Fálkinn - 20.08.1954, Qupperneq 3
Ungfrú Ragna Ragnars kjörin „Fegurðardrottning Islands 1954“
Um fátt liefir verið meira talað að
undanförnu en fegurðarsamkeppnina
í Tivoli um síðustu heigi, enda var
þar valin fegurðardrottning íslands
úr liópi 14 stúlkna frá ýmsum stöðum
landsins. Sjö stúlknanna voru úr
Reykjavík, tvær frá Akureyri og ein
frá Keflavík, Sandgerði, Ytri-Njarð-
víkum, Vestmannaeyjum og Akranesi.
Á laugardagskvöldið var hið feg-
ursta veður, og flykktust bæjarbúar
lmsundum saman suður í Tivoli til að
skoða hinar ungu blómarósir. Næstum
])ví tveir hriðju hlutar þeirra, sem
sóttu útiskemmtunina í Tivoli-garð-
inum þetta kvöld greiddu atkvæði um
fegurstu stúlkuna úr hópnum, en alls
voru seldir á 10 þúsund aðgöngunnð-
ar. Kvöhlið eftir voru úrslit til-
kynnt og kom þá i ljós, að ungfrú
Itagna Ragnars frá Akureyri liafði
verið kjörin „Fegurðardrottning Is-
lands 1954“, en i öðru sæti var líka
stúlka frá Akureyri, ungfrú María
Jónsdóttir. I þriðja sæti var ungfrú
Jóhanna Hciðdal frá Reykjavík. Var
hinum ungu og glæsilegu stúlkum
fagnað hjartanlega í Tivoli þctta
kvöld.
Tilhögun ])essarar fegurðarsani-
keppni var þannig, að hver aðgöngu-
miði að Tivoli þetta kvöld gilti sem
kjörseðill, en þó var höfð dómnefnd
til vara, ef tveir keppendanna eða
fleiri fengju jafna atkvæðatölu eða
því sem næst. Til kasta þeirrar nefnd-
„Fegurðardrottning íslands“, ungfrú Ragna Ragnars frá Akureyri. Hún
er námsmær í Menntaskólanum á Akureyri, en hefir starfað í útihúi Út-
vegsbanka Islands h.f. á Akureyri á sumrin. Hún hlýtur að verðlaunum
ókeypis ferðalag til Parísar. Myndina tók Ragnar Vignir.
ar kom þó ekki. Þeir Einar Jónsson
forstjóri og Thorolf Smith blaðamað-
ur önnuðust annars allan undirbúning
og framkvaémd þessarar keppni.
Ragna Ragnars er dóttir hjónanna
Sverris Ragnars og Maríu Matthías-
dóttur á Akureyri. Ilún er nemandi 1
Menntaskólanum á Akureyri og sest í
6. bekk í haust, en hefir unnið í útibúi
Útvegsbankans li.f. á Akureyri. Hún
fékk að verðlaunum flugferð til Par-
isar og heim aftur, vikudvöl í stór-
borginni og 1000 kr. að auki.
María Jónsdóttir vinnur í sælgætis-
gerðinni Flóru á Akureyri. Hún fékk
í verðlaun dragt frá „Kápunni“ á
Laugavegi 35, skó og tösku.
Jóhanna Heiðdal vinnur í Útvegs-
banka íslands h.f. Hún fékk i verð-
laun vandaða vetrarkápu.
Hin nýkjörna fegurðardrottning er
19 ára að aldri, en tveir skæðustu
keppinautar hennar eru 18 ára
gamlar.
Það virðist nú, að hin árlega feg-
urðarsamkeppni í Tivoli hafi skapað
sér tryggan sess, þrátt fyrir ýmsar
tilraunir í þá átt að afnema þennan
þátt úr dagskrá hátiðahaldanna. Að-
sóknin að Tivoli sýnir einnig mjög
vel, að fólk kann að meta þessa ný-
breytni sqiii liér hefir verið tekin upp
að sið erlendra þjóða, og ólíklegt er,
að þeir, sem eru á móti hinni árlegu
fegurðarsamkeppni, fá komið vilja sín-
um fram á næstu árum. *
Þátttakendur í fegurðarsamkeppninni í Tivoli. Alls komu þarna fram 14 blómarósir, þar af 7 frá Reykjavík, 2 frá Akureyri, 1 frá Keflavík, 1 frá
Sandgerði, 1 frá Ytri-Njarðvíkum, 1 frá Akranesi og 1 frá Vestmannaeyjum.