Fálkinn - 16.10.1953, Side 10
10
F ÁLKINN
Scotland Yard
er frægasta lögreglusveit i heimi og
rúmlega hundrað ára. Robert Peel.
stjórnmálamðurinn, stofnaði hana. 1
fyrstu var lögreglustöðin í gamalli
höll. En nú er hún til húsa i
mörgum stórbyggingum í London,
ekki iangt frá stjórnarráSshúsunum.
„GleymiS aldrei aS mannúS, hyggindi
og þolinmæSi eru undirstaða starfs
okkar,“ sagði einn af hinum frægu
yfirmönnum Scotland Yard einu sinni.
— „Gieymið því ekki — álits okkar
vegna og þjóðfélagsins vegna.“
Scotland Yard á, eins og flestar
lögreglustofnanir heimsins, afar stórt
fingrafarasafn og ljósmyndir af fólki,
sem lögreglan hefir liaft eitthvað
saman við að sæhla. Og svo Iiefir
Scotland Yard iíka skrásett tillmeig-
ingar og Iiætti hvers einstaks glæpa-
manns.
Frá því að einhver er tekinn fast-
ur og þangað til hann er látinn laus
eru liafðar ákveðnar gætur á honum.
Það er skrifað niður hvaða matur
honum þykir bestur og hvað honum
jiykir vont, hvers konar bækur bann
les, hvort hann notar sérstaka teg-
und verkfæra, hvaða bæjarhlutum
liann vill helst halda sig í o. s. frv.
þetta mun ekki skipta miklu máli,
en oft hefir tekist að finna glæpa-
menn eftir þessum leiSbeiningum.
Það er mjög sjaldgæft að Scotland
Yard verði að leggja mál til liliðar
óráðið, og sé það gert þá gleymist
það 'ekki fyrir því. Hérna cr dæmi
um að (Scotland Yard hefir „gott
minni“, og að áðurnefnd skráning
getur komið að gagni. í fyrri heims-
styrjöldinni var stolið gimsteinum
frá ríkri konu. Hún hélt að þjófurinn
væri maður, sem hafði hirt garðinn
hennar nokkra daga, og hún gat gefið
góða lýsingu á honmn. Meðal annars
mundi hún að hann sagði alltaf orðið
„ég“ með einkcnnilegu móti.
Þjófsins var leitað árangurslaust í
mörg ár og síðast varð að leggja
málið á hilluna.
í síðari heimsstyrjöhlinni var lög-
reglumaðurinn, sem hafði fengist við
þetta mál, fyrirliði i hernum. Einn
af undirmönnum hans hafði verið í
nýlendunum árum saman. Lögreglu-
maðurinn tók fljótt eftir að þessi
maður sagði „ég“ mjög einkennilega
þegar honum var mikið í hug. Hann
fékk gögnin í málinu og maðurinn
var tekinn fastur og meðgekk.
„Scotland Yard gleymir aldrei,“
sagði lögreglumaðurinn og var drýg-
indalegur.
Carlsen
og vinir hans
Garlsen skipstjóri, sem mest var
talað ttm í hittifyrra fyrir að hann
yfirgaf ekki skip sitt í neyð fékk nýtt
skip, sem heitir „Entcrprize 11“ og
fór í fjögra mánaða ferðalag kring-
um hnöttinn á því. I-Iann liafði með
sér 2000 walta senditæki og taldist
til að liann gæti haft samband Arið
- fjölskyldu sína i New Jersey með því
alla ferðina. Sonja dóttir hans hefir
gætur á viðtækinu heima.
Og svo átti Carlsen um 4000 „vini
í Ijósvakanum", toftskeytamenn, sem
hafa beðið hann að senda sér kveðj-
ur. Og farþegarnir um borð fengu að
nota tækið ef þeir þurftu að ná i vini
sína.
COLA VPyKKUR Spur
— Vindurðu sígaretturnar þínar
sjálfur?
