Fálkinn


Fálkinn - 13.08.1954, Blaðsíða 12

Fálkinn - 13.08.1954, Blaðsíða 12
12 FÁLKINN J ON AT H AN LATIMER: GARDENÍU Williams kinkaði kolli, og Crane sagði: „Ég skal ná í Peter.“ Tennurnar glömruðu svo mikið að hann varð hræddur. „Villtu ekki fá tár?“ sagði Ann. Crane hristi höfuðið. „Hvernig heldur þú að John hafi verið drep- inn?“ spurði Williams. „Ég hugsa að einhver hafi haldið honum þangað til gasið kæfði hann,“ svaraði Crane. „Hvernig hefði það átt að vera hægt?“ Það var Ann sem spurði. Crane bar glasið upp að vörunum aftur. Nú gekk honum dálítið betur. „Ég get hugs- að mér að morðinginn hafi dregið poka eða eitthvað svoleiðis yfir hausinn á honum, svo að hann hafi ekki getað kallað á hjálp, og vöðlað einhverju utan um hann, til dæmis neti.“ Williams kinkaði kolli. „Já, og svo hefir morðinginn látið gasið streyma inn í pokann. „En hefði það ekki verið einfaldara að slá hann rothögg í hausinn og láta hann anda að sér gasinu meðan hann var meðvitundar- laus,“ sagði Ann. „Morðinginn hefir ekki viljað eiga á hættu að John fyndist með sár á höfðinu." Crane tæmdi glasið og setti það frá sér. „Það hefði ekki verið hættulegt," sagði Williams. „Hann hefði getað rekist á og meiðst um leið og hann datt.“ „Nei,“ sagði Crane,“ ekki ef honum blæddi. Því að þá hefði efnafræðingur getað rannsak- að blóðið og sagt til um hvort maðurinn fékk höggið á undan eða eftir gasinu." „Morðinginn hefir þá hugsað sér þann möguleika að líkið yrði krufið," sagði Ann. „Já .... en þetta er vitanlega ekki nema tilgáta, góða.“ „Þú getur sparað þér þetta „góða“ þegar við erum heima,“ sagði Ann. Williams hló og fór fram í búrið til að ná í viskí. „Nei,“ svaraði hún, fremur kuldalega að því er Crane fannst. Og hún var engu blíðari í máli er hún hélt áfram: „Bill, hvers vegna gerir þú ekkert við þessar manneskjur?" „Ég er ekki heilbrigður. Eg er með timbur- menn.“ „Þú gerir ekki annað en þjóra og vera með timburmenn. Og svona hagar þú þér þó að tveir menn úr Marchfjölskyldunni hafi verið myrtir og þriðja morðið geti komið þá og þegar.“ „Það gerast því miður alltaf morð í morð- málum, góða mín.“ „Já, en ekki hjá skikkanlegu fólki eins og þessu hérna. Þetta er ekkert bófahyski. Mér finnst þetta svo óhugnanlegt .... þetta dul- arfulla gas kæfir hvern eftir annan, en þú ....“ hún þagnaði. „Já, hlæðu bara að því!“ „Ég er ekki að hlæja.“ „Nei, nei, þú hlærð þá ekki. Og svo mikið er víst að ég er hrædd. Ég get ekki skilið að Marchfólkið skuli ekki vera hrætt líka.“ „Það virðist taka þessu ofur rólega, já ... . FRAMHALDSSAGA. 11. ILMURINN en það er víst af því að það heldur að þetta séu slys.“ „En þú veist að það eru ekki slys, og samt ertu svona rólegur." Hún leit á hann með fyrirlitningarsvip. „Þú ert blátt áfram land- eyða.“ „Nei, nú skaltu hafa afturá,“ sagði Crane. „Ég hefi sannarlega hamast eins og ber- serkur.“ „Þú hefir drukkið eins og berserkur og elt kvenfólk." „Þetta eru þakkirnar sem maður fær,“ taut- aði Crane angurvær, „þegar maður leggur líf sitt í hættu og .... “ Beulah kom inn. „Það er verið að spyrja eftir frúnni,“ sagði hún. Ann tók loðna herðaskjólið sitt svarta og sagði fokreið: „Ég vildi óska að hann frændi hefði hlíft mér við að vinna með fyllirafti." Hún gekk fram að dyrunum. „Hvert ætlarðu?“ „Út og gera eitthvað af því sem þú áttir að koma í verk.“ Svo skellti hún eftir sér hurðinni og rétt á eftir heyrði hann að bílhreyfill var settur í gang fyrir utan húsið. Rétt á eftir kom Willi- ams inn í bílstjórabúningi. Hann hélt á viskí- flösku í hendinni. „Viltu viskí?“ Crane hristi höfuðið. „Veistu hvert Ann ætlaði?" Williams vissi það ekki. Hann hellti barma- fullt glas af viskí. „Urðuð þið saupsátt?" Crane svaraði ekki, og Williams hlammaði sér í stólinn andspænis honum og lagði fæt- urna upp á borðið. „I rauninni er hún afar hrifin af þér.