Fálkinn


Fálkinn - 20.09.1957, Blaðsíða 15

Fálkinn - 20.09.1957, Blaðsíða 15
FÁLKINN 15 erre Louis, en giftist leikritahöfund- inum Georges Mitsikides 1948. Og viS það situr. Danielle lieldur sér svo vel að til þess er tekið, og ýmsar fertugar frúr mundú spyrja hvernig hún fari að því. En Danielle segist eltki geta gef- ið nein önnur fegrunarheilræði en þau að vinna 8 tima, slæpast 8 tíma og sofa 8 tíma, og nota mikið af köidu vatni á andlitið á sér. —O— Útvarpsmöstur bresku póstmála- stjórnarinnar i Rugby i Warwicks- hire eru 252 metra há og hæstu mannvirki i Bretlandi. Þau voru reist 1925 og vega 170 smálestir livert. Ilæsta flaggstöng i heimi stendur i Kew-garðinum i London og vegur 18.5 smálestir og er 66 metra há. Þetta er Douglas-fura frá Kanada og var sett upp í Kew Gardens 18. október 1919. Hæsti turninn i Brctlandi stendur í Blackpool. Hann cr tæplega 160 metra hár og var byggður 1894. í hann fóru 3.478 tonn af stáli og 352 af steypujárni. Turninn er málaður á hverju ári og til þess þarf 4.5 tonn af rauðri menju og hálft annað tonn af blýhbítu. í Bruxelles er verið að smiða út- varpsturn, sem á að verða fullgerður fyrir lieimssýninguna þar, árið 1958. Hann á að verða 595 metra hár, eða hæsta bygging veraidar. J. Saunders var mesti þolhlaupari, sem sögur fara af. Hann hljóp 200 kliómetra viðstöðulaust 21.—22. febr. 1882. Var hann 22 tíma 49 mínútur á hlaupinu. Jack Dempsey fyrrum heimsmeist- ari i hnefaleik hefir selt kvikmyndun- arréttinn af ævisögu sinni fyrir 250.000 dollara. Auk þess fær hann ágóðahlut af því, sem myndin gefur af sér. í Finnlandi eru lengri vatna-, fljóta- og skipaskurðaleiðir en i nokkru öðru landi. Samgönguleiðirn- ar á vatni, innanlands, eru alls kring- um 50.000 kílómetrar. KAPPSIGLING. — Hið glæsilega skólaskip „Danmark“, sem sést fyrir fullum seglum hér á myndinni, á inn- an skamms að fara í kappsiglingu við norska skólaskipið „Christian Iíad- ich“ milli Skagen á Jótlandi og Kristianssand. Veirður kappsiglingin litkvikmynduð og notuð sem þáttur í stóra kvikmynd. SÓLHATTUIÍINN. — Þetta kvendi sýndi sig á knattspyrnuleik í Ítalíu nýlega og Vakti athygli fyrir höfuð- búnaðinn. Hann er ekki beinlínis fal- legur en hver veit nema hann sé hagfelldur. Á FLÓTTA. — Dina drottning Jór- danskonungs, sem er egypsk að ætt hefir dvalið í Cairo undanfarin ár til að stunda veikan föður sinn. En ný- lega hvarf hún skyndilega heim í ríki sitt. Er brottförin sctt í samband við þær væringar, sem nú eru milli Jór- dans og Egyptalands. Trúlofunarhringir ljósir, rauðir. — Steinhringar fyrir dömur og herra. — Hálsmen, armbönd, gull og silfur. — Borðbúnaður, silfur, plett. — Or fyrir dömur og herra, gull og stál. Tegundir: Marvin, Damas, Tissot, Certina, Etema. BinbaucfÁLV )aLLAR GEfíÐIR \'37 i 3760.' Laugavegi 50. — Reykjavík. Útsvarsskrár 1957 Skrár um útsvör einstaklinga og félaga (aðalniðurjöfnun) i Reykja- vík árið 1957 liggja frammi til sýnis í skrifstofu borgarstjórans í Reykjavík, Austurstræti 16 (Póst. 7), frá þriðjudegi 17. þ. m. til mánu- dags 30. þ. m. (að báðum meðtöldum) alla virka daga kl. 9 f. h. til kl. 5 e. h. Frestur til að kæra yfir útsvörum er að þessu sinni til mánudags- kvölds 30. þ. m. kl. 24, og ber að senda skriflegar útsvarskærur til niður- jöfnunarnefndar, þ. e. í bréfakassa Skattstofunnar í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu, fyrir þann tíma. Er vakin sérstök athygli á því, að gjald- endum er nauðsynlegt að kæra á ný, þótt þeir hafi sent kærur áður, ef þeir vilja ekki una álagningu nefndarinnar. Þeir, sem kynnu að óska eftir upplýsingum um álagningu útsvars síns, samkv. málslið 2. gr. laga nr. 48, 20. apríl 1954, sendi skriflega beiðni til nefndarinnar fyrir þann tíma. Gjaldendur hafa nú þegar fengið tilkynningar um útsvör þau, sem á þá hafa verið lögð. Reykjavík, 16. september 1957. Mðurjöfnnnarnefnd Reykjavíkur

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.