Fálkinn - 10.10.1958, Blaðsíða 6
6
FÁLKINN
Vanny ÖCayc sigrar Condon
GAMLA AFTURGANGAN.
Engum sem þekkti Danny Kaye
kom á óvart að hann skyldi segja
skilið við Sylvíu og Sam Goldwyn
svo að segja samtímis. Maður eins
og hann varð að finna sjálfan sig
hjálparlaust og án stoðar frá þeim,
sem stóðu honum næst. Nú brenndi
hann brýrnar að baki sér og hélt til
London og byrjaði þar sýningar sin-
ar á Palladium 2. febrúar 1948. Hann
hafði aldrei komiS á sviS þar siðan
sneypuförina frægu 1938. Hann vildi
komast burt frá Bandarikjunum, burt
frá Sylviu og gagnrýnendunum. Og
hann vildi sigra í London til að reka
af sér slyðruorSiS frá 1938.
Því að ósigurinn á Dorcester Hotel
fyrir tiu árum kvaldi hann enn, Þá
hafði hann tekiö tilboði, sern einn
frægasti leikararáðandi í London.
Henry Sherek, hafði gert honum.
Sherek hafði verið í leikaralcit í Ame-
riku og hitt Danny í Philadelphia.
— Mér leist undir eins vel á þennan
slöttungslega, rauðhærða og klunna-
lega trúð, segir Sherek. — Hann kom
mér til að hristast af hlátri undir
eins og hann kom inn á sviðið og
þangað til hann fór. Eftir sýninguna
fór ég inn í fataklefann til hans og
bauð lionum ráðningu á Dorchester,
en Danny sagðist vera samningsbund
inn, og að ég yrði að ráða bæði sig
og félaga hans, eða engan. Ég gekk
að þvi skilyrSi með því að hann lof-
aði að syngja tvö einsöngslög,
„Deenah“ og „Minnie the Moocher“.
Danny fór til Englands fullur af
bjartsýni og á leiðinni hafði hann
verið i essinu sinu. Hann hafði talað
við brytann með besta enskum mál-
hreim, pantaS mjólk á skosku og
fengið rakarann til að trúa að hann
væri frá Wales, en fæddur í Brooklyn
og héti réttu nafni Kaminsky. Á hverj-
um morgni sást hann hoppandi og
hlaupandi á þilfarinu, talaði við sjálf-
an sig og baðaði öllum öngum, svo að
fólk hélt að hann væri ekki með öll-
um mjalla. En Danny var mikiS i
hug. Hann sá sig í anda sem glæsi-
legasta skemmtikraftinn í London.
En svo kom hann í borgina i súld
og hráslaga og nú fór hann að kviða
því að sér mundi mistakast. Hann
reyndi að gcra að gamni sínu við af-
greiðslumennina í búðunum en þá
horfðu þeir vorkennandi á liann. Hon-
um var alltaf kalt, og hann sannfærð-
ist um, að ómögulegt væri að vinna
sigur í svona borg.
Enda mistókst honum svo herfi-
lega, að enn fór hrollur um hann
þegar hann hugsar til þess. Eitt
stærsta sunnudagsblaðiS skrifaði:
„Danny Kaye hafði ekki meiri áhrif
á hina göfugu gesti í Dorchester
Hotel en krakkabolti hefir á nas-
hyrning. ÞaS var líkast og þær sæi
hann alls ekki, og því síður hve lé-
legur hann var.“
Allt gekk honum á móti. I fyrsta
lagi var sýningin á eins óheppilegum
tima og hugsast gat orðið, nefnilega
kvöldið eftir að Chamberlain kom frá
Múnchen ,svo að ekki lá vel á fólki.
ViS þetta bættist að gaman hans var
algerlega amerískt, og hátiðabúnir
Lundúnabúarnir höfðu skömm á þess-
um freka óheflaSa slána.
3. gfrein.
— Þetta var martröð, og var allt
og sumt sem Danny sagði.
Og nú var hann kominn aftur eftir
tíu ár, til að seiða fram afturgönguna
frá Dorchester Hotel.
,.NÚ KEMUR DANNY!“
TrióiS óaðskiljanlega — Danny
Kaye, Sammy Praeger (píanisti) og
liddie Dukov (fararstjóri)( — sátu
með sveittan skallann nokkra daga
og nætur til að undirbúa frumsýning-
una á Palladium. Þeir reyndu að
leggja sig eftir hinu sérkennilega í
gamansemi Englendinga, þvi að þeim
var ljóst að Englendingar yfirleitt
höfðu ekki mikið álit á amerisku
gamni.
Danny var svo að segja ókunnur
ensku blöðunum, og þegar hann kom
til London þótti hann lieillandi, auð-
mjúkur og blátt áfram barnalegur.
Hann afvopnaði blaðamennina alveg
með því að segja, að hann vissi ósköp
litið um England, og spurði og spurði,
svo að það var hann sem tók viðtal
við blaðamennina, en ekki þeir við
hann.
Palladium var útselt fyrsta kvöldið
sem hann var í eldinum. Danny, sem
stóð skjálfandi bak við leiktjöldin,
heyrði allt í einu leikstjórann Ted
Ray kalla nafnið sitt. Hann reyndi að
svara, en uppgötvaði þá að babb var
komið í bátinn. ÞaS var eins og liann
væri negldur við gólfið og hann gat
ekki hreyft sig úr sporunum. Ted Ray
beið en neðan úr dimmum áhorfenda-
salnum heyrðist dynjandi lófaklapp.
