Fálkinn - 26.11.1954, Blaðsíða 5
FÁLKINN
5
hrifnir af henni, þá verður það ekki
síður sagt um hinar norðlægu þjóð-
irnar, en þeir sem hrifnastir voru af
henni voru þó Finnarnir. Hún hafði
mikla samúð með þessari litlu þjóð,
sem ratað hafði í svo miklar raunir,
og hún hefir verið mikill Finnlands-
vinur ætið síðan. í vetrarstríðinu
1939—40 sendi hún stórgjafir til Finn-
lands. Hún á margar góðar endur-
minningar þaðan, og ein þeirra er frá
samfundum hennar og Jean Sibelius.
Hún heimsótti hann. Þegar tónskáldið
hafði boðið bana veikomna spurði
liann hvort hana langaði ekki í kaffi.
En Marian vildi syngja áður en hún
fengi kaffið ,og er liún hafSi sungið
tvö lög eftir Sibelius, spratt hann upp
og rigsaði fram að dyrum og kallaði
á stúlkuna og sagði: „Champagne!“
Honum datt ekki í hug að nefna kaff-
ið aftur. Sibelius hefir jafnan haft
miklar mætur á Marian Anderson sið-
an, og tileinkaði henni lagið „Soli-
tude“, en það lag syngur hún oft.
Eftir Norðurlandadvölina söng hún
víða i Evrópu, Ameríku og Afríku.
Alls staðar var henni fagnað með fá-
dæmum vel, og þegar sir Henry Wood
lét hana syngja á einum hljómleikum
sínum i Queens Hall, var viðurkenn-
ingin fyrir heimsfrægðinni fengin.
Hvenær sem nafnið Maritan Ander-
son sést á söngskrá þá þýðir það út-
selt hús, og aldrei verður neinn fyrir
vonbrigðum, sem heyrir hana, þó að
við miklu hafi verið búist. Söngur
hennar kemur frá hjartanu.
En heimsfrægðin nægði ekki tii að
útrýma kynþáttahatrinu í heimalandi
hennar, Bandaríkjunum. Vegna þess
að hún var svertingi gat hún jafnan
átt von á að verða fyrir móðgunum
og misrétti, og hún gekk þess ekki
dulin, að utan söngsins var liún ekki
jafn rétthá og hvitir menn.
Eitt af því túalegasta sem fyrir
hana hefir komið var það, að kven-
féiagið „Daugliters og the American
Revolution" neitaði henni um að fá
að syngja í Constitution Hall i Was-
hington vegna þess að hún var blökku-
stúlka. Þetta vakti mikinn styr, ekki
aðeins í Bandarikjunum heldur um
allan heim, og varð til þess að fjöldi
kvenna sagði sig úr félaginu, en
Eleanor Roosvelt forsetafrú sagði af
sér formennskunni til þess að mót-
mæla þessum aðförum. Þá var stungið
upp á því að Marian Anderson héldi
hljómleika úti, og féllst hún á það, en
þó með hálfum huga. Páskamorgun
1939 fór hún og fjölskylda hennar
undir lögregluvernd gegnum mann-
jmöngina, sem hafði safnast saman á
torginu fyrir framan Capitol í Was-
hington. Heill skógur af ljósmynda-
vélum og hljóðnemum var andspænis
henni þegar hún byrjaði að syngja.
Kringum 75.000 manns hylltu hana
þarna á torginu og hljómleikunum var
Kinnvöðvarnir eru sterkustu vöðv-
arnir í mannslíkamanum. Þeir gætu
auðvehilega lyft 120 kílógrömmum.
Menelik Ethiópiukonungur (1844—-
1913) trúði mjög bókstaflega á mátt
hins prentaða orð. Ef hann var veikur
eða illa lá á honum át hann eitt eða
tvö blöð úr Bibliunni. Það fór að
lokum með liann að hann át þykka
útgáfu af Konunganna bók. Annað
hvort hefir hann treyst meltingunni of
vel eða hann liefir ekki reiknað rétt
lengdina á bókinni.
