Fálkinn


Fálkinn - 16.10.1953, Síða 6

Fálkinn - 16.10.1953, Síða 6
6 FÁLKINN Spennandi ástar- og leynilögreglusaga eftir Phyllis Hambledon. Leyndarmál (4) sjfstrAnitA STERKAR TAUGAR. — Engelbert Wallenda heitir maður, sem undan- farið hefir látið Berlínarbúum renna kalt vatn milli skinns og hörunds. I nálægt 20 metra hæð yfir umhverfinu í dýragarðinum í Berlín leikur hann ýmsar listir í trapez, sem festur er við málmhnött, sem hringsnýst í á- kafa. Hér sjást nokkrir ljósmyndarar vera að brölta upp í hæðirnar til að ná mynd af angurgapanum. VORGYÐJAN. — Það er vorblær yfir þessari mynd af ungu stúlkunni, sem stendur við kirsiberjarunna í fullum blóma. STEINSÚLAN ÞVEGIN. Allir París- arfarar kannast við steinsúluna miklu á Concorde-torginu í höfuðborg Frakklands. í sumar hefir hún verið þvegin, en það er eins og gefur að skilja mikil vinna að ná af henni margra áratuga sóti og skít. — Á myndinni sést einn þvottamannanna hátt uppi I súlunni, en stærð hennar má gera sér hugmynd um með því að bera hana saman við manninn. F o r s a g a . Þau Martin og Rósalind Motcombe eru í heimsókn hjá frú Alice Kenyon og kynnast þar milljóna- mæringsekkjunni Molly Frenier og systurdóttur hennar Suzy. Molly er á förum til húss síns, Bláskóga- hússins, á baðstaðnum Dinard, og býður þeim Motcombe hjónunum að heimsækja sig þangað. Þau hafna boðinu í fyrstu. En Suzy hef- ir óljóst hugboð um að Molly sé i hættu. Hún sýnir Jjeim Martin og Rósalind hótunarbréf frá Denis Frenier, stjúpsyni Mollý. Fyrir þrá- beiðni Suzy láta þau loks tilleiðast að heimsækja þær Mollý til Blá- skóga. Mollý fer á undan þeim þangað, en þau Martin og Rósalind verða Suzy samferða daginn eftir. Þegar þau koma til Bláskóga finna þau Mollý Frenier myrta í svefnherbergi sínu. Ef við hefSuni verið kunnug í hús- inu hefSum við eflaust getað fundið vindropa til aS hressa hana á. En þar sem svo var ekki, lét ég mér nægja að sækja svamp fram í baðherbergið og vinda úr honum yfir hana. Eg heyrði álengdar að Gaston var að tala í símann. Að öðru leyti var Iiúsið mannlaust að undanteknum okkur J>rem — og svo líkinu! Suzy var að koma til meðvitundar. Ilún opnaði augun, en lokaði þeim aftur og gat varla dregið andann fyrir ekka. Martin hafði lagt hana í legu- hekk, sem stóð í gluggaútskotinu á stigapallinum. Hann sagði í sífellu: „Svona, svona litla stúlka,“ og hann sagði ])að í þeim blíðurömi, sem ég hélt að hann notaði eingöngu, þegar hann talaði við mig. Raunar hygg ég að liann hafi ekki liugsað um hvernig hann talaði né hvað hann sagði, því að svipur hans var þarðneskjulegur og reiðilegur. Okkur hafði geðjast vel að Mollý. Við höfðum vissulega gert gys að henni, en ])ó liafði okkur ver- ið hlýtt til hennar. — Hún var eflaust tækifærissinni og hafði vissulegá ekki haft þrek til að visa á bug vinfengi Þjóðverjanna, en engu að síður var yfirborðskennt eðli hennar mengað hjartagæsku i rikum mæli. Henni hafði vcrið hlýtt til okkar, og hún hafði af öllu hjarta óskað þess að veita okkur ánægjuríkt sumarleyfi. En núna .... Suzy reis upp við dogg og leit á mig. Svo sagði hún skerandi tryllings- legri röddu. „Rósalind, þetta er veruleiki, er ekki svo? Mig hefir ekki verið að dreyma.“ „Nei, kæra Suzy, því miður er ])etta allt blákahlur veruleiki!“ „Ungfrú ...." Gaston var kominn upp stigann aft- ur. Lögreglunnar var von á liverri stundu. „Vesalings frúin okkar!“ sagði liann. „Bölvaðir óþokkar!“ Suzy lét sem hún sæi hann ekki. Ilún horfði nú á Martin. „Bréfið,“ hvíslaði hún. „Hvaða bréf, Suzy?“ „Þú veist vel hvað ég á við. Bréfið sem ég sýndi ])ér um daginn. Eg verð líklega að sýna lögreglunni það?“ „Jú, ég geri ráð fyrir þvi.“ „Það er svo hræðilegt -— hann er þó stjúpsonur hennar.