Eins og í draumi heyrði Danny fólkið
brópa, og nú endurtók Ray: — Og
nú — nú kemur Danny!
Danny stóð sem steini lostinn og
hélt dauðalialdi í kaSal og hugsaði
til Sylviu. En allt i einu var honum
bókstaflega fleygt inn á sviðið. Char-
les Henry, sem stóð fyrir öllu fyrir-
tækinu, hafSi séð að Danny hafði
fengið „lampafeber" og hrinti hon-
v,m langt inn á sviðiS.
Danny var rétt dottinn en tókst að
ná jafnvæginu. Hann nam staðar á
miðju sviðinu og sagði það sem hon-
um datt fyrst í hug: — Ég skelf eins
og lauf í roki! Þessu var tekið meS
hjartanlegum hlátri og dynjandi lófa-
klappi, og það var einmitt þaS, sem
Danny þurfti.
Þetta kvöld tók hann á öllu því
sem hann átti til, og var eins og
gjósandi eldfjall. Hann var á leiksvið-
inu þangað til hann var orðinn stað-
uppgefinn, en þá verkjaði lika átta
þúsund manns í allan skrokkinn af
hlátri.
Hann söng allar einkennilegustu
vísurnar sínar af dæmafárri snilld.
Hann sagði frá ferðinni til Englands,
kveinaði yfir hve liræddur hann hefði
verið, og gerði alla agndofa með sinni
ágætu raddbeitingu og neistaflugi
fyndninnar. Hann teygði áheyrend-
urna eftir sér svo að þeir veltust um
í hlátri, fékk þá til að taka lagið meS
sér og reyna að herma eftir sér. Á
tuttugu og níu mismunandi tungum
og mállýskum og með hundruðum til-
tekta og fetta og bretta tókst honum
aS sannfæra áhorfendurnar um, að
þarna stæði það andspænis „mesta
trúð aldarinnar".
— Upp frá því kvöldi var England
mitt annað heimili, segir Danny Kaye.
— Og mér veitti sannarlega ekki af
því heimili.
HANN STAL HUG FÓLKSINS.
Á einu kvöldi varS hann umtals-
efni allrar stórborgarinnar og vin-
sældir hans uxu með hverri sýningu.
Leigubílstjórarnir vildu ekki taka á
móti borgun hjá honum. Danny-Kaye-
klúbbur var stofnaður og fólk gekk i
Danny Kaye peysum og með Danny
Kaye-hálsbindi. Hrifnar ungmeyjar
rifu pjötlur úr fötunum hans og
reyndu að kyssa liann. Hann olli eins
konar umsátursástandi í borginni.
Hann vakti meiri hrifningu en nokk-
ur gamanleikari á undan honum.
Nú var hann orðinn sannfærSur
um að hann hafði fólkið á sínu bandi,
og þess vegna gerðist liann svo djarf-
ur að sýna því hvernig hann væri
i raun og veru. Oft settist hann fram
á leiksviðsbrúnina með lappirnar
dinglandi niður í hljómsveitargröfina
og reykti vindling og talaði um það
sem honum datt i hug, sagði gaman-
sögur, skýrði frá stjórnmálaskoðunum
sínum eða ræddi um tilveruna eins
og heimspekingur.
Kvöld eftir kvöld vakti hann hlát-
ur og dynjandi lófaklapp. En eitt
kvölið, í miðri sýningu, fann hann
allt í einu, að hann hafði misst tökin
á fólkinu. Ekki eitt einasta sæti var
autt í húsinu — greifafrúin af
Milford Haven liafði orðið að sætta
sig við stæði og borgaS þrjú sterlings-
pund fyrir — en hann hafSi misst tök-
in á fólkinu!
Hljóðfæraleikararnir i gröfinni
fóru að ókyrrast og fólkið á efstu
pöllunum teygði sig fram í sætunum.
EitthvaS einstakt liafði komið fyrir.
Þvi hærra sem Danny söng, þvi meiri
ókyrrð varð i salnum, og i örvænt-
ingu flýtti Danny sér til Sammy
pianista og hvíslaði: — HvaS er að?
Sammy hafði líka tekið eftir að eitt-
hvað var að, en hristi höfuðið. ÞaS
var eittlivað, sem hafði truflað áhorf-
endurna.
Nú sáust blossar frá blaðaljósmynd-
urunum viðs vegar um salinn. ÞaS var
Winston Churchili, breiður og bros-
andi, sem hafði orðið of seinn á sýn-
inguna. Danny gekk fram á sviðbrún-
ina og gægðist brosandi fram i salinn.
— VerðiS þið ekki bráðum búnir,
þarna niðri? spurði hann. — ÞaS er
ég, sem er aðalpersónan hérna í kvöld.
Churchill gamli, sem sjálfur kemst
stundum vel aS orði, hló dátt að þess-
ari kveðju, og eftir sýninguna átti
hann tal við Danny undir fjögur augu.
— Ungi maður, sagði hann hátið-
legur. — Það er svei mér heppilegt
að þér eruS ekki stjórnmálamaður.
Þér hafið allt fólkið í vasanum og
gætuð orðiS hættulegur andstæðingur
ef þér færuð aS fást við stjórnmál.
Danny varð upp með sér af þessu,
því að það var fátítt að Churchill
slái öðrum gullhamra. En Churchill
hélt áfram: — Ég tók sérstaklega eft-
Fyrir nokkrum árum var Danny Kaye á ferð í Osló. Honum var sýndur Kontiki-flekinn, sem Thor Heyerdal
sigldi á, og myndin er tekin af Danny á flekanum.