útvarpað til hundraðfalt fleiri áheyr-
enda. Fögnuðurinn á þessum hljóm-
leikum var meiri en nokkurn tima áð-
ur og áheyrendurnir mótmæltu eftir-
minniiega atferli „Daughters of tlie
American Revolution".
Með þessum hljómleikum undir
minnismerki Lincoins skóf Marian
Andersen um sinn út stéttamun hvítra
og svartra manna í Bandarikjunum.
Á stríðsárunum varð liljóðara um
nafn Marian Anderson. Hún hefir
haldið áfram söngferðum sínum, en
hún er ekki eins þrelcmikil og áður.
Hinar sífelldu ferðir hennar hafa slitið
henni út, svo að nú fer hún sér hægar
en áður og syngur ekki eins mikið.
En hún starfar af kappi að öðrum
hugðarmálum sínum, meðal annars að
því að eyða kynþáttahatrinu og berj-
ast fyrir fullu jafnrétti kynbræðra
og -systra sinna. Hún berst með öllu
hugsanlegu móti fyrir því, að svert-
ingjar fái fullt jafnrétti við hvíta
menn, og leggur hart að sér. Nokkuð
hefir unnist á, en þó á það langt í land
að svertingjar fái fuil mannréttindi.
Sjálf er bún heimsborgari og í hennar
augum eru allir menn jafnir. Það er
„manneskjan fyrir innan hörundið",
sem skiptir máli. Og hún er stórmenni
sjálf, í fleiru en söngnum. Gjafmildi
liennar er við brugðið, þó að hún
sendi jafnan gjafir sínar undir dul-
nefni. Hún er mikill vinur ungs lista-
fóiks og margir eiga það lienni að
þakka, að þeir hafa komist áfram á
listabrautinni. Árið 1940 fékk hún
Bokverðlaunin svonefndu, 10.000 doll-
ara, sem hún gaf samstundis í sjóð
handa efnilegu söngfólki. Sjúkir og
fátækir leita hennar aldrei árangurs-
laust. Hún vill öllum hjálpa og alla
gleðja. En þó er það fyrst og fremst
fjölskylda hennar, sem hefir notið
góðs af hjálpfýsi hennar. Hún lætur
sér annt um hag systra sinna og skrif-
ast jafnan á við móður sína, sem
stundum hefir verið með henni í
söngferðunum.
Marian Anderson er ósvikin lista-
manneskja og göfug sál. Þegar hún
fékk Singarn-heiðurspeninginn árið
1939, en hann er veittur fyrir mesta
og göfugasta afrekið, sem svertingi
hefir unnið á sínu sviði, afhenti frú
Eleanor Roosvelt henni verðlaunin
með þessum orðum: „Þegar maður
hefir séð hvað þér hafið gert, verður
spurningin um kynþætti og trúarjátn-
ingu hljóm eitt.“ *
VEIKUR TÍSKUKÓNGUR. — Jaques
Fath, franski tiskukóngurinn liggur
veikur í blóðsjúkdómi (leukomi), sem
læknarnir ráða ekki við. Hann er að-
eins 42 ára, og talinn mikill missir
að honum, ef hann fellur frá.
Stjörnulestur
eftir Jón Árnason, prenlara.
Nýtt tungl 25. nóv. 1954.
Alþjóðayfirlit.