“ ,.Hann getur sennilega sannað fjar- veru sína,“ sagði Martin. VON bráðar hlaut að koma í ljós hvernig málið horfði. Mollý Frenier var dáin, myrt! Og að því er virtist til fjár. Um það bar hinn tæmdi pen- ingaskápur, sem hafði verið fullur af skartgripum og peningum, ljóst vitni. Og Denis Frenier hafði verið svo á- fjáSur í að fá hálsmenið til þess að selja það til ágóða fyrir flokk sinn. Hann var róttækur í skoðunum og þess háttar menn voru jafnan taldir til alls visir. Jó, það var hætt við að böndin bærust að Denis. Hinsvegar hafði ég óljósan grun um, að Martin vildi ekki með sjálfum sér trúa því að Denis væri sá seki. Það var hræðilegt að hugsa sér mann, sem hafði unnið ótrúlegustu hetjudáðir fyrir föðurlandið, læðast aftan að gamalli varnarlausri konu og stinga hana hnifi. Auk þess höfðu þeir Martin og Denis gengið i sama skóla — að vísu ekki á sama tíma, en Martin hafði þó heyrt þess getið að Denis hefði orðið skóla sínum til mikils sóma. Eg litaðist um í svefnherberginu á ný og reyndi að geta mér þess til, hvernig þctta hefði borið að höndum, en áfallið hafði verið svo mikið að hugsanir minar voru enn á reiki. Það var uppi fótur og fit fyrir utan húsið, lögreglan var að koma. Það varð dálítil töf, meðan verið var að opna aðaldyrnar, sem enn voru lok- aðar, síðan þustu lögreglumennirnir inn. Það leyndi sér ekki að þetta voru franskir lögreglumenn en ekki enskir, slíkur reginmunur var á framkomu þeirra. Enskir liigreglumenn virðast alltaf rólegir og í jafnvægi, en liig- reglumennirnir hérna megin við Ermarsundið v.oru þeim afar frá- hrugðnir. Fyrr en varði úði og grúði i húsinu af mönnum, lögreglumönn- um, Ijósmyndurum, að ógleymdum lækninum. Þeir töluðu án afláts, svo hratt að ég heyrði aldrei orðaskil, með til- lilýðilegum brettum og handapati. Og mitt í þessum sundurleita hóp birtust þau allt í eínu Josephine og Pierre' Valdiers. Við sátum inni í setustofunni þegar þau komu. Þau voru bæði miðaldra, klædd þokkalegum ferðafötum með ódýrar ferðatöskur sér við hlið. Josephine var smávaxin, feitlagin, búlduleit og rjóð í andliti. Pierre var hærri vexti, en einnig feitlaginn. Þau höfðu auðsjáanlega ckki liðið skort í starfi sínu í þessu húsi! „Góðan daginn, Mademöiselle,“ sagði Josephine. Snögglega tók hún ‘Jallegir fcdur Hérna sýnir Maria Baille hina fallegu fótleggi sína. í myndinni „Kona plantekrueigandans“, sýnir hún þá hins vegar aldrei. eftir hinni almennu óreiðu og ringul- reið sem rikti í húsinu og afldlit henn- ar skipti um svip. „En, en,“ stamaði hún. „Hvað geng- ur á? Hverjir eru hérna?“ „Ó, livers vegna komuð þér ekki í gær?“ stundi Suzy. „En kæra ungfrú, símskeytið! Við ■fengum símskeyti.“ Og síðan endur- tók lnin: „Ó, guð minn góður, hvað hefir skeð.“ „Segðu henni það Rósalind," sagði Suzy og grúfði sig upp að mér. Eg sagði þeim það, og eðlilega fylgdu mikil harmakvein í kjölfar fréttanna. „Blessuð frúin okkar.“ Josephine reif Suzy af mér og reri með hana í fanginu eins og hún væri sijíábarn. Pierre var fremur fámæltur. Hann stóð við hlið hennar og andtit hans var svipbrigðalaust eins og grima. Mér fannst að, þótt öllum gæti ])ótt vænt um Josepliine, væri ckki hægt að segja hið sama um Iiann. Eg gat vel ímyndað mér að liann væri, jafnvel á þessari stundu, að hrjóta heilann um hverjar afleiðingar þessa athurðar yrðu fyrir hann. Hann braut ef lil vill heilann um, hvort Mollý hefði minnst þeirra i erfðaskrá sinni. Þetta var i fyrsta skipti sem ég hugs- aði út í þá hlið málsins. Skyldi þetta skrautbúna hús nú vera eign Denis eða Suzy? Og svo var auðvitað eftir að taka tillit lil Helenar? Hvar var Helen? Snögglega var eins og öllum dytti þetta sama í hug. Fram að þessu hafði enginn hugsað um hana. Nú spurði hver annan, lögreglumennirnir líka. Ef til vill gat hún gefið einhverj- ar upplýsingar um hvað gerst hafði, hver hefði komið þá um nóttina. Hún — og sömuleiðis Sebastian. „Tobý líka! Hvar cr hann Tobý,“ hrópaði Joscphine. Tobý! Það var auðvitað hundurinn.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.