Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1958, Page 3

Fálkinn - 20.06.1958, Page 3
FÁLKINN 3 Mesta iðjuver landsins sements verksmið j an tók til starfa siðastliðinn laugardag Yfirlitsmynd. Frá vinstri: Sementsgeymsluturn, efnisgeymsla, færiband, leðjuturnar og skorsteinninn lengst til hægri. Ásgeir Ásgeirsson forseti afhendir Ágústu Þorsteinsdóttur „Pálsbikarinn". »PdbMkarinii« - gjöf forata ísM Sundméistaramót Islands, seni fram fór á Akureyri um fyrri helgi, var með hinum mesta glæsibrag og fram- kvæmdin öll Akureyringum til mikils sóma. Forsetalijónin voru heiðurs- gestir mótsins. Ávarj)aði forsetinn mótsgesti þar sem liann ræddi um nytsemi sundiþróttarinnar, gat um af- rek forfeðranna og minntist þess manns, sem átti mestan og drýgstan þátt í þvi að hefja sundið aftur til þeirrar virðingar, sem því ber með eyþjóð eins og íslendingum — Páls Erlingssonar. Frumherjar þurfa ætíð að yfirstíga marga erfiðleika. en Páli tókst með ódrepandi áliuga og eld- móði að koma meginþorra manna í skilning um, að það væri ekki vansa- laust unguin mönnum og konum að kunm ekkert til sundmenntar. geta „bjargað sér“ hvernig sem á stæði. Forsetinn aflienti Sundsambandi íslands að gjöf fagran bikar, er bera skyldi nafnið „Pálsbikarinn" til minningar um Pál Erlingsson. Skyltii um liann keppt á hverju Islandsmóti í sundi og sá eða sú hljóta. er ynni besta afrek mótsins samkvæmt stiga- töflu Sundsambandsins. Erlingur Pálsson, formaður S.S.Í., sonur Páls Erlingssonar, veitti bikarnum mót- töku fyrir hönd sambandsins og þakkaði gjöfina. Fyrst til að vinna „Pálsbikarinn" var kornung stúlka, Ágústa Þorsteins- dóttir úr Reykjavík. Hlaut hún hann fyrir afrek sitt í 100 metra skriðsundi, 1.08,1 mín., sem gefur 808 stig. Einar Kristinsson vann annað besta afrekið, náði 0.00,9 mín. í 400 m bringusundi, sem gefur 858,5 stig. Þriðja besta af- rekið var 100 metra skriðsund Péturs Kristjánssonar, 59,7 sck., sem gefur 858 stig. Öll eru þau félagar í Ármanni í lleykjavik. Forseti íslands afhenti Framhald á bls. 14. Síðastliðinn laugardag lagði forseti íslends, Ásgeir Ásgeirsson, hornstein- inn að Sementsverksmiðjunni á Akra- nesi, sem verður mesta iðjuver lands- ins, en siðan kveikti iðnaðarmálaráð- herra, Gylfi Þ. Gíslason, i aðalofni verksmiðjunnar í fyrsta sinn og tók hún þar með til starfa. Rúmlega tvö ár eru síðan hafist var handa um að reisa sementsverksmiðj- una og hefir verkinu miðað vel áfram þar sem hér er um að ræða hið mesta mannvirki. Athafnasvæði verksmiðj- unnar er um 4 hektarar, en stærsta byggingin þar, vöruskemman, er 110 þús. rúmmetrar, og skorsteinn verk- smiðjunnar er liæsta mannvirki á Islandi, 70 metrar. Fyrst í stað verður eingöngu fram- leitt sementsgjall, en það myndast, þegar hráefnið hefir verið hitað i hinum geysimikla ofni verksmiðjunn- ar allt upp í 1450 stig. Vænta má svo að fullunnið sement komi frá verk- smiðjunni eftir nokkrar vikur. Lág- marksafköst eiga að vera 75 þús. lestir á ári, Portlands- og Puzzoiau- sement. Til þess ag gernýta hráefnið verða þar einnig framleiddar 20 þús. smálestir af 95 prósent áburðarkalki. Gert er ráð fyrir að við verksnhðjuna vinni 70—80 manns, þegar vinnsla er hafin af fullum krafti. Af þeim munu um 50 vinna beint að sementsfram- leiðslunni, en auk þess þarf skrif- stofufólk og sérfræðinga til stöðugs eftirlits. Sérstök rannsóknarstofa verður við stofnunina. Vélakostur sementsverksmiðjunnar er allur smíðaður í Danmörku hjá F. L. Smidth & Co. i Kaupmannahöfn og hafa verkfræðingar og aðrir sér- menntaðir menn frá þvi fyrirtæki unnið við uppsetningu véla og smíði frá byrjun. Einnig munu þeir starfa við hana fyrst í stað eftir að hún lief- ir hafið vinnslu. Hráefni það, sem verksmiðjan not- ar, er nær eingöngu islenskt. Skelja- sandi er dælt af botni Faxaflóa úr óþrjótandi námu, er þar virðist vera, og líparít er tekið inni í Hvalfirði. Einnig þarf lítilsháttar gips, og er það eina hráefnið, sem flytja verður inn. Til starfrækslu sementsverksmiðj- unnar þarf um 2000 kílówött raf- Framhald á bls. 14. mmm Til vinstri er efnisgeymsla, en t. h. færiband. Neðst og l'remst á mynd- inni sér í sandtrektina.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.