Vatnsmerkin eru yfirgnæfandi i
áhrifum. Tilfinningarnar munu hafa
mikil áhrif á atliafnir manna og hætt
er við að hugsunin fái að lúta i lægra
haldi — frekar en hyggilegt sé. Ýmis-
legt nýtt gæti komið til greina meðal
læknarannsókna. Mars og Neptún
í góðri afstöðu. Dulfræðilegar athug-
anir gætu komið til greina og vakið
athygli. — Tölur dagsins eru: 2 + 5 + 1
+ 1+5 + 4 = 18 = 9. Yfirráðahugsunin er
áhrifarík, liugsana-tölurnar og sóltöl-
urnar eru i samstæðu. Útkomutalan er
Mars-talan 9, sem bendir á þrautseigju
og seiglu íaðgerðunum. — Sól- og
Tunglafstaðan er ágæt og feltur í 3.
lmsi íslenska lýðveldisins, sem bendir
á framfarir og heill i framkvæmd
ferðalaga og flutninga.
Lundúnir. — Nýja tunglið er í 9.
liúsi. — Utanlandssiglingar og verslun
við nýlendurnar undir áberandi áhrif-
um. Afstöðurnar góðar og munu við-
skipti og flutningar ganga vel og
hagnaður góður. — Mars í 1. húsi.
Urgur og baráttuhneigð mikil meðal
almennings. Munu fjármál orsökin og
blaðaunnnæli um þau. — Júpíter og
Úran í 6. húsi. Urgur gæti komið til
greina meðal verkamanna og spreng-
ing gæti átt sér stað í herskipi. Sam-
stæða Júpíters gæti ef til vill eitthvað
dregið úr áhrifum. — Venus, Satúrn
og Nentún í 8. húsi. Litil líkindi eru
til þess að ríkið eignist fé á þessum
tima. Dauðsföll meðal miðla og sér-
stæðra listamanna.
Berlín. Nýja tunglið er í 9. húsi. —
Utanlandssiglingar ættu að gefa góð-
an árangur og verslun við önnur
lönd talsverð. — Júpiter og Úran i
5. lmsi. Ekki hagstæð afstaða fyrir
leikhús og leikara. Sprenging gæti átt
sér stað í leikhúsi eða skemmtistað.
— Neptún i 7. lmsi. Óábyggileg afstaða
til utanríkismálanna. Brigðmælgi gæti
komið i Ijós í framkvæmd samninga
við önnur ríki. — Satúrn í 8. húsi.
Litil líkindi til þess að ríkið eignist
fé að erfðum á þessurn tíma. — Mars
í 12. húsi. Eldur gæti brotist út í góð-
gerðarstofnun eða vinnuhæli og
sjúkrahúsi.
Moskóva. — Nýja tunglið i 7.
húsi. Utanrikismálin mjög á dagskrá
og veitt athygli. Eru aðstæðurnar mjög
góðar. Þó gæti urgur eða vandkvæði
nokkur orðið út af ákvörðunum æðsta
ráðsins. — Júpíter og Úran í 4. húsi.
Ekki heppileg afstaða fyrir ráðend-
urna og sprenging gæti átt sér stað
i opinberri byggingu, og uppivaðsla
gæti komið til greina. — Neptún í 6.
húsi. Örðugleikar gætu komið til
greina vegna afstöðu verkamanna og
undangröftur gæti komið í ljós og
andstaða gegn ráðendum. — Mars í
11. húsi. Eldur gætið komið upp i
opinberri byggingu og urgur og á-
greiningur á bak við tjöldin i milli,
ráðendanna.
Tokyó. — Nýja tunglið i 5. húsi.
Leikhús, leiklist og leikarar undir
mjög áberandi athygli og eru afstöð-
urnar góðar. Ýmsar framfarir gætu
átt sér stað i þeim greinum. — Nep-
tún í 4. liúsi. Það er álitamál hve
heppileg þau eru þessi áhrif, því að
Neptún er frekar óábyggilegur hvað
áhrif snertir. Það gæti því gengið á
ýmsu, sumar afstöður slæmar en aðr-
ar góðar. Bændur munu hafa stuðning
stjórnarinnar og utanrikisviðskipt-
anna, en aftur munu fjármálin undir
slæmum áhrifum vegna fjárhagsmál-
anna og slæmrar afstöðu landbúnað-
arins. — Úran í 12. húsi. Sprenging
gæti átt sér stað í spítala, góðgerðar-
stofun, betrunarhúsi eða vinnuhæli.