“ „Feikn,“ sagði Crane beiskur. „Þú duflaðir kannske fullmikið við Deliu í gær,“ sagði Williams, kveikti sér í vindlingi og fleygði eldspýtunni undir sófann. „En þó fór hún með mér til þess að sækja þig. Það sýnir að henni þykir vænt um þig.“ „Farðu til helvítis," sagði Crane. Svo fóru þeir að tala um málið og kom saman um að Donovan væri eiginlega sá, sem mesta ástæðu hefði haft til að fremja morðin. Hann gat hafa drepið Richard út af vinfengi hans og Deliu og John March vegna þess að hann brá fæti fyrir fyrra náttklúbbs- fyrirtækið. Hins vegar hefði það verið eðli- legra að hann hefði drepið Simeon March, þvi að það var gamli maðurinn, sem spillti brautargengi hans sem kaupsýslumanns. Williams var líka vantrúaður á að Donovan mundi nota gas til að drepa fólk, og Crane hallaðist að því að það gæti verið rétt hjá honum. Síminn hringdi og Crane svaraði. Hás rödd spurði: „Þykir yður nokkurs vert um konuna yðar?“ „Vert um hvað?“ „Um konuna yðar.“ „Jú. Víst þykir mér það.“ „Ef þér viljið ekki missa hana þá ættuð þér að fara aftur til New York í flýti.“ Það fór hrollur um Crane. „Hvers vegna?“ „Þér ættuð ekki að vera svona spurull." Röddin var líkust því að sá sem talaði væri með vasaklút fyrir munninum. „Og ef þér haldið að ég sé að gabba yður þá skuluð þér líta á kvöldblöðin.“ Williams flýtti sér út og keypti blað. Hann var í geðshræringu þegar hann kom inn aft- ur og fleygði blaðinu til Crane. Helsta fyrir- sögnin á fremstu síðu var: FJÁRHÆTTU- SPILARI MYRTUR. Neðar á blaðsíðunni var mynd af grönnum, ungum manni, með hattinn niður á enni. Und- ir myndinni stóð: „Líkið sem fannst í Willow Creek reyndist vera af Charles (Lefty) Dolan.“ „Maðurinn með draugsröddina," sagði Crane. „Við skulum fara,“ sagði Crane. „Hvert?“ „Við verðum að rannsaka hvort Slats hefir drepið Delíu líka,“ sagði Crane. Ann brosti til Peters March yfir kampavíns- glasið og hugleiddi með sér að aldrei hefði hún séð tuttugu milljónir samankomnar í glæsilegri karlmanni. Þau voru aftur komin í Rauða köttinn, af því að Alice March varö að sjá Deliu Young. „Það var maðurinn yðar sem uppgötvaði hana,“ sagði hún og horfði sakleysislega á Ann, „svo að þá finnst mér að ég megi til að líta á hana.“ Þau voru með Talmadge March, Carmel og Woodrin lækni. Ann hafði sagt þeim að Bill væri svo veikur að hann kæmist ekki út, en hún var ekki alveg viss um hvort þau trúðu því. Þeim mun öllu frekar hafa dottið í hug að hún hefði tekið boði Peters March til að hefna sín á Crane eftir það, sem hafði gerst kvöldið áður. Annars stóð henni alveg á sama hvað þau héldu. Hún hafði farið með þeim til að hlusta á þau tala og heyra fölsku tónana í því sem þau sögðu. Morðinginn hlaut að koma upp um sig fyrr eða síðar. Eini vand- inn var sá að vera á verði og taka eftir þegar hann hljóp á sig. „Þetta hlýtur að vera töfrandi söngkona," sagði Alice og brosti smeðjulega til Ann. Ann sárlangaði að reka henni löðrung beint á englaásjónuna, en hún stillti sig og sagði bara: „Hún kemur rétt bráðum, og þá fáið þér að sjá hana sjálfa." Carmel sagði: „Já, þig langar eflaust að eiga eitthvað af hennar yndisþokka, Alice. Alice varð í svipinn eins og móðgaður kettl- ingur. Hún svaraði ekki, en Talmadge hljóp undir bagga með henni. „Ég heyri sagt að hún noti þessa sömu seiðandi ilmdropa sem Carm- el,“ sagði hann. Ann braut heilann um hvers vegna Talm- adge væri svona umhugað um að minna á að Carmel notaði gardeníu-ilmdropa. Það varð ekki annað séð en hann væri að reyna að vekja grun á henni. „Alice ætti að athuga hvort ekki væri reyn- andi að nota gardeníudropa lika,“ sagði Carmel ónotalega. „Þá er ekki að vita nema henni héldist betur á karlmönnunum." „Að hugsa sér að við skulum aldrei geta verið saman án þess að þú reynir að vekja rifrildi, Carmel," sagði Alice. „Hafðu gát á sjálfri þér!“ Carmel hvessti

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.