Fálkinn


Fálkinn - 20.06.1958, Blaðsíða 6

Fálkinn - 20.06.1958, Blaðsíða 6
6 F A L KIN r Olíuskipakóngarnir — III. Með milljónir að bakhjarli. HJÁ SAUD KONUNGI. Árið 1954 fór Tina Onassis með manni sínum i siglingu til austurlanda á skemmtisnekkjunni „Christina“. Skip jjetta er 1800 lestir og með 40 manna áhöfn. Þar eru 14 svefnklefar og er bað með hverjum klefa. Ari og Tina Onassis fóru til Saudi- Arabiu, Sýrlands og Sudan. Þau höfðu flugvél um borð og fóru langar ferðir inn i land á henni. Það var mikið talað um þessa ferð. Meðal annars var sagt að Tina hefði búið í konunghöllinni hjá Saud, með- an maðurinn hennar var að gera við- skiptasamninga viðvíkjandi oliuskip- um. Það er ekkert ieyndarmál að sam- band Onassis við austurlanda póten- táta opnaði honum dyrnar að hinum dularfullu arabisku „bæjum“, sem livitir menn liafa aldrei fengið að koma í áður. Tina kom á marga staði, sem engin hvít kona — eða konur yfirleitt — hafa séð. En mest þótti henni gaman að fá að sofa eina nóttina i tjaldi úti í eyði- mörkinni. Það var svoddan nýnæmi fyrir dóttur milljónamæringsins Stav- ros I.ivanos að hafa ekki þak yfir höfði sér. VIÐ EIRUM HVERGI. — Fyrsta heimili mitt var í húsi mannsins míns við Oyster Bay á Long Island, segir Eugenia Niarchos. — Það er eiginlega sumarbústaður, en við erum svo sjaidan í New York á sumrin. Og nú fóru Niarchoslijónin að svip- ast eftir bústað í New York. Þau sáu þriggja herbergja íbúð, á efstu hæð í sextán hæða leiguhúsi, og fengu hana. Eugenia fór þegar að kaupa sér innbú. — Maðurinn minn hefir ekki meira gaman af neinu en að kaupa húsgögn, segir hún. — Ilvenær sem hann sér eitthvað verulega fallegt kaupir liann það undir eins. Og oft förum við út saman til að leita uppi einhverja gamla muni. Og þegar við loksins höf- um komið skipun á heimilið, er sjald- gæft að við breytum því nokkuð sið- ar. Hvort við verðum leið á húsgögn- unum okkar? Hvernig ættum við að verða það? Við erum sjaldan svo lengi á sama stað að við getum orðið leið á umhverfinu. í árslok 1949 fluttust fjölskyldurn- ar til Englands og settust að á Clar- idge Hotel í London, sem er eitt af bestu gistihúsunum í Evrópu. Ari og Tina bjuggu líka á Claridge, en — vitanlega — ekki samtímis Niarchos og Eugeniu. Þessir svilar og keppi- nautar forðast sem mest að hitta hvor annan. Árið 1950 fóru Eugenia og maður hennar til St. Moritz til að iðka vetr- aríþróttir. Þau settust að á Palace Hotel, einu dýrasta gistihúsi Evrópu. Þar fóru þau snemma að hátta en fóru á fætur í óttu, eins og iþróttafólk á að gera. Þeim þótti mjög gaman að ganga á skíðum. Að ósjálfráðum ástæðum urðu þau þarna lengur en gert hafði verið ráð fyrir. Stavros Niarchos fótbrotnaði og lá rúmfastur í tvo mánuði. En hann var sístarfandi eins og áður og ráð- stafaði kaupsýslumálum sínum úr rúminu. Eugenia fór til New York til að ala barn, það var Philip. Hann var ekki nema sjö vikna þegar hún fór með hann til baka til Sviss. HVE MÖRG HÚS? Onassis fór til Coté d’Azur 1950, og leigði þar Chateau de la Croé, sem er ein fegursta höllin við Rivieruna. Stavros og Eugenia leigðu Chateau de la Garoupe við Cap d’Antibes. Þrem- ur árum síðar keypti Niarchos Chateau de la Croé. — Stavros keypti það ekki til þess að ná því frá Ari, segir Eugenia og hlær. — Ég kann allar sögurnar, sem liafa verið búnar til um það, en það er ekki vert að leggja trúnað á þær. Annars búa þau hjónin aðallega í útbyggingu hallarinnar. — Það er umsvifaminna að lialda öllu hreinu þar, og miklu skemmtilegra og þægi- legra, segir hún. Þetta gerðist um sama leyti sem Onassis var að kaupa upp Monte Carlo. Þau hjónin útveguðu sér lúx- usibúð í bænum, en ofast nær voru þau um borð i skemmtiskipinu „Christina". — Þar á ég heima, segir Tina. Niarchos hefir líka keypt sér hús i Paris. Ljómandi fallegt ’gamalt hús, sem hefir verið dubbað upp og er ljómandi skemmtilegt, segir Eugenia. — Og svo eigum við hús á Bermunda. Við sáum það þegar við komum þang- að 1949 og maðurinn minn