Washington. — Nýja tunglið i 1.
húsi. Afstaða almennings ætti að vera
góð. Framkvæmdir reknar með mikl-
um áhuga. — Mars í 3. liúsi. Tafir
ýmsar í rekstri samgangna og tap
mun koma i ljós og umræður um
það áberandi. Aðstoð gæti komið til
greina frá þinginu, — Júpíter og
Úran í 8. húsi. Dauðsfall meðal hátt-
settra manna og fyrrv. embættis-
manna. Voveifleg dauðsföll gætu
komið til greina. — Satúrn í 12. húsi.
Tafir í framkvæmdum og rekstri
vinnuhæla, betrunarhúsa og spítala.
í s 1 a n d .
11. hús. — Nýja tunglið er í liúsi
þessu. — Þingmál og störf þingsins
munu mjög á dagkrá og veitt athygli.
Er afstöðurnar yfir höfuð góðar, svo
að þingstörfin ættu að fá frekar ró-
legan framgang.
1. hús. — Júpíter ræður húsi þessu.
— Friður og ró ætti að einkenna
heildarafstöðu almennings og ýmsar
umbætur ættu að koma til greina frá
liendi ráðendanna og heilbrigði góð.
2. hús. — Mars er í liúsi þessu. —
Ilætt er við að urgur komi alvarlega
til greina út af rekstri fjármálanna.
Bankastarfsemin mjög óábyggileg og
kostnaður eykst, en tekjur minnka.
3. hús. — Venus ræður húsi þessu.
— Samgöngur innanlands ættu að vera
undir góðum ábrifum og ganga greið-
lega, þó gætu tafir komið til greina að
einhverju leyti.
4. hús. — Venus ræður húsi þessu.
—Góð afstaða fyrir bændur og búalið.
5. hús. — Merkúr ræður húsi þessu.
— Leikarar og leikhús undir nokkuð
tvísýnum áhrifum. Urgur gæti komið
til greina og tafir á framkvæmdum,
þó mun fjárhagshliðin sæmileg.
6. hús. — Merkúr ræður húsi
þessu. — Hitasóttir og taugasjúkdóm-
ar gætu átt sér stað. Aðstaða verka-
manna athugaverð. Barátta og tafir.
7. hús. — Júpiter í húsi þessu. —
Afstaðan til utanríkismálanna er nokk-
uð sérkennileg. Hætt er við að gangi
á ýmsu og urgur geti átt sér stað í
sambandi við samninga út af þeim.
Sum atriði ættu að ganga vel, en önn-
ur illa. Brigðmælgi gæti komið í ljós.
8. hús. — Plútó í húsi þessu. — í
meðferð á gjafafé til þess opinbera
gæti birst sviksemi.
9. hús. — Merkúr, Venus og Satúrn
í húsi þessu. Tafir og örðugleikar gætu
komið í Ijós í flutningamálunl og við-
skiptum við önnur lönd.
10. hús. — Mars ræður húsi þessu.
— Stjórnin á i örðugleikum miklum
út af fjárhagsmálunum og rekstri
þeirra, hvort sem það verður henni
að aldurtila nú er ekki ljóst.
12. hús. — Engin pláneta var i húsi
þessu og munu áhrif þess því minna
áberandi. Ritað 10. nóv. 1954.
Það eru ekki smáræðis peningar
sem fara um lófa þeirra, senj frægir
eru orðnir i sjónvarpi. Fyrir 90 min-
útna leik í sjónvarpi fékk Betty Hutton
50.000 dollara, eða 800—900 þúsund
krónur. Þetta var í fyrsta skiptið sem
hún kom fram í sjónvai-pi. Hún lék
oðalhlutverkið í léttum söngleik.