Fálkinn


Fálkinn - 06.09.1957, Blaðsíða 3

Fálkinn - 06.09.1957, Blaðsíða 3
FÁLKINN 3 ýsUndingasagnaúlgáfan gc(ur úi Oíonunga sögur íslendingasagnaútgáfan kvaddi blaðamenn á sinn fund nýlega í til- efni þess, að þrjú fyrstu bindi af Konunga sögum eru komin á mark- aðinn. Alls cru bindi íslendingasagna- útgáfunnar nú orðin 42, og er því hér um að ræða umfangsmestu útgáfu fornrita hér á landi. Dr. Guðni Jóns- son hefir búið ritin undir prentun og unnið þar merkilegt starf. Fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins er Gunnar Steindórsson. Konunga sögur skiptast i tvennt, annars vegar sögur einstakra konunga og hins vegar yfirlitsrit um þetta efni. Fyrstu þrjú bindin, sem komin eru á markaðinn segja frá einstökum konungum frá Ólafi Tryggvasyni til Magnúsar lagabætis. hessar sögur eru yfirleitt eldri en íslendingasögurnar og ýmsar þeirra koma nú í fyrsta skipti út liér á landi. Meðal sagnanna eru Sverris saga, Böglunga sögur, Hákonar saga gamla, Ólafs saga Tryggvasonar og Helgisaga Ólafs Har- aldssonar. Margt er á huldu um höfunda Kon- unga sagna, en talið er. að þeir fróðu menn Sæmundur og Ari hafi fyrstir ritað yfirlitsrit um Noregskonunga. Höfundar hinna upprunalegu sérsagna af konungunum eru flestir gleymdir, en síðari höfundar, sem liafa fært þær í búning að nýju, eru margir liverjir þekktir. Meðal sagnaritara, sem talið er, að skrifað hafi konungasögurnar eru þessir: Sæmundir fróði Sigfússon, Ari fróði Þorgilsson, Eirikur Oddsson, Styrmir prestur Kárason, Karl Jóns- son ábóti, Oddur Snorrason munkur, Gunnlaugur Leifsson, Snorri Sturlu- son, Ólafur Þórðarson livítaskájd og Sturia Þórðarson. Það er engum vafa bundið, að lestur íslendingasagna og fornrita yfirleitt hefir vaxið mjög, síðan íslendinga- sagnaútgáfan fór að gefa þessi merku rit út i samfelldri heild. Svo að segja Iivert heimili á landinu á nú orðið nokkurn bókakost af þessu tagi. Það væri þó æskilegt, að kynslóð sú, sem nú er að vaxa úr grasi, kynntist forn- ritunum enn betur, og þar hafa skól- arnir merkilegt hlutverk að rækja. * LINA PICCIONI — sem datt i lukkupottinn Þetta er sönn saga af lítilli stúlku, sem átti aðeins cina ósk: að verða hamingjusöm. Og eftir miklar raunir drap lukkan á dyr. Það var árið 1947, sem raunirnar byrjuðu hjá Linu Piccioni, sem þá var sjö ára. Faðir hennar var tekinn fastur, sakaður um að hafa myrt fjór- ar manneskjur til fjár. Hann varð alræmdur um alla Ítalíu og nafn hans notað sem grýla á börnin. Þegar faðirinn fór í fangelsið var Lina send á kaþólskt barnahæli og nunnurnar urðu hrifnar af henni. En þó að atlætið væri gott kvaldist Lina ávallt af tilhugsuninni um föður sinn. Hún lá grátandi á nóttinni og þegar hún sofnaði dreymdi hana hræðilega. Þegar hún vaknaði af martröðinni leið henni svo illa, að lienni datt oft i hug að fyrirfara sér. En smám sam- an eldist þetta af henni. Meðan Lina var að alast upp í Róm var maður í Englandi, sem leið illa lika. Það var alkunnur kolakóngur, Auclier að nafni Hann átti peninga eins og sand, fagurt heimili og marga bíla. En hann var einstæðingur og undi lífinu illa. Hann afréð að fara til útlanda og létta sér upp. Og einn góðan veðurdag kemur þessi nær fimmtugi milljónamæringur til Róm og sest að í dýrasta gistihús- Framhald á bls. 14. Frakkar unnu íslendinga í heimsmeistarakeppninni íslendingar taka nú þátt i heims- meistarakeppninni í knattspyrnu í fyrsta skipti, svo sem kunnugt er. Þeir eru i riðli með Frökkum og Belgum og keppa tvo leiki við Iivora þjóð. í vor lék íslenska landsliðið við landslið beggja þjóðanna og tapaði báðum leikjunum. í Nautes í Frakk- landi urðu úrslitin 8:0 og i Brtissel í Belgiu 8:3. Siðastliðinn sunnudag léku Frakkar svo við íslendinga á hinum nýja Laugardalsvelli og unnu verðskuld- aðan sigur með 5 mörkum gegn einu. Þegar þetta er ritað er landsleikur við belgiska liðið óleikinn, en varla hægt að gera ráð fyrir sigri íslend- inga. Mestar líkur eru til þess, að franska liðið komist i lokaþátt heims- meistarakeppninnar, en eitt iið úr hverjum riðli fær rétt til þess. Úr- slitaleikurinn fer fram i Svíþjóð á næsta ári. Þetta er sjötta hcimsmeistarakeppn- in í knattspyrnu, og núverandi heims- meistarar eru Þjóðverjar. Þeir unnu Ungverjaland 1954 Áður hafa þessi lönd unnið keppnina: Uruguay 1930 og 1950, Ítalía 1934 og 1938. * Hýr yfirmaður urnirliisins Guðmundur í. Guðmundsson utanríldsráðherra heilsar hinum nýja yfir- manni varnarliðsins á Keflavíkurfluirvelli. Viðstaddur er sendiherra Banda- ríkjanna á fslandi. John 'White, fráfarandi yfirmaður varnarliðsins. Nýlega urðu yfirmannaskipti á Keflavikurflugvelli. í stað John W. White hersliöfðingja kemur Henry G. Thorne yngri, hershöfðingi, scm hefir verið foringi í loftflutningadeild Bandaríkjahers. Henry G. Thorne er fæddur árið 1913 í Texas og hefir um 'langt skeið starfað í bandariska flughernum. Hann er giftur og á tvær dætur og einn son. * Franska landsliðið.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.