Fálkinn - 20.08.1954, Side 7
FÁLKINN
7
Þá sá ég allt í einu stóran stein í
miðri skriðuurðinni, og ég sagði við
sjálfa mig: „Þarna hvilir Don“.
'Það leit alls ekki út fyrir, að steinn-
inn liefði oltið þangað niður, heldur
virtist hann hafa verið settur þarna
af manna höndum. Hann var eins og
minnisvarði. Á þessari stundu vildi
ég trúa því, að Don væri grafinn
þarna. Mér fannst þetta verðugur
hvilureitur fyrir heiðarlegan mann.
Og hugsunin mótaðist áfram. Ég
óskaði þess af heilum hug, að ég hvíldi
undir þessum sama steini við hliðina
á Don. Ég var gripin löngun til að
kasta mér fram af gljúfurbarminuni,
en ég var of máttvana til að hreyfa
mig — of hjálparvana til að geta
bundið endi á lijálparleysi mitt.
EFTIR dálitla stund rankaði ég við
mér. Ég hafði tekið einhvern hlut upp
með hendinni. Eg virti hann fyrir
mér með fjarrænu augnaráði, eins og
mér væri hann óviðkomandi.
Loks áttaði ég mig á þvi, að ég liélt
á vettling af Don. Það var gamall
vettlingur og hafði augsýnilega legið
þarna lengi.
Var vettlingurinn bending til min
um, að Don væri á lífi? Fyrirheit um
það, að hann mundi vitja mín? Hjarta
mitt sagði: „Já, já.“ En heilinn var
þess ekki um kominn að koma skyn-
samlegri yfirvegun á framfæri. Ég
vissi það eitt, að ég liélt á vettling
Dons og þrýsti lionum að kinninni.
Síðan brast ég i grát. Og það var eins
og stíflu væri rutt úr vegi. Tárin
streymdu niður kinnarnar. Eiginlega
var þetta í fyrsta skiptið, sem ég
megnaði að gráta.
Er gráturinn var liðinn hjá, lá ég
í-móki stundarkorn. Ef til vill hefi
ég gleymt mér. Síðan fann ég til und-
arlegs léttis'. Ég óskaði þess ekki
lengur, að ég væri dáin. Eg iðraðist
þess meira að segja að hafa látið slika
liugsun ná valdi yfir mér. Ég gerði
heitstrengingu með sjálfri mér:
„Sjálfsmorð skal ekki hvarfla að
mér oftar, hversu þungur sem róður-
inn reynist mér, liversu miklar þján-
ingar sem ég verð að liða eða hversu
einmana sem ég verð. Ég skal ekki
gefast upp. Ég skal beita þeirri skyn-
semi, sem guð hefir gefið mér, til liins
ýtrasta og reyna af öllum mætti að
hjálpa mér sjálf, svo að barnið okkar
megi lifa og heimili okkar verði við
þvi búið að taka við eiginmanni min-
um, er hann kemur heim á ný“.
Ég hafði þetta yfir nokkrum sinn-
um. Og orðin færðu mér frið og ró.
ÉG VARÐ veik eftir þessa ferð upp
á hæðina. Eg fékk hita og lá rúmföst
i tvo daga. En þegar hitinn hvarf fann
ég, að liðan mín batnaði stórum.
Ég er búin að klippa mig. Eg hafði
vanrækt sárin á liöfðinu til þessa, en
þau höfðu valdið mér nokkrum ó-
þægindum. Það rignir ennþá og þróm
er full. Ég liitaði vatn og þvoði mér
um höfuðið. Það tók langan líma og
þreytti mig ótrúlega.
Ég kannaði sárin með rakspegli
Dons. Stærsti skurðurinn er yfir 2
þumlungar á lengd. Hvass steinn hlaut
að vera valdur að honunt. Það var ekki
að furða, þótt ég hefði haft verk í
höfðinu.
Nú er ég viss um, að liðnar eru tvær
til þrjár vikur, síðan Don fór, og þvi
komið fram yfir þann tíma, er við
áttum að taka Sam á leiðinni suður.
