Fálkinn


Fálkinn - 01.10.1954, Qupperneq 13

Fálkinn - 01.10.1954, Qupperneq 13
FÁLKINN 13 hatt og í loSkápu læddist að rúminu með svæfil í hendinni. Crane sagði: „Ég miða á yður!“ Konan sleppti svæflinum og hleypti af tveimur skotum í áttina til hans. Gulir skotblossarnir blinduðu Crane. Hann hnipr- aði sig í horninu og skaut. Hvellurinn úr byssu hans var miklu sterkari en úr hennar byssu. Honum súrnaði í augum af reyknum. Svo skutu bæði. Hvellirnir voru miklir. „Svín!“ sagði konan. Röddin var hás eins og í Deliu Young. Hún skaut á Crane einu sinni enn og hvarf svo út úr dyrunum. Crane flýtti sér á eftir henni. Konan var þegar komin þrjá fjórðu leiðarinnar fram að lyftunni. Hún hljóp svo blár kjóllinn hennar flagsaði undir loðkápunni. Hún var digur og þrekleg og fæturnir eins og stólpar. Hárið sást ekki fyrir hattinum. Crane miðaði vandlega og hleypti skotinu af. Smellurinn bergmálaði um allan ganginn. En hann virtist ekki hafa hitt að gagni. Að minnsta kosti hélt konan áfram sprettinum, fyrir hornið og að lyftunni. Hjúkrunarkonunni skaut upp rétt bak við Crane. „Hver var þetta?“ „Veit það ekki?“ Hann hljóp. Hjúkrunarkonan á eftir, en áð- ur en þau höfðu hlaupið mörg skref heyrðist nýtt skot. Crane sá konunni bregða fyrir er hún hljóp fyrir hornið að lyftunni. En stóru hattbörðin og kraginn á loðkápunni huldu andlitið. Hjúkrunarkonan hvarf inn um dyr, og Crane sem var kominn dálítið lengra fram í ganginn, opnaði dyrnar að nr. 417 og forð- aði sér inn í herbergið. Konan skaut einu sinni enn og Crane hörf- aði lengra inn í herbergið. Bak við hann fór kona að hljóða. „Verið þér róleg,“ sagði hann. „Ég skal ekki gera yður mein.“ Hann gægðist út á ganginn. Konan var horf- in. Hann fór út fyrir dyrnar. Ekkert gerðist. Hann heyrði dýninn í lyftunni og hljóp þang- að. Á leiðinni lá við að hann dytti um konu í hjúkrunarslopp. Hún lá á gólfinu við borðið sem siminn stóð á. Blóðpollur var við höfuðið á henni. Lyftan var sjálfvirk. örin á glerhurðinni sýndi að hún var milli 2. og 3. hæðar. Crane þreif símann. „Halló! Halló! Hann margþrýsti á gaffal- inn. „Halló! Er varðmaður frá March & Co. í anddyrinu? Segið honum að stöðva mann- eskjuna, sem kemur út úr lyftunni núna! Fljótt! Svo sleit hann sambandinu. Næturhjúkrun- arkonan var að bogra yfir hjúkrunarkonunni sem lá á gólfinu. „Er hún dáin?“ spurði hann. „Ekki held ég það.“ örin yfir lyftudyrunum komst á I og fór Hvar er mandaríninn? svo strax að snúast í hina áttina. Grár púður- reykur var í ganginum. Næturhjúkrunarkona lagði kodda undir höfuðið á særðu konunni, sem stundi lágt. örin fór framhjá II. Crane starði á hana. „Hún kemur upp aftur.“ „Nei, það held ég varla.