Fálkinn - 23.09.1955, Side 3
FÁLKINN
3
Shíðashálim i
Hverfldölim
20 ára
Skíðaskálinn
í Hveradölum.
Tuttugu ár eru ná liðin, síðan Skíða-
skálinn í Hveradölum var vígður og
tekinn i notkun. Hann er, sem kunn-
ugt er, eign Skiðafélags Reykjavíkur,
og aðalhvatamaður að þvi, að ráðist
var í byggingu hans, var L. H. Miiller,
kaupmaður.
Það baldanast engum hugur um það,
að bygging Skíðaskálans í Hveradöl-
um var mikil lyftistöng fyrir skiða-
iþróttina, og ennþá er hann miðstöð
skíðalifsins í nágrenni Reykjavíkur.
Jafnframt þvi sem Skiðaskálinn hef-
ir verið eitt helsta athvarf skiðafólks
úr Reykjavik og nágrenni, hefir þar
verið starfrækt veitingahús með mikl-
um glæsibrag allan ársins liring nú
um langt skeið. Eru það systkinin
Steingríinur Karlsson og Ingibjörg
Karlsdóttir, sem hafa veitingastarf-
semina. í ráði er að skapa þeim bætt
starfsskilyrði með því að byggja íbúð-
arhús fyrir 'þau, áfast við skálann.
Ýms þægindi eru í Skíðaskáianum,
m. a. hverahitun og vatnsveitulögn,
sem kostaði mikið fé.
Stjórn Skíðafélags Reykjavíkur
skipa nú: Stefán G. Björnss. form.,
Lárus Jónsson, Leifur Múller, Sveinn
Ólafsson og Jóhannes Kolbeinsson.
HfHU
trygcvauUttur
Nína Tryggvadóttir hefir um þessar
mundir opna sýningu í Listamanna-
skálanum á málverkum, glermósaik
o. fl. Yekur sýningin óskipta athygli
allra gesta, og hafa mörg listaverk
þegar verið seld. Sýningin verður
opin fram yfir næstu helgi.
K.R.
ÍSLANDSMEISTARI
í KIVATTSPYRIVE
Knattspyrnufélag Reykjavíkur varð
íslandsmeistari í knattspyrnu í ár í
15. sinn og hefir ekkert félag pnnið
íslandsbikarinn jafnoft. Hlutu þeir
9 stig af 10 mögulegum. og unnu öll
félögin nema Val, sem þeir gerðu
jafntefli við. Næstir að stigatölu
komu Akurnesingar með 8 stig og
Valur lilaut 6.
Þróttur fellur niður úr 1. deild, en
Akurnesingar flytjast upp i þeirra
stað. *
Leikir K.R. i mótinu fóru sem hér
segir:
K.R. — Vikingur .......... 7:0
K.R. — Akurnesingar ...... 4:1
K.R. — Valur ............. 1:1
K.R. — Fram .............. 3:0
K.R. — Þróttur ........... 6:1
Samtals mörk 21:3
Röð félaganna var sem liér segir:
L. U. J. T. Mörk St.
K.R....... 5 4 1 0 21:3 9
Í.A........ 5 4 0 1 23:7 8
Valur ... 5 2 2 1 13:6 6
Vík....... 5 2 0 3 9:20 4
Fram .... 5 1 1 3 6:11 3
Þróttur ..5 0 0 5 2:27 0
K.R. varð ennfremur Reykjavíkur-
meistari 1955. Unnu þeir Val á úr-
slitaleiknum um síðustu helgi.
Myndin til vinstri. — Þetta eru Is-
landsmeistararnir í ár. Fremri röð
frá v.: Hreiðar Ársælsson, Gunnar
Guðmannsson, Guðmundur Georgsson,
Guðbjörn Jónsson, Atli Helgason. —
Aftari röð frá v.: Óli B. Jónsson þjálf-
ari, Hörður Óskarsson, Helgi H.
Helgason, Sigurður Bergsson, Hörður
Felixsson, Þorbjörn Friðriksson,
Reynir Þórðarson og Haraldur Guð-
mundsson, formaður kn.deildar K. R.