Fálkinn


Fálkinn - 13.08.1954, Side 7

Fálkinn - 13.08.1954, Side 7
FÁLKINN 7 ana um ástand og horfur. Ég reyni að skapa mér verkefni við mitt hæfi til að drepa timann og íhuga, hvað ég geti gert til þess að treysta hag minn og öryggi á næstu mánuðum. OG NÚ hverf ég aftur að söguþræð- inum. Annan daginn i skálanum gerði ég eld. Það var ekki svo erfitt, því að allt var við höndina, sem með þurfti. Ég setti vatn yfir eldinn til þess að hafa eitthvað heitt og fann síðan þunna kassafjöl, sem ég klauf niður i þægilegar spelkur fyrir liandlegginn. Ég 'fór úr frakkanum, þó að það ætlaði að reynast fullerfitt. Sérstak- lega var óþægilegt að komast úr vinstri erminni, þar sem ég gat ekki notað liægri höndina neitt. Ég reyndi ekki að klæða mig úr meiru. Þegar vatnið var orðið heitt, hretti ég upp skyrtuermina á veika hand- leggnum og bjóst til að þvo hann, en ég var orðin svo þreytt, að ég varð að hætta við það og láta nægja að styrkja liann með nýju spelkunum og binda handklæði utan um. Ég drakk mikið af vatni og fór að sofa aftur. Eg reyndi ekki að komast upp i rúm- ið. Ég sat á gólfinu og hallaði mér upp að veggnum og sofnaði þannig. Eg vaknaði um nóttina og hræði- legur þorsti ásótti mig. Er ég hafði svalað honum sofnaði ég aftur. Brátt fór að daga og ég fann, að líðanin skánaði. Ég var sársvöng. Eg kveikti upp og bjó til dýsætt te. Ég borðaði hrátt haframjöl og rúsínur og drakk teið með. Mér leið nógu vel á eftir til þess að skynja það i fyrsta skipti hve óhrein ég var í raun og veru. Mig langaði liins vegar til þess að vera hrein. Nærskyrta af Sam hékk rétt yfir höfði mér. Ég kippti henni niður og hugðist fara í hana. Eg setti vatn í skálina á gólfinu og náði mér i tusku til að þvo mér með. Eg losaði um liárið og bjóst til að skola úr því mestu óhreinindin, en þá fann ég, að lausar flygsur voru í því. Hárið var samanklístrað af storknu blóði og ég gat ekkert átt við það. Hins vegar gat ég þvegið mér í fram- an og niður á hálsinn. Þá datt mér i hug að reka höndina niður í krukku með svínafeiti, sem þarna var og nudda höfuðið upp úr feitinni til að ná betur óhreinindunum. GEORGE DERTINGER fyrrum utan- ríkisráðherra Austur-Þýskalands hef- ir verið dæmdur í 15 ára fangelsi fyr- ir að hafa unnið að stjórnarbyltingu. Hægri liöndin var ennþá svo við- kvæm, að liún þoldi ekki þvott. Eg gat aðeins strokið það mesta af lienni. Með hníf tókst mér að sníða hægri ermina af nærbolnum af Don, sem ég hafði farið í, eftir að ég varð holdvot á leiðinni neðan frá skipa- læginu. Síðan gat ég smeygt jiví sem eftir var yfir höfuðið og afklætt mig þannig niður að mitti. Að svo búnu gat ég farið í hreinu nærskyrtuna af Sam. Mér leið illa eftir þessa áreynslu, höfuðið varð þungt og hugsunin óskýr. Brátt leið ég út af og sofnaði. ÉG HLÝT að hafa legið þarna svona á mig komin mjög lengi. Tilfinningar mínar og skynjanir voru undarlegar og mér fannst skálinn svífa í lausu lofti. Stundum opnaði ég augun og þá var ýmist bjartur dagur eða nætur- myrkur. Eitt sinn vaknaði ég betur en venju- lega. Ég vissi, að eitthvað hlaut að hafa vakið mig. Þá áttaði ég mig snögglega á því, að mýsnar voru að éta svínafeitina úr blóðstorknu hári minu. Ég stuggaði við þeim. Þær komu aftur og sleiktu feitina af hökunni á mér. Eg óttaðist beittar, hvítar tennur þeirra og reyndi eftir megni að fæla þær burt, en þær voru þráar og komu alltaf aftur. Ég fagnaði dagsbirtunni, þvi að þá flýðu mýsnar. Loks varð ég svo brött aftur, að ég gat farið að hreyfa mig. Hungur og þorsti sótti á mig. Ég náði i mat og drykk og mér leið strax betur, er ég hafði nærst. Sviminn og þyngslin yfir höfðinu var að mestu liðið hjá og ég átti auðveldara með allar lireyfingar en áður. En ég var ennþá fitug og ó- hrein. Ég þurfti miklu meira vatn, en fatan var að tæmast. Mér varð hverft við, en mundi svo allt í einu eftir þrónni undir upsinni. Þar væri nóg vatn. Verkaföt karlmannanna höfðu öll verið skilin eftir i skálanum, en ekk- ert af mínu dóti var þarna. Ég hefði lieldur ekki kært mig um