“ Næturhjúkrunar- konan horfði líka á örina. Crane athugaði skammbyssuna sína. Hann átti tvö skot eftir. „Kannske fer hún á III. hæð,“ sagði hann. Konan á 41 hljóðaði. Röddin skalf af hræðslu og þa ðfór hrollur um Crane þar sem hann stóð. Svo æpti hún aftur, enn sárar en áður. örin fór framhjá III. hæð. „Ég held að þér ættuð ekki að standa hérna lengur,“ sagði Crane við hjúkrunarkonuna. Hann dró símaborðið frá þilinu 'og velti því svo að borðplatan lá upp að lyftudyrunum. Síminn datt á gólfið og spjaldskrá þeyttist í allar áttir. Konan á 417 æpti. Svo lagðist hann bak við borðplötuna. Hann sá ljósið fyrir innan glerhurðina á lyftunni. Næturhjúkrunarkonan stóð í dyrum skammt frá. Crane lagði skammbyssuna á borðbrún- ina og miðaði á lyftuna. Það heyrðist mellur um leið og hún nam staðar. Crane hnipraði sig með fingurinn á gikknum. Stúlkan sem lá á gólfinu hjá honum hafði fengið meðvitundina. Hún starði á hann og angistin skein úr augunum. Lyftudyrnar opnuðust og Alice March kom út. Andlitið var eitt bros. Hún var með stór- an blómvönd í hendinni og barðastóran hatt á höfðinu. Crane hafði farið inn i matsal sjúkra- hússins og var að drekka kaffi og hafði * látið drjúgan slatta af viskí út í það. Hann var afar bágur. 1 fyrsta lagi kenndi hann sér um að konan hafði sloppið. I öðru lagi vantaði marga möskva í netið, sem hann ætlaði að veiða morðingjann í. Og í þriðja lagi fannst honum hann hafa svikið Ann. Hann óskaði að hann hefði aldrei orðið njósn- ari. Kringum borðið sátu svo að segja allir hin- ' ir, sem höfðu fengist við málið. Þeir drukku kaffi og átu smurt brauð og töluðu um það sem gerst hafði. Rutledge læknir var kominn aftur, og hafði sofið í fjóra tíma, og allir hinir voru enn á sjúkrahúsinu þó að Simeon March hefði komist yfir örðugasta hjallann, sem var skömmu eftir skothríðina, og hefði nú verið með rænu í nokkrar mínútur. Með sykursætri og meinlegri rödd var Alice March að lýsa hvernig henni hefði verið inn- anbrjósts þegar hún horfði beint á hlaupið á skammbyssu Cranes. „Ég hélt að hann hefði fengið æðiskast,“ sagði hún, „og það var engin furða, því að ég sá líka hjúkrunarkonuna, sem lá rétt hjá hon- um í blóði sínu. Peter March sem var náfölur undir dökkri skeggrótinni hlustaði á hana og virtist ekki skilja í neinu. „Það er ennþá margt í þessu sem ég ekki skil,“ sagði hann. Rutledge læknir tók nú til máls og sagði alla söguna, frá því að Crane hefði beðið um að fá að vaka yfir Simeon March og þangað til konan með skammbyssuna gekk honum úr greipum. Hann beindi máli sínu aðallega til Carmel. Fagurt andlit hennar minnti Crane ennþá mest á grímu — alltaf í sömu skorðum en þó jafnframt athugult. Woodrin læknir hlustaði úr sæti sínu neðst við borðið. Hann var óvenjulega fölur og virt- ist þreyttur og lúinn. Við og við fékk hann sér vænan sopa af svarta kaffinu í bollanum. „Crane hélt með öðrum orðum að morðing- inn mundi koma aftur......“ sagði Rutledge læknir. Og morðinginn hafði í raunni komið, hugs- aði Crane með sér, en svo hafði allt farið út um þúfur hans vegna. Ef hann hefði verið Framhald í næsta blaði. FÁLKINN - 'VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM - A£- greiðsla: Bankastræti 3, Reykjavík. Opin kl. 10-12 og 1-6. Blaðið kemur út á föstudögum. Áskriftir greiðist fyrirfram. - Ritstjóri: Skúli Skúlason. Fram- kv.stjóri: Svavar Hjaltested. - HERBERTSprent. ADAMSON Hið rétta skap.

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.