tæki sýnd í notkun. Gutenberg gerði félag við Johann- es Fust i Mainz til að afla sér fjár til að gefa út hina frægu 42-Iínu biblíu, sem enn eru til 40 eintök af og vafalaust mörg hundruð þúsund króna virði hvert um sig. Fust átti að fá veð í tækjum Gutenbergs til tryggingar peningunum. En þegar prentuninni var lokið heimtaði Fust peningana en Gutenberg gat ekki borgað. Þá fór Fust í mál og Guten- berg missti bæði prentsimiðjuna og bækurnar sem hann hafði prentað. Annar maður, Konrad Humery hjálp- aði Gutenherg til að stolna nýja prent- smiðju, og flutti hann liana siðar til Eltville, sem er smábær á fögrum stað við Rín. Þegar hann varð 68 ára hætti hann að vinna við, prentverk og kjörfurstinn og erkibiskupinn Adolf af Nassau gófu honum 40 tunn- Það er löng 'þróunarsaga frá fyrstu steyptu stöfunum hjá Gutenberg til nýtísku setjaravélar.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.