— Já, læknirinn hefir ráðlagt mér
einhverja hreyfingu.
Flakkarinn: — Bítur hundurinn
yðar?
Frúin: — Já. Eg ætla að vara yður
við að koma inn fyrir dyrnar, því að
mér er ekki sama um hvað liann bít-
ur í.
— Það var einmitt vegna þess að
ég var orðinn leiður á að sitja heima
og horfa á þetta þarna, að ég fór út
í kvöld.
VÖLUNDARHÚS.
Hvernig á litli unginn að komast heim til mömmu sinnar?
‘ Tannlæknir: — Hafa þessar tennur
verið atliugaðar áður?
Sjúklingur: — Já, ég fór í lyfjabúð-
ina i gær til að fá eitthvað við kvöl-
unum.
— Og hvaða flónskuráð fenguð þér
þar?
— Mér var ráðlagt að fara til yðar.
Presturinn við litlu telpuna: —
Hvers vegna hefirðu með þér regn-
hlíf, Inga litla? í glaða sólskini og
ekki komið dropi úr lofti í mánuð!
— Hann pabbi sagði að þér ætluð-
uð að biðja um vætu af stólnum í dag,
og ég vildi síður verða vot á heim-
ieiðinni.
Svalandi hefnd.
Andrés úrsmiður brölti fram úr
rúminu klukkan 3 um nótt til að svará
i símann. Það var nistandi kuldi og
hann skalf.
— Halló, er þetta 'Andrés úrsmiður
— finnst yður það vera .... Já,
Andrés — ég þurfti einmitl að tala
við yður. Þér selduð mér vekjara-
klukku í gær. Þetta er Sveinn — Þér
munið eftir háa maniiinum i gráa
frakkanum.
— Já, ég geri það.
— Þetta er ágæt klukka. Hún geng-
ur hárrétt, er falleg að utan og hefir
ekki hátt þegar hún gengur.
-— En hvers vegna í ósköpnnum
vekið þér mig um miðja nótt til að
segja mér þetta? Eins og ég viti það
ekki sjálfur. Vilið þér ekki að klukk-
an er þrjú?
— Jú-jú! — Eg setti kluldcuna
þánnig að luin hringdí klukkan 8, og
svo bringdi hún núna. Það var ekki
annað en það, sem ég ætlaði að segja
yður.
Hann: — Fæ ég að heimsækja yður
i kvöld?
Hún: — Já, en þér megið ekki
gleyma ])ví að Iiann pabbi slekkur
alltaf klnkkan tíu.
■ Hann: — Ágætt. Þá kem ég ktukkan
tiu mínútur yfir tíu.
Vilið jþér...?
að sumt vinsætasta grænmeti
nútímans hefir verið í miklum
meturn öldum saman?
Þannig þótli Forn-Grikkjum aspargus
mesta sælgæti, og salat og radísur
voru algengur matur í Kina á 15. öld.
Hins vegar er stutt síðan fólk fór að
borða tómata. Þeir voru notaðir handa
grísum áður fyrr.
að í september 1899 varð fyrsta
bílslysið, sem kostaði mannslíf?
Það skeði í Ameríku. En síðan hafa
1.040.000 manns týnt lífi í Bandarikj-
ununi i sambandi við bílslys. Þessi
tala er nærri því eins há og tala fall-
inna í öllum þeim styrjöldum, sem
Bandaríkin hafa tekið þátt í.
Guðjón: — Þegar ég sef á gistihús-
um sting ég alltaf veskinu 'minu undir
koddann.
Geirjón: — Eg hefi reynt það líka,
cn mér er ómögulegt að sofa með svo
hátt undir höfðinu.
Skartgripasalinn: — Nú hefi ég þó
að minnsta kosti sönnun fyrir því að
auglýsingarnar eru lesnar. í gær aug-
lýsti ég eftir næturverði og í nótt var
gert innbrot hjá mér.