Fálkinn - 10.07.1953, Blaðsíða 13
F ÁLKINN
13
en að talá við fólk, og Rósalindu jþótti vænt
um að sleppa við samtal. Hún fann allt í einu
að hún var 'þreytt. Þetta hafði verið þreyt-
andi'fundur. En vonandi færi nú að ganga
betur. Að minnsta kosti var iþað engum vafa
bundið að þær Greensmágkonurnar voru
ánægðar. Suzette samkjaftaði aldrei og úr
augum hennar mátti lesa óblandna aðdáun á
hinum hávaxna sinabera manni, sem reið við
hliðina á henni. Og Iris, sem venjulega var
föl, hafði fengið roða í kinnarnar og blóð-
rauðar varirnar brostu íbyggilega.
Samkvæmið hjá Green.
Rósalinda var að klæða sig undir sam-
kvæmio. 'Hún hafði valið sér einfaldan blúndu-
kjól, silfraða ilskó ös létt, hvítt langsjal með
silfursaumi. Hún greiddi sítt ljósa hárið aftur
og lét það falla niður á herðarnar. Hún var
afar ungleg og töfrandi. En það var auðséð
á skuggunum undir augunum að hún var
þreytt. Því að þetta samkvæmi hafði krafist
mikils undirbúnings. Rósalinda hafði sjálf
ráðið matseðlinum og valið víntegundirnar —
eftir langar samræður við Agathe Green og
brytann á veitingastaðnum, sem samkvæmið
skyldi haldið á. Frú Green var staðráðin í að
ganga fram af gestunum hvað íburðinn snerti,
en Rósalinda, sem vissi betur, sagði henni að
það mundi verka þveröfugt við tilganginn, ef
of mikið bæri á íburði og prjáli. Þær deildu
sérstaklega um blómin. Agatha vildi hafa
orkideur og Rósalinda fresíur.
— Það er svo kotungslegt! dæsti Agatha
fyrirlitlega.
— En fallegt — og nógu dýrt, sagði Rósa-
linda. Það síðara réð úrslitum. Frú Green lét
undan þegar hún heyrði að erfitt væri að fá
fresíur á þessum tíma árs og að þess vegna
væru þær dýrar. En hún hugsaði sem svo
og sagði: — Ef fólkinu hérna finnst leiðinlegt
að sjá að aðrir hafa efni á að kaupa orkídéur
þá er ekki vert að vekja hjá því afbrýði.
Rósalinda svaraði ekki. Hún hafði haft
betur — og þá gilti einu um ástæðuna til
þess. Hún hafði smám saman sannfærst um
að það borgaði sig ekki að mótmæla frú
Green.
Green-mæðgurnar voru komnar inn í sal-
inn þegar Rósalinda kom niður. Frú Green
var í dýrindskjól, dökkrauðum og skreyttum
nokkuð úr hófi, með glitrandi demanta um
hálsinn os úlnliðina. — Jæja, telpur, lofið þið
mér nú að líta á ykkur! sagði hún skipandi.
Iris var í mjög flegnum en nærskornum
grænum Parísarkjól. Hún var nakin um herð-
arnar og rauða hárið féll niður á þær og naut
sín vel á hvítu hörundinu. Hún hafði aðeins
einn gimstein: stóran rúbín, sem hékk í langri
gullfesti niður á brjóstið. Rósalinda starði
eins og hún væri heilluð á Iris, hún sómdi
FELUMYND
Hvar er munkurinn?
sér svo ljómandi vel, en þó var um leið eitt-
hvað fráhrindandi við hana, sem Rósalinda
gat ekki gert sér grein fyrir. Það var líkast
og þessi glitrandi gimsteinn væri gæddur ein-
hverju seiðmagni, einmitt vegna þess að hún
hafði enga aðra gimsteina.
Suzette var í bleikrauðum híalínskjól, eins
og nýútsprungin rós, einmitt eins og stúlkur
eiga að vera, sem eru að stíga fyrsta skrefið
í samkvæmislífinu. En klæðnaður hennar var
cf íburðarmikill eins og móður hennar og
stóru perludjásnin í eyrunum og perlufestin
um hálsinn báru hana ofurliði.
Rósalinda var eins og ofurlitil stjúpsystir
innan um þetta skraut. Það fannst Agathe og
Suzette líka, en sú fyrri var ánægð með það
en Suzette ergileg: — Þú lítur út eins og þú
værir tíu ára! sagði hún gröm. — Af hverju
klæðir þú þig alltaf svona .... alltaf í hvítum
krakkakjólum!