Vonin um, að Sam væri farinn að ótt-
ast um okkur og kæmi því til baka,
fór þess vegna váxandi. Það gætu
varla liðið margir dagar, þangað til
hann kæmi. Meðan ég bíð eftir Sam,
ætla ég að huga að sárum mínum, svo
að ég liti sem best út, þegar hann
kemur.
MEÐAN ég lá uppi í rúmi fann ég
allt i einu óljósar hreyfingar i kviðn-
um. Það var barnið, sem tekið var
að bæra á sér. Þetta var í fyrsta skipti,
sem ég hafði orðið þess vör, síðan ég
varð fyrir meiðslunum. Fyrst varð
ég skelfd, en siðan breyttist skelfingin
i fögnuð. Hnjaskið, sem ég varð fyrir
í skriðunni hefði getað grandað barn-
inu. En nú vissi ég, að það var lif-
andi.
Við höfum beðið 12 ár eftir öðru
barni. Ekkert má þvi granda þessu.
Ég ætla því að njóta allrar þeirrar
hvildar, sem ég tel mig þurfa.
Eg skrifa á hverjum degi, og það
styttir mér stundir.
í DAG held ég, að sé 1. desember. Ég
merki dagana með krossi, en næturn-
ar með hring. Með þeim hætti ætla ég
að fylgjast með tímanum. Þar, sem ég
tók þetta kerfi ekki upp strax, varð
ég að giska á, hve margir dagar væru
liðnir, frá þvi að óhappið henti.
Fyrst í stað var ég svo rugluð og
viðutan, að ég greindi varla dag frá
nóttu. Stundum var ég í vafa um,
hvort ég hefði vaknað tvisvar sömu
nóttina eða sofið allan daginn og fram
á næstu nótt.
Nú hefi ég atliugað birgðirnar i
skálanum. Karlmennirnir liöfðu á-
ætlað að hefja vinnu snenima næsta
vor, svo að þeir höfðu skilið eftir
nokkuð af vistum og fatnaði.
Mér taldist til, að vistirnar ættu að
vera nægjanlegar fyrir tvo eða þrjá
karlmenn í 2 mánuði. Don hafði gert
niðurgrafna geymslu undir gólfinu i
skálanum að ofanverðu. Það var hæfi-
lega kaldur, frostheldur staður fullur
af niðursuðuvarningi.
Á liillunum er nóg af hveiti og
kornmat. Þá eru fjórar tuttugu og
fimm punda öskjur, hver um sig meira
en hálffull of þurrkuðum ávöxtum.
Nóg er af þurrmjólk, sykri, kaffi, tei,
baunum, hrísgrjónum, ediki og steik-
arfeiti. Einnig eru nokkrar öskjur
fullar af smjöri, bacon, þurrkuðum
eggjum og kakaói.
Ég gæti dvalist hér i allan vetur án
þess að þurfa að óttast matarskort.
í horninu bak við ofninn, undir
hillunum, er höggvinn eldiviður.
Lloyd hjó brennið, áður en hann fór,
og staflaði því þarna upp. Fátt hefir
komið sér betur fyrir mig, því að ég
get fyrirhafnarlítið haft góða hlýju
i skálanum. Þá er einnig góður eldi-
viðarstafli utan við skálann. Það ætti
því ekki að verða eldiviðarskortur í
náinni framtið.
Eldspýtur eru liins vegar af skornum
skammti, en nægilegt af karbít og tveir
lampar — besti lampinn fór forgörð-
um uppi í námunni.
MÉR HEFIR aldrei liðið eins vel og
í dag. Satt að segja undrast ég, hve
fljótt ég hefi gróið sára minna. Fót-
urinn er miklu skárri en hann var,
og ég er farin að geta stigið í liann.
Ég þvæ hann og nudda á hverjum
degi og reyni að halda sem bestum
hita á honum að næturlagi.
Handleggurinn er næstum orðinn
alveg góður. Ég er farin að skrifa
með hægri hendinni. Það er dásam-
legt að geta látið hægri liendina festa
hugsanir sínar á pappirinn aftur. í
morgun hefi ég sungið — sungið glað-
væra söngva í fyrsta skipti.
Framhald í næsta blaði.
Stjörnulestur
Eftir Jón Árnason, prentara.
Nýtt tungl 29. júlí 1954.