flíkurnar mínar. Þær urðu sem óðast of þröng- ar, og ég þoldi ekki þröng föt. Ég ákvað- að nota fötin af Sam. Hann var stærri og gildvaxnari en Don. Framhald í næsta blaði. PAUL ELY yfirhershöfðingi, sem tók við herstjórn Frakka í Indó- Kína. Fyrsta viðfangsefni hans þar var að verja borgina Hanoi. Þú ræður hvort þú trúir því. Dflinn mflður hittir stn sinn Það bar við i Innra-Rygjafylki að gamall maður drukknaði er hann var í upsaróðri. Margir smábændur sem búa nærri sjó og hafa Htið jarðnæði, sem ekki nægir nema tveimur kúm og nokkrum kindum, stunda útræði sér til búsílags, veiða sér i soðið og selja nokkrar bröndur í næsta þorpi eða sveitabýlum, þeim sem þykjast upp úr því vaxnir að renna færi vegna þess að þeir eiga meira en tvær kýr og kalla sig stórbændur. — Jæja, þessi gamli maður fórst en enginn vissi hvar hann hafði drukknað. Var slætt til að reyna að finna líkið, en það varð árangurslaust, enda vissi enginn hvar leita skyldi. Og fjörðurinn er stór og mikill og straumur í honum, ekki sist út af árósunum. Svo var það eitt kvöld nokkrum vikum seinna, að sonur drukknaða mannsins reri til fiskjar. Því að matar- laust gat heimilið ekki verið, þó að gamli maðurinn lægi þarna einhvers staðar úti á hafsbotni, og kæmist ekki x i kristinna manna reit. Þegar hann var kominn drjúgan spöl út á víkina lagði liann inn ár- arnar og sneri sér á þóttunni til að ná í færið, sem lá í skutnum. Honum lá við að liljóða, því að livcr sat þarna á borðstokknum nema faðir hans og virtist vera bráðlifandi. Hann var meira að segja með pípuna sína i munninum. Pilturinn fleygði færinu i snatri og greip til áranna, en þegar liann sá augnaráð gamla mannsins dokaði hann við. Gamli maðurinn hafði ver- ið ráðríkur og aldrei þolað undan- brögð eða vifilengjur, og virtist ekki gera það enn, þótt dauður væri. — Hva — hvað viltu, pápi? stundi pilturinn upp úr sér. Hann sagði sjálf- ur svo frá eftir á, að hann hefði heimtað skýr svör, en fólkið í sveitinni fullyrti að liað væri haugalygi, hvað sem það svo hafði fyrir sér í þvi. — Get ég hjálpað þér eitthvað? Faðirinn svaraði ekki. Hann benti bara út á sjóinn, eins og hann væri að skipa syni sinum að róa i áttina, sem hann benti í. Pilturinn gerði það, liann reri og reri þangað til gamli maðurinn benti honum að nema staðar. Pilturinn gerir það, leggur inn árarnar og biður. Fað- ir hans lítur á hann, rennir sér út af borðstokknum og hverfur ofan i sjó- inn. Nú rær pilturinn lífróður til lands og hrópar eins og lungun leyfa. Fólk safnast að lionum og hann segir frá. Og nú er hafin leit á ný á staðnum sem pilturinn hafði liorfið sýnin. Und- ir eins og farið var að slæða fannst lík gamla mannsins. Það var likast og liann hefði fest sig á öngulinn sjálfur. Hann var óbreyttur frá þvi sem hann hafði verið í lifanda lífi og meira að segja var pípan hans í munninum á honum. Líkið var flutt i kirkjuna sama kvöklið og jarðað daginn eftir. Sonur- inn varð safnaðarfulltrúi eftir þetta. Fólk taldi hann sér fremri því að hann hafði liaft kynni af yfirnáttúrulegpm lilutum, sem öðrum eru liuldir. 1 ... Egils áváxtadrykkir Ameríska leikkonan Julie Wilson varð að fórna sínu fagra og síða hári, þegar hún lék í „South Pacific“. Hún sést hér með hárið, sem klippt var burt. HANN KOM OF SNEMMA. — Pásk- arnir voru kaldir í Bayern, eins og víðar í Evrópu, og þar kingdi niður snjó, svo að lævirkinn sem kom til að syngja inn vorið, kom of snemma. Enda varð snjórinn og kuldinn honum að bana. BISKUP MEÐ ÞRÝSTILOFTI. — Það er ekki á hverjum degi, sem biskupar sjást vera að vinna með þrýstilofts- bor. En þeir sem voru viðstaddir er vinna var hafin við byggingu mót- mælendakirkju einnar í Seattle í Was- hingtonfylki í Bandaríkjunum fengu að sjá þetta. Kirkjan var byggð á steinsteyptri hellu, sem þarna var fyrir, svo að biskupinn Stephen F. Bayne gat ekki stungið fyrstu skóflu- stunguna. í staðinn boraði hann gat ofan í helluna með þrýstiloftsbor og þar var lagður messinghólkur.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.