— Kjólarnir minir eru svona, svaraði Rósa-
linda góðlátlega. — Blúndur og kniplingar
hæfa vel loftslaginu hérna — og hæfa mér
vel. Hún brosti: — En kjóllinn þinn er gersemi,
Suzette. Já, og þinn ekki síður, Iris, flýtti
hún sér að bæta við og leit einu sinni enn
á rúbínana. — Mér finnst óg vera eins og hún
öskubuska — bara með þeim mun einum, að
systurnar mínar eru ekki vondar.
— Þú sómir þér einstaklega vel, sagði
Agathe óvenju alúðlega. Henni þótti furða að
Rósalinda virtist alls ekki öfundast yfir skart-
inu á þeim hinum. Og Agathe var ánægð —
enginn mundi líta á Rósalindu, hún mundi
hverfa við hliðina á Suzette og Iris, og þannig
átti það líka að vera.
Suzette leit snöggt á móður sína, eins og
hún ætlaði að andmæla henni, en hún þagði.
Og allt í einu óskaði hún þess að hún væri
sjálf komin í svona hvitan og íburðarlausan
kjól, og einhverjum ýmugust til hennar skaut
upp í henni. Það var eitthvað við Rósalindu
sem Suzette vissi að híin mundi aldrei eignast,
og þetta var bæði peningum og menntun ó-
viðkomandi.
— Komið þið nú allar! sagði Agathe og
strunsaði á undan þeim út að bifreiðinni. Úti
var orðið dimmt, og þegar þær óku meðfram
ánni sáu þær ljósin á skipunum, sem vörpuðu
löngu bliki á spegilslétt vatnið. Á árbakkanum
voru bál á víð og dreif og skuggarrúr af fólki
sáust hreyfast í kring. Þær komu inn í mið-
bæinn og bifreiðin rann fram upplýst breið-
strætið og nam staðar við veitingahúsið.
Eftirvæntingarkennd, sem Rósalinda kann-
aðist við frá fornu fari, fór um hana er þær
gengu upp þrepin. Á þessum stað hafði hún
verið margar ánægjulegar stundir, — allt
minnti hana á gamla góða daga.
Gestirnir áttu að hittast við cocktailglas í
litlum sal áður en gengið væri til snæðings.
Á litlu borðunum voru skálar með söltum
möndlum, ólívum og sykruðum ávöxtum.
Agathe leit með velþóknun yfir allt og bjó
sig undir að gera Cairo sér undirgefna.
John var sá fyrsti sem kom, stundvís eins
og alltaf. Frú Green og Suzette settust að
honum undir eins og töluðu hvor í kapp við
aðra. — Bara að þær gætu lækkað röddina
ofurlítið, hugsaði Rósalinda með sér. Henni
fannst nóg um aðganginn. Sjálf dró hún sig í
hlé, hún hafði ekki enn fyrirgefið John hvern-
ig hann hagaði sér daginn sem hún sagði
honum frá Greenfjölskyldunni. Þau höfðu
heldur ekki hitst tvö ein síðan. En hvað sem
því leið — þegar hún sá þennan virðulega
mann í smóking, svo geðugan og háttvísan,
er hann var að tala við dömurnar með alúðar-
bros á vörum, þó að gráu augun gæti ekki
leynt því, að hann var ekki í essinu sínu —
fannst Rósalindu að hún hefði misst eitthvað,
sem hún hafði haft mætur á. John hafði verið
vinur hennar. Og maður á aldrei að pexa við
vini sína.
Nú sást annar smókingklæddur maður bak
við John, og Rósalinda gleymdi hugleiðingum
sínum um John. Prins Ali tók brosandi við
ummælum frú Green um hve það gleddi 'hana
að sjá hann meðal gesta sinna. Nú kom heit-
ari litur í kinnar Rósalindu er hún horfði á
þennan tígulega mann verða miðdepillinn í
salnum undir eins og hann kom inn.
Hinir gestirnir komu smátt og smátt og
Rósalindu létti. Það kom ekki ósjaldan fyrir
í Cairo að samkvæmi fóru í hundana vegna
þess hve gestirnir komu seint. Og sumir gerðu
þetta af skömmum sínum.
Cocktail var borinn á milli og gestirnir