Alþjóðayfirlit.
Framkvæmdaþrekið er mikið í
heimsmálunum, en þó er hætt við að
tilfinningar láti frekar á sér bæra í
meðferð þeirra en róleg íhugun. —
í talnaspeki er 29=11, sem er há
andleg tala merkilegt fyrirbrigði og
ættu andleg sjónarmið að koma til
greina og liafa meðverkandi áhrif,
þvi að þeirri leið einni verða við-
fangsefnin farsællega leyst. Er óvar-
hæfni manna þess umkominn að fara
þessa leið? Því svarar reynslan. Megn-
ið af plánetum eru í hinum neikvæða
eða seinni hluta nætur og munu áhrif-
in þvi að ýmsu veikari en ella og því
ætti deyfð nokkur að gera vart við
sig eða i afstöðu sumra þeirra sem
við heimsmálin eru riðnir. — Aftur
á móti ætti heildarafstaða íslands að
vera þróttmikil, því að sjö plánetur eru
í framkvæmdaröðum. Jarðskjálfti um
Indó-Kína, Hainan og Java eða á
þeirri lengdarlínu.
Lundúnir. — Nýja tunglið er í 5.
liúsi. Leiklist og leikarar ættu þvi að
vera mjög áberandi og veitt mikil
athygli. Þó er líklegt að tafir nokkrar
komi til greina i rekstri leikhúsa og
skemmtistaða. — Neptún og Satúrn i
7. húsi. Slæm afstaða i utanrikismál-
unum. Tafir og dráttur kemur í ljós
og undangröftur og uppivöðslur á
ferðinni. — Venus í 6. húsi. Verka-
menn og vinnuþiggjendur undir góð-
um áhrifum. — Mars í 9. húsi. Slæm
áhrif á siglingar og nýlenduverslun-
ina. Barátta og verkföll gætu komið
til greina. — Merkúr, Úran og Júpíter
i 4. húsi. Ætti að vera góð afstaða
fyrir landbúnaðinn og landeigendur.
Norðlæg átt likleg. Sprenging eða
eldur gæti komið upp i opinberri
byggingu og verkföll gætu átt sér stað
í sambandi við landbúnaðinn.
Berlín. — Nýja tunglið er i 5. húsi.
Leikhús og leikmennt og leikarar
mjög á dagskrá og veitt athygli. Þó
gætu truflanir komið til greina frá
utanaðkomandi áhrifum. — Júpiter
og Merkúr i 3. húsi. Ætti að hafa góð
áhrif á samgöngur, flutninga, póst
og sima og útvarp, blöð og bókaút-
gáfu. — Úran í 4. liúsi. Slæm afstaða
gagnvart ráðendunum. íkveikjur og
sprengingar í opinberum byggingum.
Urgur og óánægja meðal bændanna.
— Neptún i 7. húsi. Utanríkismálin
undir slæmum áhrifum. Svik í samn-
ingum við aðrar þjóðir og undan-
gröftur rekinn. Varasemi og aðgætni
i meðferð utanríkismálanna. Úran i
húsi þessu bendir á tafir og truflanir
i þessum málum.
Moskóva. —< Nýja tunglið í 4. húsi,
ásamt Plútó. Landbúnaðurinn er und-
ir mjög mikilli athygli og honum veitt
eftirtekt, einkum samyrkjubúunum.
Tafir og hindranir koma til greina
i þeim framkvæmdum og landráð, sem
munu skjóta upp höfðinu. — Venus og
Neplún í 5. húsi. Leikhús og leikarar
undir góðum áhrifum og gefur su
starfsemi góðan árangur. — Satúrn
og Mars i 6. húsi. Mjög slæm afstaða
fyrir verkamenn og þjóna. Örðug-
leikar, tafir og barátta í málum þeirra.
— Úran i 3. húsi. Slæm áhrif i rekstri
járnbrauta og samgangna, fréttafluln-
ing, bækur, blöð og útvarp. Sprenging
gæti átt sér stað í samgöngutæki eða
útvarpstækjum. — Júpíter og Merkúr
í 2. húsi. Góð áhrif á banka og pen-
ingaveltu og auknar tekjur.