keypti það, en við höfum aldrei búið þar. Þegar hún var spurð hvernig hún færi að þvi að halda svona mörgum heimilum í standi, kom það á daginn að hún hefir færra þjónustufólk en maður skykli lialda. — Þegar við kom- um til New York ráðum við aðeins fólk til skamms tima — þá fær mað- ur duglegt fólk. Ferðir okkar fara eftir árstíðum. Okkur fellur vel að vera í New York á haustin, í Sviss á vetrum, London og París á sumrin og við Riveruna á sumrin. Niarchos er miklu meir með kon- unni sinni en Onassis er með Tinu. Onassis ferðast miklu meir en svili lians. En hvenær sem Ari og Tina eru ekki saman símar hann til hennar stundvíslega klukkan hjálfsjö á kvöld- in. Þau tala saman daglega — yfir þvert Atlantshaf, frá Arabiu til Sviss, frá Afríku til „Christina“. — Einu sinn liittust þær Eugenia og Tina að óvörum á Idlewild-flugvellinum i New York. — Við vorum báðar á leið til Evrópu, segir Eugenia — og ekki með sömu flugvélinni. Tina fékk skipt um farscðil og fór með sömu vélinni og ég, og jietta er eitt af þeim fáu skiptum sem við höfum ferðast saman eftir að við giftumst. Af tilviljun fór bróðir þeirra um sama leyti með annarri flugvél svo að þau hittust öll í París. TINA OG IIVALSKUTLARARNIR. Systurnar jireytast aldrei á að scgja frá ferðalögum sinum. Ein skrítnasta ferð Tinu var sú, er hún heimsótti hvalaskip Onassis suður i ísliafi. — Við vorum á hvalveiðum i hálfan mán- uð. Ég reyndi að skutla lival, en heppnin var ekki með mér. Ég hitti aldrei. Það var helst að sjá að hvala- skyttan hefði gaman af þessu, svo að ég sagði við hann, að ég hefði ekki séð hann liitta heldur. Þá varð hann reiður. Svo leið og heið og einn dag- inn þegar við Ari og gestir okkar vorum uppi á þilfarinu hleypti skytt- an af. Það þótti mér merkilegt að sjá. — Hann skaut tvo hvali i sama skotinu. Skutullinn fór gegnum lival- inn og drap þann næsta, segir Tina. Svo flugu þau til Perú frá móður- skipinu. Þegar þau komu á flugvöllinn i Lima leit Tina bænaraugum lil mannsins síns. — Hvað viltu núna? sagði hann. — Mig langar svo mikið til Cuba, cinmitt núna. — Hann tók í höndina á mér, segir Tina, og leiddi mig að fyrstu flug- vélinni, sem átti að fara til Cuba. Ég vissi að hann var önnum kafinn, — en svona er hann. Við komum til Cuba farangurslaus. En þegar farang- urinn kom hálfum mánuði síðar, var enn hvalslýsislykt af honum. Ari Onassis minntist ekki einu orði á það við konuna sína, að liann átti í alvarlegum brösum við Perú-stjórn- ina einmitt þá. Stavros Niarclios talar hins vegar oft um kaupsýslumál við konuna sína. — Hann úlmálar fyrir mér áform sín og hugmyndir, segir Eugenia. — Ekki af því að ég geti gefið honum nokkur heilræði — óg botna ekkert í þessum flóknu hugmyndum hans — heldur til þess að láta mig fylgjast með. Margar konur segja það sama, þó að það séu smærri uppliæðir, sem niennirnir þeirar tala um. Eugeniu Niarchos er illa við að skíra skip. Hún segist vera svoddan klaufi að halda ræður. SKARTGRIPIR OG FÖT. Báðar systurnar hafa gaman af skartgripum. Uppáhalds djásn Tinu er armband i nöðruliki, alsett smar- ögðum og demöntum. Það er rússneskt og Onassis komst yfir það hjá forn- gripasala. En uppáhald Eugeninu er hringur með stórum turkis Ilann er ekki sér- lega dýr og ekki í neinu hlutfalli við auðæfi Niarchos, en henni þykir vænt um hann samt. — Ég keypli hann sjálf, segir hún. — Iiann rekur „vonda augað“ á flótta. Ég er alltaf með hann, og oftast nær kross með turkísum líka. Eugenia hefir j)á trú, eins og margir Grikkir, að turkísar bægi illum önd- um frá manni. Sama tiskuhúsið saumar kjólana á Tinu og Eugeniu, og báðir mennirnir þeirra 'láta sér mjög annt um lclæða- burð þeirra, sérstaklega Niarclios. Saud Arabíukonungur um borð í skemmtiskipinu „Christina", sem gestur Onassis. Þeir sjást báðir á miðri myndinni. Onassis hefir gert mikla verslun við Saud. Onassis og frú Tina og börnin þeirra. Lengst til hægri er barnfóstran, sem er frönsk.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.