Tokýó. — Nýja tunglið í 12. lhisi.
Góðgerðastarfsemi og góðgerða-
stofnanir, vinnuhæli, betrunarhús og
sjúkrahús undir áberandi áhrifum og
þeim veitt almenn athygli. Tafir
gætu komið til greina og svik í með-
ferð þeirra, því að Plútó er einnig í
húsi þessu. — Venus i 1. húsi. Afstaða
almennings frekar góð og heilbrigði
í sæmilegu lagi. — Neptún í 2. húsi.
Fjármálin undir slænium áhrifum og
bankarekstur óábyggilegur. — Satúrn
í 3. húsi. Slæm afstaða í flutningum,
fréttaburði, útvarps og blaðaútgáfu og
bóka. — Mars i 4. liúsi. Barátta og úlf-
úð meðal bænda og landeigenda. Upp-
skera gæti brugðist vegna hita og
þurrka. — Merkúr, Júpiter og Úran í
11. húsi. Örðugleikar i meðferð þing-
mála og stjórnin gæti orðið völt í
sessi.
Washington. — Nýja tunglið í 8.
húsi. Ríkið gæti eignast fé að erfðum
og vafasöm áhrif á utanríkismálin. —
Júpiter, Merkúr og Úran í 7. húsi.
Vafasöm áhrif á gang utanríkismál-
aniia. Svik gætu komið til greina. —
Neptún i 11. húsi. Athugaverð áhrif
á stjórnina og afstöðu hennar. Hátt-
settir menn gætu orðið fyrir alvar-
legum álitshnekki. — Mars i 12. húsi.
Góðgerðastarfsemi, vinnuhæli, betr-
unarhús og sjúkrahús undir slæmum
áhrifum. íkveikjur og saknæmir
verknaðir koma til greina.
í s 1 a n d .
7. hús. — Nýja tunglið er í húsi
þessu. Örðugleikar eru sýnilegir, bæði
í fjárhagsmálum og viðskiptum við
aðrar þjóðir og ágreiningur veruleg-
ur, urgur og tafir koma til greina.
1. hús. — Satúrn ræður húsi þessu.
— Slæm áhrif á heilbrigðina, minnk-
un vinnu og ef til vill tap á rekstri.
Óánægja meðal almennings.
2. hús. — Venus ræður liúsi þessu.
— Fjárliagsmálin undir sæmilegum
áhrifum. Þó gætu tafir og örðugleikar
nokkrir komið til greina.
3. hús. — Merkúr ræður húsi þessu.
— Sæmileg afstaða til flutninga og
samgangna, útgáfu bóka og blaða,
fréttaþjónustu og útvarps. Þó gætu
misgerðir komið i ljós í sambandi við
þau fyrirtæki sem hér eiga lilut að
máli.
4. hús. >— Merkúr ræður húsi þessu.
— Óánægja nokkur gæti komið til
greina meðal bænda og aðstöðu þeirra.
5. hús. — Tungl ræður húsi þessu.
— Afstöðurnar ekki verulega góðar.
Slæm meðferð á börnum gæti komið
til vitundar almennings og saknæmir
verknaðir koma í ljós. vegna slæmrar
afstöðu til tunglsins.
6. hús. — Júpiter ræður húsi þessu.
— Ætti að vera sæmileg afstaða fyrir
verkamenn og aðstöðu þeirra. Ýmsar
endurbætur gætu komið til greina.
8. hús. — Mars ræður liúsi þessu. —
Ekki er líklegt að ríkið eignist fé við
fráfall manna eða hljóti erfðir.
9. hús. — Júpíter ræður húsi. — Ut-
anríkisverslunin mun undir sæmileg-
um áhrifum og verslunarsiglingin
góð.
10. hús. — Mars í lnisi þessu. — Af-
staða stjórnarinnar er hæpin, ýmsir
örðugleikar koma til greina. Háttsett-
ur maður gæti látist.
11. hús. — Satúrn ræður húsi þessu.
— Tafir og örðugleikar nokkrir koma
til greina og framkvæmd laga frekar
örðug.
12. hús. — Engin pláneta i liúsi
þessu. Hefir það því eigi veruleg
áhrif. Ritað 31. júlí 1954.